Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 14

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 14
12 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 Erla Salóme Ólafsdóttir Telur lág laun valda vítahring manneklu í stéttinni HJÚKR UN AR FR ÆÐINEMINN SITUR FYRIR SVÖRUM? Á hvaða ári ertu í náminu? Ég er á fjórða ári við Háskólann á Akureyri. Ertu búin að ákveða hvar þú vilt starfa eftir útskrift? Nei, en ég er mjög spennt fyrir barna- deildinni. Hafðir þú lengi stefnt að því að læra hjúkrunarfræði eða varstu að íhuga eitthvert annað nám? Þegar ég var krakki ætlaði ég að verða ljósmóðir en þegar ég var í menntaskóla ætlaði ég að verða talmeinafræðingur. Svo fór ég að vinna á hjúkrunarheimili og heillaðist alveg af starfi hjúkrunar- fræðinga, þannig að það má segja að ég hafi farið í hring þegar ég var að ákveða hvað ég vildi verða. Gætir þú hugsað þér að starfa við fagið erlendis í framtíðinni? Já, ég gæti alveg hugsað mér það. Skemmtilegasta fagið? Núna er það heilbrigði kvenna. Erfiðasta fagið? Ég myndi líklega segja Líffærafræði II en flest fögin eru samt krefjandi. Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu? Kannski bara helst hvað það er ótrúlega margt sem við þurfum að kunna og að við fáum að gera einhvern hlut bara einu sinni áður en við eigum svo að framkvæma hann á skjólstæðingum. Eitthvert fag sem þér finnst vanta í námið? Já, meiri kennslu um streitu og bjargráð fyrir stúdenta sem þeir geta tileinkað sér. Ætlar þú að fara í framhaldsnám? Ég er ekki búin að ákveða það, mig langar enn þá í ljósmóðurfræði. Hressasti kennarinn? Arnrún Halla. Eftirminnilegasta kennslustundin? Fyrsta lotan eftir klásus stendur upp úr en þá lærðum við að taka blóðprufur sem var mjög eftirminnilegt. Eins í vetur þegar við vorum í lotu og það varð rafmagnslaust í 20 mínútur. Flottasta fyrirmyndin í faginu? Sólveig Hulda, aðstoðardeildarstjóri lyfja- deildar SAk. En í lífinu? Harpa Hrönn frænka mín og ofurkona. Eiginleikar sem þú vilt tileinka þér í starfi? Umhyggja. Ég vil vera talsmaður skjól- stæðingsins og vera óhrædd við að standa á mínu. Uppáhaldslæknadrama? Call the midwife. Besta ráðið við prófkvíða? Að fara í göngutúr fyrir próf. Kaffi, te, kók, orkudrykkir eða allt saman? Ég er nýlega hætt að drekka kók, þannig að núna er það einstaka orkudrykkur sem ég leyfi mér. Besta næðið til að læra? Bókasafnið í HA með góð hljóðeinangr- andi heyrnatól. Hvernig nærir þú andann? Með því að prjóna eða fara í dekur heim til mömmu og pabba. Líkamsrækt eða letilíf á frídögum? Team letilíf. Þrjú stærstu afrek í lífinu? Skiptinám í Argentínu þegar ég var 17 ára, vera virk í Stúdentaráði og að klára þetta blessaða nám. Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar? Já. Hvað gerir þú til að sporna við gróðurhúsaáhrifum? Ég reyni að borða minna kjöt, flokka allt mitt rusl og vera meðvituð um neyslu mína, sérstaklega þegar kemur að fata- kaupum. Hvað gleður þig mest í lífinu? Samverustundir með fjölskyldu og vinum. Hvað hryggir þig helst? Þegar fólk er óheiðarlegt. Hvernig fáum við fleiri karlmenn til að læra hjúkrun? Gerum starfið aðgengilegra fyrir öll og fjarlægjum kvennastimpilinn, það eru t.d. mun fleiri karlmenn í hjúkrun í löndum sem eru með her. Ef þú ættir eina ósk? Myndi ég óska að hvorki stríð né hungur- sneyð væri í heiminum. Fallegasta borg í heimi? Rio de Janeiro. Falin perla í náttúru Íslands? Þerribjörg í Hellisheiði eystri. Besta baðið? Sundlaugin í Selárdal. Hvernig myndir þú lýsa þér í einni setningu? Metnaðarfull án þess að hafa tíma í að gera allt sem ég tek að mér. Hvernig nemandi ertu? Ég vinn best undir pressu og á erfitt með að vinna mér í haginn. Að lokum hvað finnst þér að stjórnvöld gætu gert til að hvetja fleiri til að læra hjúkrun? Hækka laun hjúkrunarfræðinga, því það er að mínu mati stærsti orsakavaldur vítahrings manneklu í stéttinni. Alveg að lokum hvað, ef eitthvað, finnst þér vanta í Tímarit hjúkrunarfræðinga? Ég held bara ekkert, mér finnst mjög gaman að fletta blaðinu og finnst það fjölbreytt. Aldur 27 ára Stjörnumerki Vatnsberi Hjúkrunarfræðineminn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.