Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 12

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 12
Viðtal 10 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 Hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands í 50 ár Það er að hluta til Marianne Klinke að þakka en hún hefur í nokkur ár verið að hvetja mig til að fara í meistaranám. Í þessu námi mun ég gera rannsókn sem tengist hjúkrun sjúklinga eftir heilablóðfall. Hvaða eiginleika þarf góður leiðtogi í hjúkrun að hafa? Hann þarf að geta hlustað, vera þolinmóður og skynsamur í ákvarðanatöku þegar kemur að mannlegum samskiptum. Það skiptir líka miklu máli að geta lesið í allar aðstæður og að vanda sig í samskiptum. Á deildinni minni starfa um 60 manns og því er færni í mannlegum samskiptum gríðarlega mikilvægur eiginleiki til að vera góður leiðtogi. Hverjar eru helstu áskoranir í starfi? Að manna deildina er mín helsta áskorun, það er gríðarlega erfitt að fá hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til starfa. Þeir vaxa víst ekki á trjánum. Bjargráð í starfi? Mér finnst nauðsynlegt að hafa einhvern sem ég get leitað til þegar á þarf að halda og fá aðra sýn á hlutina. Lausnamiðað starfsfólk með góða aðlögunarhæfni, jákvætt hugarfar og góða samskiptafærni. Eins finnst mér mikilvægt að eiga samtal við samstarfsfólk á jafningjagrunni. Ertu meðvitað að vinna í því að efla leiðtogahæfileika þína til þess að verða betri yfirmaður? Já, Landspítalinn býður upp á námskeið fyrir stjórnendur sem ég hef verið að sækja og finnst mjög hjálpleg varðandi stjórnun og samskipti. Þetta var flókið til að byrja með, ég hélt ég vissi nú eitthvað en þetta er algjör frumskógur en að sama skapi mikið ævintýri að læra að starfa í þessu umhverfi. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt í mínu starfi, engir tveir dagar eru eins sem mér finnst vera gefandi. Hvernig sérðu að hjúkrun hér á landi muni þróast á næstu tíu árum? Á minni deild er mikið af erlendu starfsfólki, það er í meirihluta og ég sé fyrir mér að það komi fleiri erlendir til starfa í heilbrigðiskerfinu í framtíðinni. Hvernig leysum við mönnunarvandann? Með því að hækka grunnlaunin. Störf hjúkrunarfræðinga eru oft mjög krefjandi og vinnutíminn óreglulegur. Það væri líka til bóta að bæta vinnuaðstæður hjúkrunarfræðinga. Draumastarfið þitt? Í dag er þetta draumastarfið mitt en ég veit ekkert hvað mig langar að gera eftir til dæmis fimm ár. Núna vil ég einbeita mér að því að byggja upp þessa deild og sinna mínu starfi sem deildarstjóri vel. Hvað finnst þér vera það besta við þitt starf sem deildarstjóri á taugalækningadeild? Vinnutíminn er kostur, ég hef alltaf verið í vaktavinnu þar til núna en ég verð að segja að samstarfsfólkið mitt á deildinni sé það besta við starfið. Þarft þú sem yfirmaður að eyða miklum tíma skriffinsku og skipulag? Það er alltaf nóg að gera í því en ég reyni að vera eins mikið frammi á deildinni og ég get, ég vil vera sýnileg og til staðar, mér finnst það mjög mikilvægt. „Ég var að byrja í meistaranámi í taugahjúkrun með áherslu á heilablóðfall.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.