Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Síða 81
79
Ritrýnd grein | Peer review
Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
höfunda á viðfangsefninu. Viðtalsramminn samanstóð af átta
lykilspurningum en að auki voru nokkrar spurningar sem aðstoða
áttu við að stýra samræðunum.
Framkvæmd
Fagstjórum hjúkrunar fjögurra heilsugæslustöðva á höfuðborgar-
svæðinu var sendur tölvupóstur þar sem rannsóknin var kynnt og
óskað eftir aðstoð þeirra við að finna þátttakendur í rannsóknina.
Fyrsti höfundur fékk send nöfn og símanúmer einstaklinga sem
féllu undir skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni. Einstaklingar sem
uppfylltu þátttökuskilyrðin og samþykktu þátttöku voru valdir
og fengu þeir sent kynningarbréf um rannsóknina.
Viðtöl rýnihópanna fóru fram í húsnæði heilsugæslu HH í febrúar
og mars árið 2022. Eitt viðtal var tekið við hvern hóp og tók hvert
viðtal um 45 til 75 mínútur eða þar til öllum spurningum var svarað
og mettun náð. Í upphafi viðtalanna fór rannsakandi yfir tilgang
og framkvæmd viðtalanna. Farið var yfir með þátttakendum
að þeir þyrftu ekki að svara öllum spurningunum og að þeim
væri frjálst að hætta þátttöku hvenær sem væri. Einnig var farið
yfir samþykkisbréf rannsóknarinnar, mikilvægi trúnaðar innan
rýnihópsins ítrekaður og minnt á að þátttakendur hefðu skrifað
undir yfirlýsingu um þagnarskyldu. Viðtölin voru hljóðrituð og
vélrituð orðrétt í tölvu og síðan var hljóðupptöku eytt eftir að
gagnaúrvinnslu var lokið. Í fyrsta viðtalinu voru báðir höfundar
viðstaddir en annars tók fyrsti höfundur hin viðtölin einn.
Gagnagreining
Við greiningu gagna var notuð aðleiðandi eigindleg innihalds-
greining (e. inductive content analysis), þar sem líkan Graneheim
og Lundman (2004) var notað. Í ferli gagnagreiningar var
greiningin ígrunduð vel og farið margsinnis yfir texta viðtalanna.
Rannsakendur ræddu hugsanlega merkingareiningu, dulda
og huglæga merkingu, flokkun og yfirþema rannsóknar út frá
gögnunum.
Gengið er út frá því í úrvinnslu gagna með aðleiðandi innihalds-
greiningu að upplýsingar hafi margþætta merkingu og byggist
greining gagna alltaf að einhverju leyti á túlkun. Ferli aðleiðandi
innihaldsgreiningar má flokka í nokkur þrep, það er:
1. Hugtök eru greind bæði frá sýnilegum og duldum gögnum
(e. Content areas); a) flokkun upplýsinga (e. Unit of analyse),
b) merkingareiningu (e. Meaning units), c) samþjöppun (e.
Condensed meaning units).
2. Huglæg merkingargerð (e. interpretation of the underlying
meaning); a) kóðun (e. Codes), b) undirþemu (e. Sub-theme),
c) yfirþema (e. Theme) (Graneheim og Lundman, 2004).
Í upphafi voru svörin flokkuð eftir lykilspurningum. Litgreining var
notuð við flokkun svara út frá merkingareiningum og höfundar
ígrunduðu gagnagreiningu. Svörin voru síðan samþjöppuð og
útdráttur gerður úr þeim. Gerð var huglæg greining á undirliggjandi
merkingu í viðtölunum. Í framhaldi voru gögnin kóðuð og flokkuð
í undirþemu og yfirþema. Leitast var við að finna eitt yfirþema.
Sjá töflu 1.
Rannsóknarsiðfræði
Sótt var um leyfi til Vísindasiðanefndar og fékkst það í janúar árið
2022 og var gefið númerið VSN-21-236. Þátttakendur skrifuðu undir
upplýst samþykki, einnig var skrifað undir þagnarskyldu innan
rýnihópanna. Þátttakendum stóð til boða að leita til sálfræðings,
sem starfar innan HH, ef þátttaka þeirra í rannsókninni olli
þeim vanlíðan á einhvern hátt. Eingöngu fyrsti höfundur hafði
aðgang að persónulegu upplýsingum um þátttakendur sem voru
órekjanlegar og komu hvergi fram í rannsókninni og var þeim eytt
að úrvinnslu lokinni.
NIÐURSTÖÐUR
Í viðtölum við þátttakendur kom fram að sykursýki tegund 2 er
alvarlegur sjúkdómur sem þarf að taka alvarlega og hugsa um
daglega sem endurspeglar yfirþema rannsóknarinnar: „Aukin
meðvitund um að sykursýki tegund 2 er alvarlegur sjúkdómur
sem þarf að hugsa um daglega“. Rauði þráðurinn í niðurstöðunum
var öryggistilfinning þátttakenda. Undirþemu rannsóknarinnar
voru jákvæðar og neikvæðar tilfinningar, það er það sem eykur
öryggistilfinningu og það sem dregur úr öryggistilfinningu. Í
hvoru undirþema eru þrír flokkar. Undirþemað „reynsla sem
eykur öryggistilfinningu“ og flokkarnir: a) öryggistilfinning og
vellíðan; b) að vera upplýstur og meðvitaður um sjúkdóminn: c)
Tafla 1. Dæmi um greiningu viðtala
Merkingareining Samþjöppun Kóðun Undirþemu Yfirþema
Mér finnst svo mikill munur að
það sé hringt svona í mig og
mér gefinn tími og svona, mér
finnst ég þá skipta meira máli
Utanumhald og eftirlit eykur
öryggistilfinningu og vellíðan Öryggistilfinning og vellíðan Reynsla sem eykur öryggis-
tilfinningu
Aukin meðvitund um að
sykursýki er alvarlegur sjúk-
dómur sem þarf að hugsa um
daglega
Að ég sé ekki bara eitthvað,
einhver út í bæ sem ...
Utanumhald og eftirlit eykur
öryggistilfinningu og vellíðan Öryggistilfinning og vellíðan Reynsla sem eykur öryggis-
tilfinnngu
Eftir að minn læknir hætti þá
var ég hengd við 3 heimilis-
lækna á 4 árum
Skortur á utanumhaldi og eftir-
lit sem dregur úr öryggistilfinn-
ingu og vellíðan
Óöryggistilfinning Reynsla sem dregur úr öryggis-
tilfinningu
Maður er miklu meðvitaðri
hvað maður er að borða
Að vera upplýstur og
meðvitaður um alvarleika
sjúkdómsins
Fræðsla og leiðbeiningar Reynsla sem eykur öryggis-
tilfinningu
Maður fær fræðslu um lyfin en
aldrei um aukaverkanir
Þekkingarleysi á SS2 og
afleiðingum hennar Ófullnægjandi fræðsla Reynsla sem dregur úr öryggis-
tilfinningu
Ég veit alveg hvað ég þarf að
gera, ég þarf bara að koma mér
í að gera það
Vera meðvitaður um mataræði
og lífsstíl Vera ábyrgur fyrir eigin heilsu Reynsla sem eykur öryggis-
tilfinningu
Þá skammast maður sín fyrir
að gera ekki meira Fylgja ekki fyrirmælum Vantrú á eigin getu Reynsla sem dregur úr öryggis-
tilfinningu