Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 30
Viðtal
28 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
koma á deildina í bókaða tíma, ýmist hjá hjúkrunarfræðingi eða
lækni.“ Hulda bætir við að starfsemin á göngudeildinni fari fram
á dagvinnutíma á virkum dögum sem hafi jákvæð áhrif á jafnvægi
milli vinnu og einkalífs hjá starfsfólki deildarinnar.
Oft má lítið út af bregða til að mönnun
sé fullnægjandi
Aðspurð um helstu áskoranir í starfi segir hún að sjúklingum fari
fjölgandi og sífellt fleiri þurfi á þjónustu deildarinnar að halda og
það sé ákveðin áskorun að halda uppi miklum gæðum og tryggja
öryggi í þjónustunni. Hún leggur áherslu á að það skipti miklu
máli að skipulagið sé gott og að mönnun sé fullnægjandi. „Núna
erum við með vel mannaða deild en oft má lítið út af bregða.
Mér finnst mikilvægt að starfsfólkinu líði vel í sínu starfi og gangi
hér sátt út eftir hvern vinnudag. Ég legg því ríka áherslu á að við
hjálpum hvert öðru og bjóðum og biðjum um aðstoð þegar álagið
er þannig,“ segir hún og þá förum við út í aðeins aðra sálma.
Hvernig telur þú að hægt sé að efla sérhæfingu og auka þekkingu
starfsfólks á deildinni?
„Sérhæfing okkar á spítalanum er að einhverju leyti þekkt og
deildir leita til okkar með ýmis mál tengdum hjúkrun þessara
sjúklinga. Við erum ávallt reiðubúin að aðstoða og fá sjúkl-
ingana til okkar eða koma inn á deildir og veita aðstoð. Það
er hægt að mennta sig í hjúkrun þvagfærasjúklinga og er einn
hjúkrunarfræðingur hér á deildinni með slíka menntun frá
Svíþjóð. Um er að ræða tveggja ára fjarnám með einhverri viðveru
á staðnum en þetta nám er m.a. kennt í Svíþjóð og Noregi. Ég veit
að aðrir hjúkrunarfræðingar á deildinni eru að íhuga þetta nám.
Auk þess eru hjúkrunarfræðingarnir duglegir og áhugasamir um
að endurmennta sig og sækja ráðstefnur og fundi erlendis. Við
eigum líka gott samstarf við fagráð þvagfærahjúkrunarfræðinga á
Norðurlöndum,“ útskýrir hún brosandi.
Öflugar göngudeildir geta bætt flæðið í gegnum
spítalann
Að lokum, með hvaða hætti er hægt að efla starfsemi göngudeilda
og hverju myndi það breyta, að þínu mati, fyrir Landspítala að
hafa öflugri göngudeildir? „Það þarf að kynna betur alla starfsemi
göngudeilda því það eru margir sem vita ekki hvað þar fer fram,
það er t.d. hægt að gera með því að fá nemendur í meira mæli
til okkar. Við erum nýbyrjuð að taka á móti hjúkrunarnemum
sem er að reynast mjög vel. Auk þess þurfa göngudeildir, dag- og
legudeildir að vinna meira saman í gegnum allt ferli sjúklingsins,
frá innlögn til útskriftar.
Með öflugum göngudeildum er hægt að styrkja flæði í gegnum
spítalann þannig að sjúklingar þurfi að liggja sem minnst þar
inni. Flæðið þarf að vera markvisst með skýru meðferðar- og
útskriftarplani þannig að hægt sé að útskrifa sjúklinginn á sem
öruggastan og farsælastan hátt. Göngudeild þvagfærasjúkdóma
er einstök með sinni öflugu starfsemi og framþróun í meðferð sem
hefur leitt til þess að legudögum hefur fækkað. Sem dæmi má
nefna sjúklinga með góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli sem fara
í aðgerð á skurðstofu þar sem kirtillinn er heflaður eða skrapaður
og útskrifast svo samdægurs. Áður fyrr lágu þessir sjúklingar inni í
nokkra daga með sískol. Nýlega tókum við upp nýja meðferð með
svokallaðri Rezum tækni fyrir þennan sjúklingahóp, sem eingöngu
fer fram á göngudeildinni og getur komið í staðinn fyrir aðgerðir á
skurðstofum eða létt þeim biðina á biðlistanum. Heitri vatnsgufu
er sprautað inn í blöðruhálskirtilinn í staðbundinni deyfingu,
hann skreppur saman og bætir þannig þvagflæðið. Þessi hópur er
fjölmennur og því langur biðlisti eftir aðgerð og sjúklingarnir oft
með töluverða þvagtregðu. Þeir eru á töflumeðferð, sumir þurfa
ýmist að hafa inniliggjandi þvaglegg eða tappa af sér heima, eru
að fá sýkingar eða önnur vandamál sem þarf að meðhöndla. Hægt
er að framkvæma nokkrar slíkar meðferðir yfir daginn. Þetta eru
mun meiri þægindi fyrir sjúklinginn og hefur færri aukaverkanir en
áður. Þetta er einnig hagkvæmara í rekstri fyrir spítalann og hægt
er að forgangsraða betur aðgerðum inn á skurðstofu sem mega
ekki bíða lengi. Þetta eru spennandi tímar með aukinni fjölbreytni
í meðferðarúrræðum fyrir þennan sjúklingahóp,“ segir Hulda að
endingu. Hún hafði nokkrar mínútur lausar fyrir myndatöku og við
flökkuðum um deildina og tókum nokkrar myndir af henni áður
hún þurfti svo að rjúka á fund.
Nýju meðferðinni er beitt með svokallaðri Rezum tækni.