Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 38
Ritrýnd grein | Peer review
Krefjandi og flókin sorg:
Að lifa af sjálfsvíg dóttur eða sonar
ÚTDRÁTTUR
Tilgangur
Sjálfsvíg eru alþjóðlegt heilbrigðisvandamál og fjórða algengasta dánar-
orsökin í aldurshópnum 15–29 ára. Reynsla foreldra af því að missa son
eða dóttur í sjálfsvígi hefur lítið verið rannsökuð hér á landi. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna reynslu foreldra af því að missa dóttur eða
son í sjálfsvígi og þann stuðning sem þeim stóð til boða í kjölfar þess.
Aðferð
Í þessari fyrirbærafræðilegu rannsókn voru tekin 13 viðtöl við 10 foreldra,
sjö mæður og þrjá feður, sem höfðu misst son eða dóttur á aldrinum 17-37
ára í sjálfsvígi.
Niðurstöður
Fyrir foreldrana var sjálfsvígið krefjandi lífsreynsla og við tók flókin,
langvinn og stöðug sorg. Það höfðu verið erfiðleikar hjá sonum og
dætrum þátttakenda fyrir sjálfsvígið í öllum tilvikum nema einu, svo
sem sjálfsvígshugsanir, sjálfsskaðandi hegðun og tilraunir til sjálfsvígs.
Sjálfsvígið kom samt öllum foreldrunum í opna skjöldu og var þeim mikið
áfall. Við tók doði og þeir áttu erfitt með daglegt líf, misstu matarlyst,
svefn, skammtímaminni, þrek, jafnvægi, jarðtengingu og tengsl við
raunveruleikann. Flóknar tilfinningar komu upp hjá þeim öllum svo sem
sektarkennd og sjálfsásakanir og áfallið kom mikið niður á andlegri og
líkamlegri heilsu þeirra þar sem kvíði, þunglyndi og verkir voru áberandi.
Sorgarúrvinnsla hjá foreldrunum tók langan tíma og stuðningur var af
misjöfnum toga og mikið undir foreldrunum sjálfum komið að sækja sér
stuðning ef hann brást eða þegar frá leið. Áberandi voru vonbrigði gagnvart
heilbrigðiskerfinu að ekki var framkvæmt einhvers konar mat á þörfum
þeirra fyrir stuðning í kjölfar áfallsins.
Ályktun
Af niðurstöðum að dæma er nauðsynlegt að koma upp verkferlum
fyrir hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk heilbrigðiskerfisins
sem styður betur við foreldra sem missa son eða dóttur í sjálfsvígi.
Þeir þurfa einstaklingsbundinn stuðning í sorginni og upplýsingar
um langtímastuðning og úrræði. Heilsugæslan gæti tekið að sér
leiðtogahlutverk á þessu sviði í samráði við viðkomandi aðila.
Lykilorð (5)
Sjálfsvíg, foreldrar, missir, sorg, áföll, fyrirbærafræði.
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
Lítið er um íslenskar rannsóknir á reynslu
og upplifun foreldra sem missa dóttur/
son í sjálfsvígi og geta niðurstöður
rannsóknarinnar nýst til þess að varpa
ljósi á líðan foreldra og aukið skilning
hjúkrunarfræðinga og annarra sem hyggjast
veita þeim sálrænan stuðning.
Mikilvægt er að hlusta á foreldra því það
er þeirra upplifun sem skiptir máli þegar
mótaður er vinnuferill eða gæðavísir til þess
að koma til móts við þá með bættri þjónustu
og úrræðum.
Með aukinni umfjöllun um niðurstöður
þessarar rannsóknar verður vonandi hægt
að bæta þjónustu heilbrigðiskerfisins við
foreldra sem missa son/dóttur í sjálfsvígi.
Hjúkrunarfræðingar og aðrir
heilbrigðisstarfsmenn þurfa að hafa í huga
það mikla álag sem er á heilsu foreldra í
kjölfar þess að missa dóttur/son í sjálfsvígi.
doi: 10.33112/th.100.1.1