Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 39
37
Ritrýnd grein | Peer review
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
Krefjandi lífsreynsla
og flókin sorg:
Að lifa af sjálfsvíg
dóttur eða sonar
INNGANGUR
Sjálfsvíg eru alþjóðlegt lýðheilsuvandamál sem valda tilfinningalegri þjáningu eftirlifenda
(Graves o.fl., 2018). Árlega falla rúmlega 700.000 einstaklingar í öllum aldurshópum fyrir eigin
hendi (Alþjóðaheilbrigðisstofnunin [WHO], 2021) og eru sjálfsvíg í tíunda sæti yfir algengustu
ástæður dauðsfalla í Bandaríkjunum (Murphy o.fl., 2021). Þau eru jafnframt fjórða algengasta
dánarorsök einstaklinga í aldurshópnum 15-29 ára (WHO, 2021). Rík áhersla hefur því verið
lögð á forvarnarstarf til þess að fyrirbyggja og draga úr sjálfsvígum á undanförnum árum og
er það víða yfirlýst markmið innan heilbrigðiskerfisins (Graves o.fl., 2018; Kõlves og De Leo,
2016).
Áhættuþættir sjálfsvíga geta verið margvíslegir. Sjálfsskaðandi hegðun og tilraun til sjálfsvígs
eru stærstu áhættuþættirnir þótt ætlunin sé ekki endilega að taka eigið líf (Olfson o.fl., 2018). Í
doktorsrannsókn Hildar Guðnýjar Ásgeirsdóttur (2019) kom fram að 16% íslenskra karla og 11%
íslenskra kvenna höfðu sögu um sjálfsskaðandi hegðun og voru þátttakendur sem höfðu orðið
fyrir persónulegum áföllum líklegri til að hafa skaðað sig á lífsleiðinni, einkum karlar. Í skýrslu
Embættis landlæknis þar sem sjónum var beint að sjálfsvígshugsunum, sjálfsvígstilraunum,
sjálfsskaða og hugsunum um sjálfsskaða á meðal íslenskra framhaldsskólanema frá árunum
2000 til 2016, kemur fram að hugsanir um sjálfsskaða eru nátengdar hugsunum um sjálfsvíg.
Jafnframt kemur fram að sterkustu sjálfstæðu áhrifaþættirnir fyrir tilraun til sjálfsvígs eru ef
vinur eða einhver nákominn hefur gert tilraun til sjálfsvígs. Aðrir áhrifaþættir eru þunglyndi,
reiði, að hafa verið beittur kynferðisofbeldi og að hafa reykt kannabis um ævina. Lítill
stuðningur foreldra og vina eykur einnig líkurnar á sjálfsvígshugsunum og tilraun til sjálfsvígs
(Ingibjörg Eva Þórisdóttir o.fl., 2018).
Flestir einstaklingar sem glíma við geðræn vandamál falla ekki fyrir eigin hendi (Turecki
og Brent, 2016) en slíkur vandi eykur hins vegar líkurnar á sjálfsvígi (Baldwin o.fl., 2017;
Clapperton o.fl., 2019; Oppong o.fl., 2017; Owusu-Ansah o.fl., 2020). Einstaklingar með
takmarkað stuðningsnet sem glíma við félagsfælni, hafa orðið fyrir einelti, kynferðisofbeldi,
upplifað skyndilegan eða erfiðan missi, eru með langvinna verki eða þjást af offitu, eru í
aukinni hættu á að taka eigið líf (Bryan o.fl., 2017; Campisi o.fl., 2020; Knopf, 2017; Oppong
o.fl., 2017; Turecki og Brent, 2016). Auk þess teljast fíkniefnaneysla, mikil áfengisneysla og
lélegt aðgengi að heilbrigðis- og velferðarþjónustu til áhættuþátta (Clapperton o.fl., 2019;
Rana o.fl., 2017), svo og bág félagsleg staða og lágt menntunarstig (Lorant o.fl., 2018). Ungir
karlmenn eiga frekar á hættu að taka eigið líf í samanburði við konur en þær eru aftur á móti
líklegri til að glíma við sjálfsvígshugsanir og að gera tilraunir til sjálfsvígs (Campisi o.fl., 2020;
Murphy o.fl., 2021; Roh o.fl., 2018).
Sorg er skilgreind sem eðlileg, sálræn og tilfinningaleg viðbrögð við missi. Ekki er um
að ræða tiltekið ástand heldur ákveðið ferli en sorgarviðbrögð og sorgarúrvinnsla eru
einstaklingsbundin og þarfir aðstandenda í kjölfar sjálfsvíga geta þannig verið margvíslegar
(Castelli Dransart, 2017). Sé ekki unnið úr sorginni getur hún komið niður á heilsufari
eftirlifenda og valdið þeim svefnleysi, kvíða og þunglyndi (Entilli o.fl., 2021a). Sorgarviðbrögð
eru einstaklingsbundin og haldast í hendur við það hve sterk tengsl voru á milli þess sem
syrgir og hins látna (Cerel o.fl., 2019; Kawashima og Kawano, 2019; Mughal o.fl., 2021). Vitað
er að sorgarferlið verður iðulega erfiðara og tekur lengri tíma þegar andlát ástvinar ber að
með skyndilegum hætti (Feigelman o.fl., 2018; Jordan, 2020; Mughal o.fl., 2021). Þá getur
munur verið á sorgarferli aðstandenda eftir því hvort um er að ræða ástvinamissi vegna
Höfundar
ELÍN ÁRDÍS BJÖRNSDÓTTIR
útskrifuð með meistaragráðu í heilbrigðis-
vísindum frá Háskólanum á Akureyri,
starfandi deildarstjóri við
Heilsugæslu HSN á Sauðárkróki
SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR
prófessor við Háskólann á Akureyri
SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
prófessor við Háskólann á Akureyri