Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 54
52 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
á meðaltalssvörum á IS-NCS og undirkvörðum IS-NCS
(Mann-Whitney U) út frá aldri, sjálfmetinni frammistöðu, reynslu
af heilbrigðisþjónustu, hvort hjúkrun væri fyrsta val, áætlana um
framhaldsnám, um annað nám eða starf utan heilbrigðisþjónustu.
Sjálfmetinn siðferðisstyrkur var að meðaltali 76,0 (sf=17,3), öryggi í
að fylgja siðareglum 75,5 (sf=14,8) og öryggi í að hjúkra sjúklingum
með ólíkan menningarlegan bakgrunn 69,3 (sf=17,9) (tafla 3).
Hæfni hjúkrunarfræðinemenda
Hjúkrunarfræðinemendur mátu heildarhæfni sína að meðaltali
69,1 (sf=11,5) mesta í hæfniþáttunum greiningarhlutverk (M=75,6;
sf=14,6) og umönnunarhlutverk (M=75,2; sf=10,6) og minnsta
í kennslu- og leiðbeiningahlutverki (M=66,3; sf=15,4). Ári eftir
útskrift mátu þeir hæfnina mesta í umönnunarhlutverki (M=78,2;
sf=11,0) og minnsta í tryggingu gæða (M=63,9; sf=14,6) (sjá töflu
4). Mat þeirra á eigin heildarhæfni og hæfniþáttum breyttist ekki
marktækt á þessu eina ári (Related-Samples Wilcoxon Signed
Rank test). Í töflu 5 sést að í síðustu námsdvöl mátu þátttakendur
hæfni sína mesta í því að þekkja eigin takmörk, forgangsraða
störfum miðað við aðstæður og að greina þarfir sjúklinga fyrir
tilfinningalegan stuðning. Minnsta mátu þeir hæfnina í að hafa
umsjón með leiðsögn hjúkrunarnemenda á deild, umsjón
með aðlögun nýráðinna og að taka þátt í að þróa þverfaglegar
verklagsreglur. Ári eftir útskrift mátu þátttakendur hæfnina mesta
í að skipuleggja hjúkrun sjúklinga í samræmi við þarfir þeirra, að
greina þarfir sjúklinga fyrir tilfinningalegan stuðning og aðlaga
hjúkrunaráætlun að þörfum einstaklingsins.
Námsumhverfi hjúkrunarfræðinemenda í þeirra síðustu klínísku
námsdvöl
Nemendur voru frekar sammála því að stjórnarhættir deildar-
stjóra, hjúkrun á deildinni og innihald samskipta við klínískan
kennara væri gott, en voru hvorki né sammála gæðum
kennslufræðilegs umhverfis (tafla 3).
Í heild töldu nemendur hæfni kennara góða, besta í að hvetja
til gagnrýninnar hugsunar og þar á eftir við að hvetja nemendur
til að leita sér nýrrar þekkingar. Aðspurðir sögðust 36 (55%)
nemendur hafa verið úthlutað klínískum kennara sem tók þátt í
leiðsögn þeirra. Nemendur voru almennt frekar sammála um að
samstarf við kennara hafi verið gott, mest sammála því að auðvelt
væri að vinna með kennaranum og að hann brygðist fljótt við
beiðnum um samvinnu en síst sammála því að leiðsögnin væri
einstaklingsbundin leiðbeining frá kennaranum.
Langflestir nemendur, eða 89,6%-100%, sem svöruðu spurningum
um ánægju með námsdvöl og ánægju með námið sjálft voru
ánægðir eða mjög ánægðir. Ánægjan var mest með hjúkrunar-
fræðinámið í heild og minnst með kynningu á deild.
Marktæk fylgni IS-NCS og hæfniþáttanna sjö við bakgrunnsbreytur,
siðferðilega hæfni, siðferðisstyrk og námsumhverfisbreytur
Í töflu 6 má sjá fylgni (Spearmanʹs rho) heildarkvarða og undir-
kvarða IS-NCS við aldur, spurningar um siðferðisstyrk, CLES
og undirkvarða, ERNT, SKN ásamt marktækri fylgni við
staðhæfingar þessara kvarða. Bakgrunnsbreytur, og aðrar náms-
umhverfisbreytur en þær sem koma fram í töflunni, sýndu ekki
marktæka fylgni við hæfnina.
Almennt er fylgnin lág eða meðal (r á bilinu 0,01 til 0,596).
Marktæk neikvæð fylgni var á milli aldurs og hæfniþáttanna
hjúkrunaríhlutanir og trygging gæða. Marktæk jákvæð fylgni
var á milli siðferðisstyrks og öryggis í að hjúkra í samræmi
við siðareglur hjúkrunarfræðinga við heildarhæfni og alla
hæfniþættina og á milli öryggis í að hjúkra sjúklingum með ólíkan
menningarbakgrunn við heildarhæfni og alla hæfniþætti utan
kennslu- og leiðbeinandahlutverk og Stjórnunar í aðstæðum.
Af kvörðum sem mældu námsumhverfi var marktæk fylgni á
milli undirþáttar CLES–Hjúkrun á deildinni við heildarhæfni og
alla hæfniþættina utan Umönnunarhlutverk og á milli ERNT við
heildarhæfni og hæfniþættina trygging gæða og starfshlutverk.
Í töflunni sjást jafnframt undirstaðhæfingar kvarða sem höfðu
marktæka fylgni við hæfina. Sjá má að oftast er jákvæð fylgni
einhverra námsumhverfibreyta við heildarhæfni og Starfshlutverk.
UMRÆÐA
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að nemendur séu sáttir
við námsumhverfi sitt. Þeir mátu hæfni sína almennt góða og
heildarhæfni ásamt hæfni í undirþáttunum Greiningarhlutverk,
hjúkrunaríhlutanir og stjórnun í aðstæðum meira en nemendur
í Finnlandi, Þýskalandi, Írlandi, Litháen og Spáni og hæfnina
í hinum fjórum þáttunum næstbesta (Kajander-Unkuri, o.fl.,
2021). Ekki var marktækur munur á mati nemendanna á hæfni
sinni ári eftir útskrift samanborið við hæfni á lokaári. Í saman-
burði við mat íslenskra hjúkrunarfræðinga, flestra með vel yfir
fimm ára starfsaldur, starfandi á skurðlækningasviði Landspítala,
á bráðadeildum á landsbyggðinni og á bráðadeild Landspítala
meta þátttakendur rannsóknarinnar heildarhæfni sína almennt
lægri (Dóra Björnsdóttir, 2015; Íris Kristjánsdóttir og Herdís
Sveinsdóttir, 2018; Brynja Ingadóttir o.fl., 2019). Þær niðurstöður
eru vísbending um að þátttakendur þessarar rannsóknar séu
raunhæfir í mati sínu. Þá eru líka þau verkefni sem þátttakendur
meta hæfni sína mesta og minnsta í, merki um raunhæfni matsins.
Skýr skilaboð eru um að hjúkrun á deild, þ.e. að hún sé ein-
staklingsmiðuð og upplýsingaflæði og skráning góð, hafi áhrif á
Hæfni hjúkrunarfræðinemenda á lokaári og ári eftir útskrift
Tafla 4. Mat hjúkrunarfræðinema í síðustu klínísku
námsdvöl í hjúkrunarnámi og ári eftir útskrift
á eigin hæfni
Hjúkrunarfræði-
nemendur
Hjúkrunarfræðingar
ári eftir útskrift
Mat á eigin hæfni Mat á eigin hæfni
Hæfniþættir N M (sf)# N M (sf)#
Umönnunarhlutverk
(7 atriði)
63 75,2 (10,6) 28 78,2 (11,0)
Greiningarhlutverk
(7 atriði)
52 75,6 (14,6) 27 75,6 (13,9)
Hjúkrunaríhlutanir
(10 atriði)
49 68,3 (13,2) 27 69,4 (12,8)
Starfshlutverk
(19 atriði)
49 66,6 (12,7) 27 65,5 (13,4)
Stjórnun í aðstæðum
(8 atriði)
47 71,9 (14,0) 27 70,1 (10,4)
Kennslu- og leiðbein-
andahlutverk
(16 atriði)
55 66,3 (15,4) 27 64,9 (18,4)
Trygging gæða
(6 atriði)
46 66,9 (16,5) 27 63,9 (14,6)
Heildarhæfni 53 69,1 (11,5) 27 68,5 (12,3)
M=Meðaltal; sf=staðalfrávik; Mat á hæfni (valmöguleikar frá 0=mjög lítil hæfni til
10=mjög mikil hæfni).