Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 9
7Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
Molar
Skrifstofa Fíh er flutt á Engjateig 9
Haustið 2023 komu í ljós skemmdir á útveggjum á húsnæði Fíh við
Suðurlandsbraut 22. Við sýnatöku kom í ljós mygla og ákvað stjórnin
því að finna nýtt húsnæði undir starfsemina á meðan viðgerðir
standa yfir. Starfsemin var flutt á Engjateig 9, 105 Reykjavík, í lok
janúar 2024.
Hjúkrunarfræðingar hafa notað húsnæðið á fjórðu hæð Suðurlands-
brautar 22 frá árinu 1987. Það sama ár opnaði Vigdís Finnbogadóttir,
þáverandi forseti Íslands, Sigríðarstofu sem heitir á höfuðið á móður
hennar, Sigríði Eiríksdóttur, sem var formaður Félags íslenskra
hjúkrunarkvenna í 36 ár.
Húsið við Engjateig 9 heitir Verkfræðingahús og hýsir, ásamt fleiru,
Verkfræðingafélag Íslands. Það má segja að Fíh verði áfram á
kunnuglegum slóðum því á annarri hæð hússins má finna veggskjöld
til heiðurs Finnboga Rúts Þorvaldssonar, fyrrum formanns
Verkfræðingafélags Íslands. Finnbogi Rútur var eiginmaður Sigríðar
Eiríksdóttur og faðir Vigdísar Finnbogadóttur.
Aðalfundur á Grand Hótel þann 16. maí
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 2024 verður haldinn á Grand Hótel
Reykjavík fimmtudaginn 16. maí frá klukkan 17:00 til 20:00. Boðið verður upp á léttar
veitingar á fundinum.
Á aðalfundinum verður kosið í stjórn Fíh; þrír aðalmenn og einn varamaður, einnig
verður kosið í ritnefnd Tímarits hjúkrunarfræðinga. Framboðum til stjórnar Fíh skal fylgja
stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu framboðs ásamt rökstuðningi
um færni til að gegna stjórnarsetu. Kynning á frambjóðendum til stjórnar Fíh fer fram á
samfélagsmiðlum Fíh að loknum framboðsfresti.
Allar tillögur til lagabreytinga og önnur mál sem félagsfólk óskar eftir að tekin verði fyrir
á aðalfundi, þurfa að berast stjórn félagsins fyrir miðnætti fimmtudaginn 18. apríl og skal
senda á netfangið formadur@hjukrun.is.
Allt félagsfólk hefur rétt til setu á aðalfundi félagsins. Atkvæðisrétt hefur félagsfólk með
fulla aðild, fagaðild og lífeyrisaðild sem skrá sig til þátttöku á fundinn fyrir fimmtudaginn
9. maí. Aðrir hafa þar ekki atkvæðisrétt, opnað verður fyrir skráningu á fundinn þann
2. maí á heimasíðu félagsins. Þess má geta að boðið verður upp á streymi og rafrænar
kosningar, líkt og síðustu ár, fyrir þá sem ekki geta mætt á Grand Hótel þann 16. maí.
Félagið er um þessar mundir að fá afhent ný orlofshús, sem það
festi kaup á, í Hyrnulandi 10 og 12 í Hlíðarfjalli fyrir ofan Akureyri.
Húsin eru 109 fermetrar að stærð með svefnplássi fyrir sex
manns, heitum potti og sérlega fallegu útsýni.
Hlíðarfjall hefur verið vinsæll áfangastaður allt árið um kring og
ánægjulegt að geta boðið hjúkrunarfræðingum upp á þennan
nýja valkost.
Í byrjun marsmánaðar var tekinn í notkun nýr orlofsvefur með
uppfærðu viðmóti og útliti. Viðmótið er svipað og áður nema
með notendavænni möguleikum sem einfaldar sjóðsfélögum og
sjóðnum að ganga frá pöntunum og afpöntunum.
Sjóðfélagar munu áfram geta keypt hin vinsælu gjafabréf Iceland-
air með afslætti, til að gefa fleirum kost á að kaupa, tók stjórn
sjóðsins ákvörðun um að leyfa einungis kaup á tveimur bréfum í
stað þriggja þetta árið.
Sigríður Eiríksdóttir, Finnbogi Rútur Þorvaldsson og Vigdís Finnbogadóttir
við veggskjöldinn til heiðurs Finnboga.
Myndin var tekin í janúar 1961 í þáverandi húsnæði Verkfræðingafélags Íslands
í Brautarholti 20.
Ný orlofshús á Akureyri