Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 74

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 74
72 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 Í febrúar 2021 var úrvinnslu rúmlega 10% skráðra atvika enn ólokið fyrir árin 2019 og 2020 en í um 4% tilfella var úrvinnslu ólokið fyrir árið 2018. Samkvæmt gæðaskjali Landspítala á úrbótum að vera lokið innan 30 daga í atvikum af flokki 1. Á flestum deildunum var komið með tillögur til úrbóta, þ.e. í 60% til rúmlega 80% tilfella. Ekki var um staðlaðar tillögur að ræða heldur gat fagfólk komið með hugmyndir að úrbótum í frjálsum texta. Við greiningu á frjálsum texta kom í ljós að algengast var, eða í 76 tilfellum (7%), að fagfólk benti á að bætt samskipti gætu komið í veg fyrir að atvik endurtækju sig. Einnig var minnst á í 57 tilfellum (4%), að minna álag á fagfólk og betri mönnun gæti komið í veg fyrir endurtekningu atvika og í 33 tilfellum (3%) var bent á að með bættri skráningu væri hægt að koma í veg fyrir atvik af sama tagi. Algengast var að skráð væri að bætt samskipti gætu stuðlað að færri atvikum á skurðdeild kvenna 23A og næst á eftir komu skurð-/ svæfingadeild E5 og kvenlækningadeild 21A. Oftast var minnst á að minna álag og/eða bætt mönnun gæti stuðlað að færri atvikum á kvenlækningadeild 21A og vöknun E6. Þessar deildir skáru sig frá öðrum deildum. UMRÆÐA Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að talsvert af óvæntum atvikum tengjast skurðaðgerðum á Landspítala. Atvikum á deildum í úrtakinu fækkaði á milli ára á meðan heildarfjöldi skráðra atvika á Landspítala var svipaður. Þannig voru atvik á þessum deildum 11% af heildarfjölda atvika á Landspítala árið 2018, 8% árið 2019 og 5% árið 2020. Hins vegar fækkaði aðgerðum einnig á milli áranna 2019 og 2020. Árið 2018 voru framkvæmdar 15.152 skurðaðgerðir, 15.354 árið 2019 en 13.455 árið 2020. Þrátt fyrir að skráðum atvikum fækkaði á milli ára skal ítrekað að ekki eru öll atvik skráð, þannig að ekki er hægt að draga ályktanir út frá þessum tölum þó að þær gefi ákveðna vísbendingu (Fathi o.fl., 2017; Halperin og Bronshtein, 2019; Rodziewicz og Hipskind, 2020; Soydemir o.fl., 2017). Aðgengileiki og gott notendaviðmót atvikaskráningarkerfis eykur líkur á að fagfólk skrái atvik. Eins að það sjái tilgang með skráningunni. Mikilvægt er að fagfólk sjái að skráningin leiði til umbóta og dragi úr áhættu fyrir sjúklingana. Það skiptir máli að stjórnendur gangi fram með fordæmi og að virk umræða eigi sér stað um atvikin (Katz o.fl., 2020; Liukka o.fl., 2018; Rodziewicz og Hipskind, 2020). Sömuleiðis er vitað að mikið vinnuálag og tímaskortur er hindrun fyrir skráningu atvika (Fathi o.fl., 2017; Halperin og Bronshtein, 2019; Hong og Li, 2017). Í frjálsa textanum í atvikaskráningarkerfinu kom á nokkrum stöðum fram að atvikið hefði ekki verið skráð strax eftir að það gerðist vegna tímaskorts. Einnig kom fram að úrvinnslu um 10% skráðra atvika frá árinu 2019 og 2020 var enn ólokið sem bendir mögulega til að stjórnendur þurfi meiri tíma til að sinna þessum málaflokki. Niðurstöðurnar sýna að fjöldi skráninga á óvæntum atvikum er misjafn milli deilda en flest atvik eru skráð á skurð-/ svæfingadeild E5 og síðan á kvenlækningadeild 21A en fæst atvik eru skráð á dagdeild 13D. Erfitt getur verið að bera saman deildir vegna mismunandi starfsemi en hugsanlega getur þessi munur endurspeglað mismunandi öryggismenningu og viðhorf stjórnenda til gæðastjórnunar. Samkvæmt rannsóknum hefur úrvinnsla atvika og endurgjöf til starfsfólks sem og jákvætt viðhorf stjórnenda til öryggismála hvetjandi áhrif á að fagfólk skrái atvik (Liukka o.fl., 2018; Farag o.fl., 2018). Einnig er munur á fjölda skráðra atvika milli mánaða þar sem fæst atvik eru yfir hásumarleyfistímann, júlí og ágúst, og einnig í desember. Skýring á þessu getur að einhverju leyti verið vegna færri valaðgerða í þessum mánuðum. Eins eru færri starfsmenn við störf á leyfistíma, afleysingastarfsmenn, aukið vinnuálag og minni tími til að skrá. Algengustu atvikin sem skráð voru í þessu úrtaki voru atvik tengd meðferð/rannsókn, tækjabúnaði og lyfjameðferð. Af atvikum tengdum meðferð/rannsókn voru mörg atvik skráð vegna aðgerða sem var frestað árið 2018 en færri árin 2019 og 2020. Munur var á milli starfsstöðva á því hvort það var skráð sem atvik að aðgerð væri frestað eða ekki. Nánast öll atvik sem skráð voru vegna aðgerða sem var frestað voru í Fossvogi. Meiri bráðaþjónusta er í Fossvogi sem getur skýrt mismuninn að einhverju leyti en hugsanlega getur menningarmunur milli starfsstöðva verið skýring. Eins er hægt að skrá frestun aðgerða sem frávik í Orbit-kerfinu og í lok árs 2018 var gefið út gæðaskjal um að allar frestanir á aðgerð skuli vera skráðar þar (Landspítali, 2018) en greinilegt er að fagfólk skráir frestun aðgerða ekki á sama stað. Áhugavert væri að vita hvers vegna aðgerðum er frestað en í núverandi atvikaskráningarkerfi er ekki boðið upp á þá skýringu. Mikilvægt er að samræma skráningu atvika og skilgreina vel hvaða atvik á að skrá. Leggja þarf áherslu á að vanda vel skráningarnar (Hammoudi o.fl., 2017). Talið er að ef fagfólk er ekki öruggt um hvaða atvik eigi að skrá geti það leitt til vanskráningar (Fagerström o.fl., 2018; Rodziewicz og Hipskind, 2020). Rannsóknir hafa einnig sýnt að tímaleysi og flókið skráningarkerfi geti hamlað skráningu (Hammoudi o.fl., 2017; Soydemir o.fl., 2017). Samkvæmt íslenskri rannsókn sem gerð var á öryggi sjúklinga á skurðstofu á Landspítalanum árið 2009 kom í ljós að skurðhjúkrunarfræðingar voru bæði tortryggnir gagnvart atvikaskráningu í miðlægan gagnagrunn og vissu lítið um form og tilgang atvikaskráningar (Herdís Alfreðsdóttir og Kristín Björnsdóttir, 2009). Hins vegar getur þessi afstaða verið breytt í dag. Algengt er að atvik gerist þrátt fyrir að til séu verklagsreglur og gátlistar, t.d. voru mörg atvik skráð um að undirbúningur sjúklings fyrir aðgerð væri ekki samkvæmt verklagi. Góðar verklagsreglur eru til um undirbúning sjúklinga fyrir aðgerð á Landspítala en samt verða mörg atvik vegna frávika frá þeim. Af því má draga þá ályktun að ekki sé nógu mikil áhersla lögð á að fylgja verklagsreglum, þær of flóknar, tafsamar eða ekki nógu aðgengilegar. Rannsóknir hafa sýnt að í starfsumhverfi þar sem áreiti er mikið aukast líkur á mistökum (Huang o.fl., 2018). Ólafur Guðbjörn Skúlason (2018) gerði kerfisbundna fræðilega samantekt á truflunum á skurðstofum og þar kemur fram að þær eru allt of algengar. Truflanirnar hafa neikvæð áhrif á einbeitingu og athygli fagfólks og geta mögulega valdið því að mistök séu gerð í meðferð sjúklinga og jafnframt lengt aðgerðartíma. Menntun og starfsþjálfun fagfólks er mikilvæg til þess að fyrirbyggja atvik (Clapper og Ching, 2019; Teunissen o.fl., 2019). Hermiþjálfun fagfólks þar sem þjálfuð er samvinna, samskipti og teymisþættir í óvæntum aðstæðum, getur verið mikilvæg til að efla frammistöðu fagfólks í krefjandi aðstæðum (Teunissen o.fl., 2019). Á Landspítala eru byltur algengustu atvikin hjá sjúklingum sem liggja inni (Landspítali, 2020) en fá atvik tengd byltum eru í þessu úrtaki eins og vænta má. Algengustu skráðu atvikin voru tengd meðferð/rannsókn, tækjabúnaði og lyfjameðferð. Af því sést að Atvikaskráning tengd skurðaðgerðum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.