Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 65

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 65
63 Ritrýnd grein | Peer review Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 UMRÆÐUR Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða mat íslenskra unglinga á gæðum þeirrar kennslu um kynheilbrigði sem þeir höfðu fengið í gegnum skólagöngu sína út frá kennsluháttum, fræðsluþörfum og kynferðislegri sjálfsvirðingu. Mat íslenskra unglinga er ekki mjög jákvætt því aðeins um þriðjungur þeirra sem svöruðu spurningunni voru sammála því að hafa fengið góða kennslu um kynheilbrigði. Þegar viðhorf þátttakenda voru skoðuð til gæða kennslu um kynheilbrigði út frá kennsluháttum mátti sjá töluverðan mun milli hópa. Þeir sem töldu hana vera góða voru marktækt líklegri til að nefna fleiri kennsluaðferðir heldur en þeir sem töldu hana síðri. Þeir nemendur sem töldu kennslu vera góða voru einnig mun líklegri til að finnast kennsluaðilinn hafa komið efninu vel til skila heldur en þeir sem töldu hana síðri. Átti þetta bæði við um nemendur í grunn- og framhaldsskóla og var munurinn marktækur fyrir bæði skólastig. Fyrsta tilgáta rannsóknar um að munur væri á milli þeirra sem telja kennslu um kynheilbrigði góða samanborið við þá sem telja hana síður góða eftir kennsluháttum var þar af leiðandi studd. Þessar niðurstöður eru í samræmi við bæði erlendar og íslenskar rannsóknir sem hafa sýnt fram á að unglingar telja fjölbreytta kennslu og menntaðan kennara, sem er opinskár og fordómalaus, einkennandi þætti fyrir góða kennslu um kynheilbrigði (Astle o.fl., 2021; Corcoran o.fl., 2020; Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir o.fl., 2019). Rannsóknir hafa einnig bent á jákvæðan árangur fjölbreyttra kennsluaðferða á þekkingu og viðhorf nemenda um kynheilbrigði og kynhegðun (Chi o.fl., 2015; Sóley S. Bender og Álfheiður Freyja Friðbjarnardóttir, 2015). Nemendur sem töldu kennslu um kynheilbrigði hafa verið góða voru jafnframt líklegri til að telja að hún hefði komið til móts við fræðsluþarfir þeirra, þeir fengið góð svör við sínum spurningum og góðar upplýsingar um getnaðarvarnir og kynsjúkdóma samanborið við þá sem töldu hana síðri. Þessar niðurstöður styðja tilgátu tvö um að munur sé á viðhorfum nemenda sem telja kennslu um kynheilbrigði góða samanborið við þá sem telja hana síðri varðandi það hvort hún hafi uppfyllt fræðsluþarfir þeirra. Rannsóknir hafa bent á að ef kennslan kemur ekki til móts við fræðsluþarfir unglinga eru þeir líklegir til að sækja sér þekkingu annars staðar, til dæmis á Internetinu (Nelson o.fl., 2019; Pingel o.fl., 2013). Aftur á móti er erfitt að vera fullviss um að upplýsingar þaðan séu áreiðanlegar, hlutlausar og fordómalausar (Pingel o.fl., 2013). Þar af leiðandi er jákvætt að meirihluti telji kennslu hafa komið til móts við þeirra fræðsluþarfir og þeir telji sig hafa fengið góð svör við spurningum sínum. Þá hafa rannsóknir oft sýnt fram á að kennsla um kynheilbrigði eykur notkun getnaðarvarna og fækkar kynsjúkdómasmitum (Jaramillo o.fl., 2017; Reis o.fl., 2011). Því er einnig jákvætt að sjá að meirihluti þeirra sem töldu kennsluna hafa verið góða voru sammála því að hafa fengið góðar upplýsingar um hvort tveggja. Fullyrðingar sem voru skoðaðar um kynferðislega sjálfsvirðingu voru fimm. Tvær þeirra voru marktækar og sú þriðja nálægt því að vera marktæk, en nemendur sem töldu kennslu um kynheilbrigði hafa verið góða voru líklegri til að vera sammála þeim fullyrðingum. Aðeins var marktækur munur milli þeirra sem töldu kennsluna vera góða samanborið við þá sem töldu hana síðri að því er varðar eftirfarandi atriði: „Ég á auðvelt með að standa með sjálfri/u/um mér þegar setja þarf mörk í kynlífi“ og „Ég er óhrædd/tt/ur að standa á mínu ef kynlífsfélagi þrýstir á mig“. Þar af leiðandi var þriðja tilgátan að takmörkuðu leyti studd um að munur væri á viðhorfum nemenda sem telja kennslu um kynheilbrigði hafa verið góða samanborið við þá sem telja hana síður góða út frá kynferðislegri sjálfsvirðingu. Þessar niðurstöður sýna að ekki hefur náðst nægilega góður árangur á þáttum sem varða jákvæðar hliðar kynverundar sem skipta miklu máli í sambandi við að takast á við ýmsar aðstæður og að taka góðar ákvarðanir um kynlíf. Fræðileg samantekt frá árinu 2013 benti til þess að kynfræðsla þar sem áhersla var lögð á jákvæðar hliðar kynverundar leiddi til jákvæðs árangurs, til dæmis aukna smokkanotkun (Anderson, 2013). Þá skipta áherslur kennslunnar máli en mikilvægi þess mátti sjá í rannsókn Nurgitz o.fl. (2021) sem skoðaði kennslu um kynheilbrigði og áhrif hennar á kynferðislegt sjálfstraust og sjálfstrú. Niðurstöður hennar sýndu að gæði kennslu, sem voru meðal annars skilgreind út frá efnisþáttum hennar, hæfni kennsluaðila, aukinni þekkingu og bættum viðhorfum nemenda, hafði jákvæð áhrif á kynferðislegt sjálfstraust og sjálfstrú nemenda sem hafði svo í kjölfarið jákvæð áhrif á kynferðislega ánægju þeirra. Sterk sjálfsvirðing sem og hæfnin til að standa með sjálfum sér og sínum ákvörðunum hefur mikil áhrif á vellíðan einstaklings, ekki síst hvað viðkemur kynheilbrigði hans (Anderson, 2013; Haider og Burfat, 2018). Miðað við niðurstöður þessarar rannsóknar þarf í kennslu um kynheilbrigði hér á landi að leggja meiri áherslu á þessa þætti. Síðustu ár hefur þörfin fyrir alhliða kennslu um kynheilbrigði aukist verulega og er umræðan mun opnari en áður um þætti eins og kynferðislegt ofbeldi, kynvitund og fjölbreytileika. Lögð hefur verið áhersla á að börn og unglingar hafi greiðan aðgang að gagnreyndum upplýsingum um kynheilbrigði (WHO og BZgA, 2010). Skoðanir og óskir barna og unglinga á því hvernig kennslu skuli vera háttað eru ekki síður mikilvægar og bæði Alþjóðaheilbrigðistofnunin og Miðstöð um kynfræðslu í Evrópu hafa bent á að með því að virða óskir þeirra og þarfir væri hægt að auka gæði hennar (WHO og BZgA, 2010). Ef kennsla uppfyllir ekki þarfir unglinganna og þeir tengja ekki við efnistök hennar eru þeir ólíklegri til að vera virkir þátttakendur og telja hana ekki hafa góð áhrif á kynhegðun sína (Harris o.fl., 2021; Mckee o.fl., 2014). Þar af leiðandi er nauðsynlegt að taka tillit til viðhorfa þeirra. Unglingar víða í heiminum hafa í mörg ár kallað eftir betri og fjölbreyttari kennslu um kynheilbrigði en þrátt fyrir mikinn áhuga þeirra þá virðist lítið hlustað á þá (Bauer o.fl., 2020; Harris o.fl., 2021; Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir o.fl., 2019; Lóa Guðrún Gísladóttir o.fl., 2020). Mikilvægt er að bæta úr því. p<0,05* a=væntitíðni undir 5 er ekki til staðar í meira en 20% reita Tafla 5. Framhald Ekki góð kynfræðsla Góð kyn- fræðsla Kí- kvaðratᵃ df p- gildi N n % n % Óhrædd/tt/ ur að standa á sínu ef kynlífsfélagi þrýstir á 218 Mjög ósammála 7 5 5,0 2 1,7 10,713 4 0,030* Frekar ósammála 16 12 11,9 4 3,4 Hvorki né 38 21 20,8 17 14,5 Frekar sammála 67 27 26,7 40 34,2 Mjög sammála 90 36 35,6 54 46,2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.