Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 72

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 72
70 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 Atvikaskráning tengd skurðaðgerðum úrvinnsluna og sjái að skráningin leiði til öruggara umhverfis fyrir sjúklingana (Hong og Li, 2017; Liukka o.fl., 2018). Af áðurnefndu er ljóst að öryggismenning endurspeglast meðal annars í því hvernig unnið er með atvik og hvernig gögnin eru nýtt til lærdóms og áhættugreiningar og þannig má efla öryggi í heilbrigðiskerfinu. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar hér á landi þar sem gögn úr atvikaskráningu eru skoðuð. Teljum við mikilvægt að bæta úr því til að auka innsýn í það hvernig vinna má að úrbótum því tengdu og stuðla þar með að bættu öryggi og framþróun í þjónustunni. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á skráningu óvæntra atvika sem tengdust skurðaðgerðum á völdum deildum á Landspítala á árunum 2018–2020. Frekara markmið rannsóknarinnar var að flokka atvikin eftir deildum, mánuðum og árum og kanna hvort fagfólk kom með tillögur að leiðum til úrbóta sem gætu komið í veg fyrir að atvik endurtækju sig. Einnig að greina helstu flokka skráðra atvika sem tengjast skurðaðgerðum sérstaklega og hvort atvikin væru skráð í rétta flokka eftir skilgreiningum í atvikaskráningarkerfi Landspítala. AÐFERÐ Í rannsókninni var notuð megindleg lýsandi aðferðafræði. Úrtak rannsóknar Úrtakið fól í sér öll skráð atvik á skurðstofum, vöknunardeildum og dagdeildum skurðlækninga á árunum 2018–2020 en tilgreindar deildir komu að undirbúningi sjúklings fyrir aðgerð, aðgerðinni sjálfri og meðferðinni fyrst eftir aðgerð. Deildir í úrtaki voru kvenlækninga- deild 21A, dagdeild 13D, dagdeild A5, skurð-/svæfingadeild 12CD, skurð-/svæfingadeild E5, skurðstofur kvennadeildar 23A, vöknunar- deild 12A og vöknunardeild E6. Ekki var talið unnt að nýta gögn frá legudeildum eða gjörgæsludeildum, sem einnig undirbúa minnihluta sjúklinga til aðgerðar, þar sem erfitt yrði að greina atvik tengd skurðaðgerðum frá öðrum atvikum. Mælitæki Núverandi atvikaskráningarkerfi á Landspítala er einfalt skráningarkerfi sem inniheldur tólf flokka (Landspítali, 2018a), svo sem atvik tengd tækjabúnaði og atvik tengd lyfjameðferð, sjá töflu 1. Til að fá betri mynd af algengustu flokkum atvika voru þau flokkuð nánar í undirflokka í þrjá af tólf aðalflokkum. Undirflokkarnir sem koma fyrir í þessari rannsókn eru sýndir í töflu 2. Atvikaskráningarkerfið inniheldur einnig flokkun á alvarleikastigum atvika (Landspítali, 2017), sjá töflu 3. Framkvæmd Hagdeild Landspítala sótti gögn úr atvikagagnagrunni sjúklinga og sendi þau fyrsta höfundi í læstu excel-skjali. Göngin voru öll ópersónugreinanleg. Í gögnunum kom fram lýsing á atviki, staðsetning atviks (deild), dagsetning og tími sem atvikið átti sér stað sem og atvikaflokkur. Þá voru atvikin flokkuð í þrjá flokka eftir alvarleikastigi og skráð var hvort úrvinnslu atvikanna væri lokið eða ekki. Atvikin voru bæði skráð á tölulegu formi en einnig var frjáls texti við hvert atvik fyrir sig þar sem hægt var að koma með tillögur að úrbótum. Gögnin voru lesin yfir, gaumgæfð og búin til ný gagnasöfn. Þar sem í ljós kom að skráning atvikanna var ekki nákvæm út frá skilgreiningum í atvikaskráningarkerfi Landspítala, var atvikunum raðað í rétta flokka eftir skilgreiningunum. Gagnagreining Gerð var lýsandi gagnagreining. Fjöldi atvika eftir atvikaflokkum var talin. Talið hversu oft var komið fram með tillögur til úrbóta. Rangskráning skráðra atvika í atvikaflokka sem og fjöldi atvika í undirflokkum var talin. Farið var yfir alvarleikastig atvikanna (tafla 3) og staða úrvinnslu var skráð. Niðurstöðurnar voru settar fram í prósentum og var varpað í skífu- og súlurit til aukins skýrleika. Að lokum voru gögnin greind með hliðsjón af því hvort fagfólk skrifaði nánari lýsingu á atviki, hvers vegna fagfólk taldi að það hefði gerst, hver viðbrögð við atviki voru og hvort fagfólk kom með tillögur til úrbóta. Siðfræði Siðanefnd Landspítala veitti heimild til vinnslu upplýsinga úr atvikaskrá Landspítala (mál nr. 9/2021 hjá nefndinni). NIÐURSTÖÐUR Árið 2018 voru 463 atvik skráð á umræddum deildum en 332 bæði árin 2019 og 2020. Skráð atvik voru fleiri 2018 en 2020 á öllum deildum nema dagdeild 13D var með færri atvik 2018 en 2020. Skráðum atvikum á dagdeild A5 fækkaði á milli ára en 2018 voru skráð 82 atvik en 20 árið 2019 og 16 árið 2020 (mynd 1). Mynd 2 sýnir að sveiflur voru í fjölda skráninga á milli mánaða og ára. Fæst atvik voru skráð í júlí, ágúst og desember eða um 6%. Flest atvik voru hins vegar skráð í janúar og febrúar um 12%. Mynd 1. Heildarfjöldi skráðra atvika eir deildum á árunum 2018–2020.                                                                              Mynd 2. Heildarfjöldi skráðra atvika eir eir mánuðum og árum.                             
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.