Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 19
Viðtal
17Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
ásamt kennslustjóra lækninga, sýkingavarnafulltrúi og margt
fleira sem eflir okkur sem stofnun, þannig að það er mjög gott starf
búið að vera í gangi hér á stofnuninni.
Hvernig gengur með ímyndarvinnu fyrir
bráðamóttökuna innan samfélagsins?
Það gengur alveg ágætlega en það hafa komið upp tilfelli hér
sem hafa verið mikið í fjölmiðlum og þá hefur stofnunin fengið
að finna fyrir því á öllum sviðum. Það hefur oft reynst starfsfólki
mjög erfitt. En okkur finnst núna, sérstaklega eftir að við opnuðum
nýja bráðamóttöku, nýja sjúkradeild og fleira að kynningin sem
átti sér stað vera skila sér í meiri jákvæðni hér á svæðinu. Þegar
við opnuðum nýja bráðamóttöku þá buðum við kollegum okkar
á LSH og Selfossi að koma og skoða aðstæðurnar hjá okkur og
kynna sér starfsemina. Það hjálpaði. Það er svo gott að geta
aðeins áttað sig á í hvaða umhverfi kollegar okkar starfa til að
auka skilning á störfum og aðstæðum á hverjum stað fyrir sig.
Við tökum eftir því að við erum að fá meira hrós og jákvæðari
umræðu t.d. á samfélagsmiðlum og í samfélaginu svo að vonandi
er samfélagið að taka eftir því að við erum alltaf tilbúin að bæta
okkur til að þjónusta samfélagið okkar eins og við best getum.
Fólk virðist heldur ekki gera sér almennilega grein fyrir hvað við
getum gert hérna, jafnframt virðist fólk hafa minni biðlund eftir því
að fá þjónustu hér en t.d. á LSH en það hefur aðeins breyst með
bættri aðstöðu. Það er auðveldara að láta fara vel um sig á nýju
bráðamóttökunni.
Hvernig er svo að vinna á nýju bráðamóttökunni?
Vinnan á bráðamóttökunni er dásamleg. Við höfum þurft að fara
í gegnum mikla aðlögun þar sem vinnuaðstæður okkar hafa
breyst mikið til batnaðar. Við erum með mun stærri deild, nýjan
tækjabúnað og nýtt umhverfi en þetta er allt að koma og starfsfólk
er að aðlagast vel. Nú hugsar maður bara hvernig gátum við í öll
þessi ár unnið það sem við gerðum í þeim aðstæðum sem við
vorum í en þar kemur aðlögunarhæfni mannsins í ljós.
Að lokum hjúkrunarfræðingar eru...
þreyttir, hörkuduglegir, ofurmenni, dásamlegir, bestir.
Deildin er eiginlega búin að að vera
í viðbragðsstöðu on/off frá því það
byrjaði að gjósa. Við erum búin að
fá til okkar margt fólk sem hefur
verið að slasa sig þegar það hefur
verið að ganga upp að gosinu, með
öndunarerfiðleika, ofkælingu
og allt mögulegt.
Ásta á endurbættri bráðamóttöku.