Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 23
21Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
fleiri sérfræðingar. Saman vinnum við svo að því að veita kyn-
staðfestandi þjónustu við okkar skjólstæðinga og þess má geta að
við erum í góðu samstarfi við kollega okkar í Transteymi BUGL.
Ég er svo heppin að fá að vera fyrsti hjúkrunarfræðingurinn sem
sinnir Transteyminu í fullu starfi en enginn hjúkrunarfræðingur
hefur verið starfandi áður í skilgreindu hlutfalli hjá Transteyminu.
Þetta hefur verið mjög gefandi og skemmtileg reynsla og mikill
lærdómur. Ég var ráðin í teymið til að vinna þvert á teymið; fyrir
geðsvið, innkirtlalækningar og skurðlækningar og því er starfið
afar fjölbreytt.
Það eru mjög spennandi tímar núna, í febrúar fluttum við starf-
semina frá Kleppi og yfir á Landspítala í Fossvogi, sem er skref
í áttina að því að flytja þjónustuna frá geðsviði, enda er það að
vera „trans“ ekki geðsjúkdómur. Markmiðið er svo einn góðan
veðurdag að flytja þjónustuna frá Landspítala. Búið er að taka
mörg skref í rétta átt og höldum við því ótrauð áfram veginn.
Annasöm vakt hjúkrunarfræðings í Transteymi
Það sem gerir starfið skemmtilegt er að engir tveir dagar er eins.
Þegar þetta er skrifað hef ég vinnuaðstöðu á mörgum stöðum
spítalans; við Eiríksgötu, á Kleppi og í Skaftahlíðinni. Í dag byrja ég
vinnudaginn á Kleppi. Mér finnst gott að vera mætt snemma á vakt
og byrja morguninn á því að fá mér morgunmat við tölvuna þar
sem ég fer yfir tölvupósta teymisins og skilaboð sem hafa borist
í gegnum Heilsuveru. Svo fer ég og heilsa upp á Alexander sem er
félagsráðgjafi teymisins. Við fáum okkur kaffibolla og förum yfir
verkefni dagsins.
Eftir spjallið við Alexander fer ég að bóka nýkomur í teymið. Ég
tek svo stöðuna á þeim sem eru í hormónameðferð, geri beiðnir
í blóðprufur, bið fólk að mæta í blóðprufu og hringi svo nokkur
símtöl.
Því næst mæti ég á fund með verkefnastjóra nýrrar Transmið-
stöðvar til að skipuleggja flutning starfseminnar á nýjan stað. Eftir
það mæti ég í viðtöl með sérnámslækni teymisins og þegar þau
eru afstaðin er fundur með söguþjónustu til að undirbúa flutning
teymisins í Fossvog.
Þá er komið að hádegismat og ég nýti þann tíma til að fara í
Fossvoginn og skoða nýtt húsnæði teymisins sem skartar 5 stjörnu
útsýni því við verðum hátt uppi og sjáum yfir borgina.
Eftir hádegi þarf ég taka nokkur símtöl, meðal annars við kollega
hjá Transteymi BUGL, gott upplýsingaflæði er nauðsynlegt til
að allt gangi upp fyrir skjólstæðingana. Ég undirbý mig því næst
fyrir næsta fjarfund með kollegum í transteymum á meginlandi
Evrópu. Fer svo aftur til baka á Klepp og leiði mánaðarlegan fund
teymisins þar sem allir fagaðilar sem viðkoma teyminu koma
saman og ræða málin. Eftir þann fund er þessum vinnudegi lokið,
miklu var áorkað eins og flesta vinnudaga enda nóg að gera hjá
transteyminu og spennandi tímar fram undan.
Að lokum vil ég koma því á framfæri að það er mjög mikilvægt er
að öll heilbrigðisþjónusta sé kynstaðfestandi sem vísar til þess
að trans fólk á að geta leitað sér heilbrigðisþjónustu án þess að
upplifa fordóma og hræðslu. Virða nafn og fornafn sem fólk kýs
að nota þó að það sé ekki það sama og er skráð í Þjóðskrá.
Svo skora ég öll á að bæta við fornöfnin sín í undirskriftinni sinni
í tölvupósti.
Sigríður Jóna Bjarnadóttir (hún/she).
Vaktin mín