Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Qupperneq 51
49
Ritrýnd grein | Peer review
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
AÐFERÐ
Rannsóknarsnið
Rannsóknin var lýsandi ferilrannsókn og var gögnum safnað frá
15.11.2018 til 21.03.2019 og ári síðar eða 30.11.2019 til 30.04.2020.
Úrtak og gagnasöfnun
Öllum hjúkrunarfræðinemendum (N=117) við HÍ og HA sem
útskrifuðust vorið 2019 var boðin þátttaka þegar þeir voru í síðustu
námsdvöl á sjúkradeild, þeim sem svöruðu var boðin þátttaka
aftur ári eftir útskrift. Gagna frá nemendum var aflað rafrænt með
forritinu RedCap og voru netföng fengin hjá deildarskrifstofum
háskóladeildanna. Tvær áminningar voru sendar þeim sem ekki
svöruðu.
Mælitæki
Almenn hæfni
Hæfni var metin með matstækinu Hæfni hjúkrunarfræðinga
(IS-NCS- e. Nurse Competence Scale (NCS)) (Meretoja o.fl., 2004).
Það skiptist í 7 hæfniþætti (alls 73 atriði): umönnunarhlutverk
(7 atriði), kennslu- og leiðbeinandahlutverk (16 atriði),
greiningarhlutverk (7 atriði), stjórnun í aðstæðum (8 atriði),
hjúkrunaríhlutanir (10 atriði), trygging gæða (6 atriði) og
starfshlutverk (19 atriði). Hæfnin er metin á 10 cm sjónmats-
kvarða sem merktur er á sitt hvorum enda með 0 (=mjög lítil
hæfni) og 100 (=mjög mikil hæfni) (Meretoja o.fl., 2004). Gildi <25
flokkast sem léleg hæfni, 26 til 50 sem frekar góð hæfni, 51 til 75
sem góð hæfni og 76-100 sem mjög mikil hæfni. Próffræðilegir
eiginleikar NCS hafa reynst fullnægjandi (Flinkman o.fl., 2017;
Meretoja o.fl., 2004). IS-NCS hefur verið notað í þremur rann-
sóknum hérlendis og innri áreiðanleiki heildarlista og undirlista
var á bilinu 0,72-0,98. Nánari lýsingu á þýðingu og hæfniþáttum
er að finna þar (Dóra Björnsdóttir, 2015; Íris Kristjánsdóttir og
Herdís Sveinsdóttir, 2018; Brynja Ingadóttir o.fl., 2019).
Siðferðisstyrkur
Siðferðisstyrkur var metinn með þrem spurningum sem fengnar
voru úr mælitækinu the Nurses’ Moral Courage Scale (Numminen
Tafla 2. Hæfniviðmið B.S.-náms í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri
Hæfniviðmið hjúkrunarfræðináms við Háskóla Íslands Hæfniviðmið hjúkrunarfræðináms við Háskólann á Akureyri
Þekking
Að loknu námi:
1.1 getur nemandi gert grein fyrir margbreytileika mannsins, heilsu og sjúk-
dómum og samspili umhverfis, menningar, náttúru og manns í hnattrænu
samhengi.
1.2 getur nemandi lýst grundvallar kenningum og hugtökum hjúkrunarfræðinnar,
siðareglum hjúkrunarfræðinga og hlutverki hjúkrunarfræðinga í heilbrigðis-
þjónustu.
1.3 hefur nemandi tileinkað sér almenna þekkingu í grunngreinum hugvísinda,
sálar- og félagsfræði og líf- og heilbrigðisvísinda sem hjúkrunarfræði byggir á.
1.4 hefur nemandi öðlast innsýn í hvernig tækni og nýsköpun getur nýst til að
bæta gæði hjúkrunar.
1.5 hefur nemandi þekkingu á mikilvægi þess að tileinka sér nákvæm og vönduð
vinnubrögð til að tryggja eigið öryggi sem og sjúklinga.
1.6 hefur nemandi tileinkað sér fræðileg vinnubrögð og gagnreynda hjúkrunar-
þekkingu, auk skilnings á aðferða- og tölfræði.
Að loknu námi skal nemandi:
• hafa víðtæka þekkingu og skilning á manninum, heilbrigðum og sjúkum og
þekkja mikilvægi heildrænnar hjúkrunar einstaklinga, fjölskyldu og samfélags.
• þekkja uppbyggingu og stjórnskipulag heilbrigðisþjónustunnar, notkun
hennar, þýðingu og mat á árangri.
• þekkja leiðir til þess að rækta sjálfan sig sem persónu og hjúkrunarfræðing.
• hafa vitneskju um nýjustu þekkingu innan hjúkrunarfræði og vera meðvitaður
um mikilvægi rannsókna.
• þekkja undirstöðuatriði leitar-og upplýsingatækni.
Leikni
Að loknu námi getur nemandi:
2.1 greint hjúkrunarþarfir sjúklings, lagt fram rökstudda áætlun um hjúkrunar-
meðferðir, séð til þess að þær séu framkvæmdar og árangur þeirra metinn.
2.2 beitt gagnreyndri hjúkrun sem felur í sér að finna, meta á gagnrýninn hátt
og nýta í klínískum tilgangi, töluleg gögn, rannsóknaniðurstöður og klínískar
leiðbeiningar.
2.3 leitt og stjórnað hjúkrun einstakra sjúklinga og sjúklingahópa á áranguríkan
hátt í samstarfi við aðra innan hjúkrunar og þverfaglega.
2.4 notað helstu tækni og tæki sem notuð eru af hjúkrunarfræðingum við
greiningu og meðferð.
2.5 beitt gagnrýnni og skapandi hugsun sem leitt getur til nýjunga og umbóta
í hjúkrun sjúklinga.
2.6 beitt fræðilegum vinnubrögðum þar sem honum tekst að greina afmarkað við-
fangsefni hjúkrunar, afla gildra heimilda um það, greina þær og nýta og leggja
fram gagnrýna samantekt um efnið.
Að loknu námi skal nemandi:
• vera fær um öguð og nákvæm vinnubrögð.
• geta lagt sjálfstætt mat á ástand, þarfir og viðbrögð skjólstæðinga og tekið
rökstuddar, klínískar ákvarðanir byggðar á fræðilegri þekkingu.
• vera fær um að setja markmið, meta fræðsluþarfir, fræða einstaklinga og hópa
og meta árangur fræðslu.
• geta greint hvenær þörf er á upplýsingum og hafa færni til að finna þær, meta
áreiðanleika þeirra og nýta á viðeigandi hátt.
• geta notað viðeigandi tækja-tækni-og hugbúnað í námi og starfi.
• geta nýtt sér viðurkennd gagnasöfn og upplýsingalindir á heilbrigðisvísinda-
sviði.
• geta skráð hjúkrun á kerfisbundinn hátt eftir ákveðnum flokkunarkerfum
og fylgt henni eftir.
• geta ígrundað á gagnrýninn máta eigin verk og viðbrögð.
Hæfni
Að loknu námi:
3.1 getur nemandi sett fram hjúkrunaráætlun og veitt gagnreynda hjúkrun á
öruggan og árangursríkan hátt, sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
3.2 getur nemandi skipulagt, forgangsraðað og stjórnað hjúkrun með siðferðilegri,
hnattrænni, menningarnæmri og sjálfbærri nálgun.
3.3 hefur nemandi tileinkað sér fagvitund á sviði hjúkrunar, sem birtist í hlutverki
hans sem forsvarsmaður sjúklings og talsmaður hjúkrunar í þverfaglegu sam-
starfi.
3.4 getur nemandi tekið virkan þátt í þróun hjúkrunar í samfélaginu, uppbyggingu
heilbrigðisþjónustunnar, stefnumótun heilbrigðisyfirvalda og þróun fagfélaga
í hjúkrun.
3.5 getur nemandi tileinkað sér nýja þekkingu og aðferðafræði til eigin starfsþró-
unar, leiðsagnar nemenda og samstarfsfólks, og þróunar hjúkrunar.
3.6 getur nemandi tekið virkan þátt í rannsókna- og þróunarverkefnum, inn-
leiðingu nýjunga og umbótastarfi á sviði heilbrigðisþjónustu.
Að loknu námi skal nemandi:
• vera fær um að styrkja og vera talsmaður skjólstæðinga sinna og aðstand-
enda þeirra.
• hafa þróað með sér sjálfsöryggi, sjálfstæði, innsæi, heilbrigða dómgreind,
rökvísi, víðsýni og meðvitund um eigin viðhorf, styrkleika og veikleika.
• vera fær um að byggja starf sitt á gagnreyndri þekkingu.
• hafa þróað með sér hæfni og sjálfstæð vinnubrögð fyrir frekara nám innan
fræðigreinar.
• geta tekið virkan þátt í þverfaglegu samstarfi, miðlað reynslu sinni, hug-
myndum sínum og kunnáttu og leitt, skipulagt og stjórnað verkhópum
innan hjúkrunar.
• vera fær um að túlka og kynna fræðileg atriði og rannsóknaniðurstöður í
hjúkrunarfræði og tengdum fræðigreinum.
• vera fær um að taka siðferðislega ábyrgð og eiga í eflandi samskiptum.
Heimildir: Kennsluskrá Háskóla Íslands fyrir kennsluárið 2022–2023 (https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namsleid&id=820256_20226&kennsluar=2022#
Mmarkmid) og Náms og kennsluskrá Háskólans á Akureyri 2022 – 2023 (https://ugla.unak.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namsleid&id=640050_20226
&kennsluar=2022#Mmarkmid)