Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Side 80
78 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
SS2 er alvarlegur sjúkdómur
Talið er að sykursýki geti flýtt öldrun og öldrunareinkennum. Þar
með talið er skert líkamleg færni, þunglyndi, byltur, þvagleki,
verkir, heilabilun og blóðsykursfall (Araki og Ito, 2009). Áhrifin sem
sykursýki tegund 2 getur haft á lífsgæði einstaklinga er töluverð.
Bæði eru fylgikvillar sykursýkinnar og meðferðar á henni þar
áhrifaþættir. Aldraðir einstaklingar með sykursýki tegund 2 eru
sérstaklega viðkvæmur hópur (Cannon o.fl., 2018). Rannsókn hjá
einstaklingum með sykursýki tegund 1 (n=19) sýndi að í viðtölum
í sykursýkismóttökum vildu þeir að fagfólk ræddi hvaða áhrif
sjúkdómurinn getur haft bæði á líkamlega og andlega heilsu
(Hernar o.fl., 2021).
Klínískar leiðbeiningar um sykursýki
Klínískar leiðbeiningar um sykursýki segja til um að meðferð
einstaklinga með sykursýki eigi að vera einstaklingsmiðuð
og byggð á þverfaglegri teymisvinnu meðferðaraðila (ADA,
2022; Davies o.fl., 2022). Í klínískum leiðbeiningum Bandarísku
sykursýkissamtakanna (e. American Diabetes Association (ADA))
um meðferð eldri/aldraðra einstaklinga með sykursýki tegund
2, er mikilvægi reglulegs alhliða heilsufarseftirlits áréttað.
Mikilvægt er að skima fyrir vitsmunalegri skerðingu eða heilabilun
þar sem einstaklingar með sykursýki eru taldir vera í aukinni
hættu á heilabilun. Skimunin er einnig mikilvæg með tilliti til
meðferðar og meðferðarheldni, það er hvort einstaklingurinn
hefur andlega færni til að fylgja eftir fyrirmælum. Vegna aukinnar
hættu á blóðsykursfalli meðal aldraðra einstaklinga er regluleg
blóðsykursmæling mikilvæg. Fræðsla til einstaklinganna og
nánustu aðstandenda um blóðsykursfall er einnig mikilvæg. Þá
ráðleggur ADA að viðmiðunargildi langtímasykurs (HbA1c) séu
<7,0 - 7,5% (53-58 mmol/mol) hjá einstaklingum með sykursýki
tegund 2 og eru ekki með fylgikvilla en < 8,0 - 8,5% (64-69 mmol/
mol) hjá einstaklingum sem eru með fylgikvilla og einstaklinga
með vitræna skerðingu (Draznin o.fl., 2022).
Markmið sykursýkismeðferðar er að fyrirbyggja og/eða hægja á
fylgikvillum sjúkdómsins og hámarka lífsgæði einstaklinga með
sykursýki (ADA., 2022). Heilbrigðisfræðsla, lífsstílsbreytingar og
heilbrigðismiðuð hegðun er grundvallarþáttur í árangursríkri
meðferð við sykursýki tegund 2 (ADA., 2022; Wang o.fl., 2018).
Með heilbrigðisfræðslu og aukinni þátttöku einstaklinga í eigin
sjúkdómsmeðferð er mögulega hægt að efla sjálfsumönnun
einstaklinga og bæta blóðsykurstjórn (ADA., 2022; Hermann
o.fl., 2021). Með því að efla sjálfsumönnun einstaklinga með
sykursýki tegund 2 er hægt að koma í veg fyrir og/eða hægja á
þróun sjúkdómsins og fylgikvillum hans. Með virkjun einstaklinga
til þátttöku í eigin meðferð má mögulega auka líkurnar á
árangri í meðferð (ADA., 2022). Sjálfsumönnun einstaklinga með
sykursýki felur meðal annars í sér reglulegt eftirlit með blóðsykri,
heilbrigðismiðaða hegðun, hollt mataræði, líkamlega virkni,
meðferðarheldni lyfjameðferðar og fótaumhirðu (Yarmohammadi
o.fl., 2019). Meðal aldraðra einstaklinga getur þátttaka nánustu
fjölskyldumeðlima verið mikilvægur þáttur fyrir árangursríka
meðferð (Draznin o.fl., 2022).
Sykursýkismóttaka sem hluti af heilsueflandi
móttöku innan heilsugæslunnar
Í takt við heilbrigðistefnu stjórnvalda til ársins 2030 þá hefur aukin
áhersla verið lögð á heilsueflandi móttökur innan heilsugæslunnar.
Markmið heilsueflandi móttaka er að: „Þróa, leiða og samræma
heildræna, þverfaglega og framvirka heilbrigðisþjónustu fyrir
aldraða og einstaklinga með fjölþættan og/eða langvinnan
heilsuvanda“ (Þíh, 2019).
Árið 2016 var myndaður vinnuhópur á vegum Þróunarsviðs
heilsugæslunnar, sem nú heitir Þróunarmiðstöð íslenskrar
heilsugæslu (Þíh). Hlutverk þessa hóps var að þróa vinnu-
leiðbeiningar fyrir heilbrigðisstarfsmenn sem sinna móttöku
fyrir einstaklinga með sykursýki tegund 2. Leiðbeiningarnar voru
síðan uppfærðar árið 2019 og stuðst við klínískar leiðbeiningar
bandarísku (ADA) og evrópsku (European Association for the
Study of Diabetes (EASD)) sykursýkisamtakanna auk bresku
leiðbeininganna (National Institute for Health and Care Excellence
(NICE)). Sykursýkismóttakan er meðal annars ætluð einstaklingum
með sykursýki tegund 2 og einstaklingum með hækkaðan
blóðsykur. Byggir móttakan á teymisvinnu hjúkrunarfræðings,
læknis og hreyfistjóra. Hjúkrunarfræðingurinn er teymisstjóri
hópsins og heldur utan um sjúklingahópinn og sér um innköllun
og eftirlit. Markmið með sykursýkismóttökunni er: a) að virkja
skjólstæðinga til þátttöku í eigin meðferð; b) að upplýsa um
sjúkdómsgreiningu; c) fræðsla; d) eftirlit með lífsmörkum; e) mat
á verkjum; d) blóðsykurstjórnun; e) sameiginleg markmiðasetning
þar sem tekið er tillit til m.a. einstaklingsmiðaðra markmiða,
aldurs og þyngdar, áhættuþátta svo sem hjarta-, æða- og
nýrnasjúkdóma. Að lágmarki á einstaklingur að vera kallaður inn
einu sinni á ári (Þíh, 2019).
Í takt við ákvörðun stjórnvalda um eflingu heilsueflandi móttaka
aldraðra og einstaklinga með fjölþættan og/eða langvinnan
heilsuvanda á heilsugæslum er mikilvægt að rannsaka reynslu
aldraðra af þjónustu heilsugæslunnar og væntingum þeirra til
hennar. Innan heilsueflandi móttaka á vegum heilsugæslunnar
hefur sykursýkismóttaka verið starfrækt einna lengst. Á Íslandi
hafa ekki verið gerðar rannsóknir um reynslu og væntingar eldri
borgara til þessarar þjónustu og því mikilvægt að fá fram þá
þekkingu.
Tilgangur rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um reynslu og
væntingar einstaklinga 65 ára og eldri með sykursýki tegund 2 til
sykursýkismóttöku innan heilsugæslunnar.
AÐFERÐ
Rannsóknin var eigindleg þar sem gagna var aflað með
rýnihópaviðtölum og eigindlegri aðleiðandi innihaldsgreiningu
beitt við úrvinnslu gagna (Graneheim og Lundman, 2004).
Þátttakendur
Skilyrði fyrir þátttöku var að vera 65 ára eða eldri, skjólstæð-
ingur heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH), með sjúkdóms-
greininguna sykursýki tegund 2, íslenskumælandi, ekki verið
greindur með heilabilun og hafa a.m.k. tvisvar sinnum mætt í
sykursýkiseftirlit á vegum heilsugæslunnar. Alls voru þátttakendur
rannsóknarinnar 14 einstaklingar. Átta konur og sex karlar á
aldrinum 66 til 82 ára. Þátttakendum var skipt af handahófi í fjóra
rýnihópa, tveir hópar með þremur þátttakendum og tveir hópar
með fjórum. Misjafnt var hversu lengi einstaklingarnir höfðu verið
með sjúkdómsgreininguna sykursýki tegund 2 eða allt frá 1 til 22
ára. Sumir þátttakendur höfðu bæði reynslu af sykursýkismóttöku
á vegum Landspítalans og heilsugæslunnar en flestir höfðu
einungis verið hjá heilsugæslunni.
Gagnasöfnunaraðferð
Viðtalsrammi rýnihópaviðtala var saminn út frá fræðilegu
lesefni og tilgangi rannsóknarinnar. Hann var vel ígrundaður,
bæði út frá fræðilegum heimildum og reynslu og þekkingu