Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 24
Viðtal
22 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
Heimaspítali HSU
Viðtal og myndir: Þórunn Sigurðardóttir
Við heimaspítalann starfa bæði hjúkrunarfræðingar og læknar en
Guðný Stella stofnaði heimaspítala í Gautaborg í Svíþjóð þar sem
hún bæði lærði og starfaði áður en hún flutti aftur heim til Íslands.
Með henni kom hugmyndin að spítalanum þar sem hún taldi
fyrirkomulagið, að þjónusta einstaklinga sem glíma við krefjandi
heilsufarsvandamál í heimahúsi, hentaði einnig í sveitarfélaginu
Árborg. Ásamt Guðnýju Stellu starfa hjúkrunarfræðingarnir
Telma Dröfn Ásmundsdóttir og Ragnheiður Thor Antonsdóttir við
heimaspítalann.
Skipulagningin skipti höfuðmáli
Til að kynna sér heimaspítala fóru nokkrir starfsmenn heilsugæslu
HSU til Gautaborgar og fengu að fylgjast með starfseminni. „Í
maí 2022 fórum við Anna Margrét og Arnar Þór Guðmundsson
yfirlæknir til Svíþjóðar í fjóra daga og fylgdumst með teymunum
til þess að sjá hvernig allt virkaði,“ segir Margrét Björk. Stuttu
eftir heimsóknina til Svíþjóðar byrjaði innleiðing heimaspítalans
á Selfossi en það ferli þurfti að fara í pásu þar sem kom í ljós að
driffjöður verkefnisins, Guðný Stella, var þá orðin barnshafandi.
„Við opnuðum heimaspítalann og tveimur mánuðum seinna fór
hún í fæðingarorlof. Þá ákváðum við að leggja verkefnið niður í
smá tíma, gera nýja verkferla og skipuleggja þetta betur. Um
áramótin kom Guðný Stella aftur til starfa og þá byrjuðum við
þetta af krafti með nýjum ferlum og nýjum áherslum og kynntum
þetta betur fyrir starfsfólki spítalans. Það hefur skilað sér því þetta
hefur farið miklu betur af stað núna. Skipulagningin hafði allt að
segja.“
Reynslumiklir hjúkrunarfræðingar
Margrét Björk er hjúkrunarstjóri heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands, HSU, og hefur starfað við það frá árinu 2021. Hún hóf
störf hjá HSU árið 2017 við deildar- og hjúkrunarstjórn. Eftir útskrift
úr hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri árið 2010 hóf Margrét
hins vegar störf á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri.
Þar var henni hent út í djúpu laugina þar sem hún tók fljótlega við
stöðu hjúkrunarstjóra og starfaði við það í sjö ár. „Ég fór þangað
beint eftir útskrift, var að vinna þar í sex mánuði áður en ég tók við
sem hjúkrunarstjóri. Það var mjög krefjandi en mjög góð reynsla
fyrir þetta starf sem ég er í núna.“ Árið 2019 útskrifaðist hún einnig
með diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
Margrét Björk Ólafsdóttir hjúkrunarstjóri, Anna Margrét Magnúsdóttir aðstoðardeildarstjóri
og Guðný Stella Guðnadóttir, öldrunarlæknir á heilsugæslu HSU
Í byrjun janúar á þessu ári tók til starfa heimaspítali á Selfossi, sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Í forsvari
fyrir spítalann eru þær Guðný Stella Guðnadóttir öldrunarlæknir, Margrét Björk Ólafsdóttir og Anna Margrét
Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingar ásamt fleiri ötulum heilbrigðisstarfsmönnum. Undirrituð fékk að koma í
heimsókn í höfuðstöðvar heimaspítalans sem staðsettar eru á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, HSU,
og grennslaðist fyrir um tildrög spítalans, skjólstæðinga, fyrirkomulag þjónustunnar
og hvernig framtíðin horfir við þeim.
Anna Margrét Magnúsdóttir og Margrét Björk Ólafsdóttir.