Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 22
„Áður en ég lýsi einni vakt þar sem ég starfa langar mig að segja aðeins frá teyminu mínu, en ég starfa hjá Transteymi fullorðinna á Landspítala sem sinnir matsferli og meðferð einstaklinga með kynama. Samkvæmt lögum um kynrænt sjálfræði nr. 80/2019 skal á Landspítala starfa teymi sérfræðinga um kynvitund og breytingu á kyneinkennum, annars vegar fyrir fullorðna og hins vegar fyrir börn. Við sem störfum í teyminu mætum alls konar áskorunum eins og svo margir sem starfa í heilbrigðisþjónustu en okkar helstu áskoranir núna eru þær að það er aukning á nýjum beiðnum í Transteymið og svo er þjónustan sem við veitum á mörgum stöðum innan spítalans, hún er ekki öll á einum stað. Hluti þjónustunnar er til að mynda veitt á Kleppi, svo er teymið einnig með þjónustu í Fossvogi, á Eiríksgötu, á Grensás og á fleiri stöðum. Það stendur núna yfir vinna við að stofna Transmiðstöð og á hún að þjónusta fullorðna og í framtíðinni börn. Þörfum trans fólks á að vera mætt af þverfaglegu teymi á þessari nýju Transmiðstöð og lagt verður upp með teymisvinnu. Við sem komum að þessari vinnu viljum auðvitað notast við gagnreynd vinnubrögð, það getum við gert með skýru verklagi, með því að notast við gagnreyndar heimildir við uppbyggingu þjónustunnar og með því að sækja fyrirlestra og ráðstefnur. Á miðstöðinni verður ekki einungis veitt meðferð heldur á hún líka að sinna fræðsluhlutverki, fyrir þjónustuþega og þeirra fjölskyldur og vini, aðra heilbrigðisstarfsmenn og fyrir almenning. Við leggjum líka upp úr mikilvægi þess að vera í góðum samskiptum við Trans Ísland og Samtökin´78 til að bæta okkar þjónustu. Fyrsti hjúkrunarfræðingurinn í fullu starfi hjá Transteyminu Margt hefur orðið að verki á undanförnum miss- erum; verið er að byggja upp teymið, félagsráðgjafi var ráðinn í fullt starf í október 2022, ég var ráðin í fullt starf í júní á síðasta ári og núna í febrúar kemur heimilislæknir í fullt starf inn í teymið en hún er með sérþekkingu á þjónustu við trans fólk. Í teyminu eru einnig sálfræðingur í 70% stöðu og fleiri sérfræðingar í minni stöðugildum svo sem sérnámslæknir í geðlækningum, tal- meinafræðingur, innkirtlalæknir, lýtalæknir og Va kt in m ín Transteymi fullorðinna veitir kynstaðfestandi þjónustu -Sigríður Jóna Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur Umsjón og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.