Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 85

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 85
eitt af aðalmarkmiðum með sykursýkismóttöku heilsugæslunnar (Þíh, 2019). Norsk eigindleg rannsókn á hlutverkaskipan meðal fagaðila sem koma að meðferð fólks með sykursýki sýndi að hjúkrunarfræðingar og aðrar fagstéttir en læknar telji það til sinnar ábyrgðar að halda utan um sjúklingafræðslu og stuðning. Í sömu rannsókn kom fram að skjólstæðingar sem höfðu hitt sama hjúkrunarfræðing yfir ákveðið tímabil sýndu batnandi árangur í blóðsykurstjórnun (Sørensen o.fl., 2020). Almennt voru þátttakendur ánægðir með þá heilbrigðisfræðslu sem þeir höfðu fengið um sykursýki tegund 2 hjá heilsugæslunni, þó vantaði að breikka fræðsluna og útvíkka hana meira. Allir höfðu fengið fræðslu um hreyfingu og mataræði en fáir höfðu fengið einhverja fræðslu um andlega líðan, aukaverkanir lyfja, eða sykurfall, orsakir þess, einkenni og afleiðingar. Það er í takt við niðurstöður Hermann o.fl. (2021) í yfirlitsgrein um sykurfall meðal aldraðra sem bjuggu heima og fengu heimahjúkrun. Þeirra niðurstöður bentu til að lítil áhersla var lögð á fræðslu um fylgikvilla sykursýki svo sem sykurfall og afleiðingar þess en meiri áhersla var lögð á tíðni og áhættuþætti sykurfalls. Að bera ábyrgð á eigin heilsu og muna það Þátttakendurnir gerðu sér grein fyrir ábyrgð sinni á eigin heilsu. Eins og rannsóknarniðurstöður Guðrúnar Elínar Benónýsdóttur o.fl. (2009) sýndu, vilja aldraðir taka aukinn þátt í ábyrgð á eigin heilsu. Hér töluðu þátttakendur hins vegar um að þeir treystu ekki alltaf á minni sitt og því væri mikilvægt að fagaðilar meðal annars hefðu umsjón með að kalla þá inn í eftirlit. Því getur það verið mikilvægt að fjölskylda eða nánustu ættingjar séu þátttakendur í heilbrigðisfræðslu og að fræðslan sé einstaklingsmiðuð og taki tillit til þarfa og getu einstaklinga til að skilja fræðsluna og fylgja henni. Í klínískum leiðbeiningum frá ADA er fjallað um að framkvæma reglulegt minnispróf til að skima fyrir heilabilun og til að tryggja réttan skilning á meðferð og fræðslu (Draznin o.fl., 2022). Minnispróf eru ekki hluti af reglulegu skipulagi í sykursýkismóttöku í dag. Hins vegar gæti það orðið reglulegur liður í sykursýkismóttöku hjá hjúkrunarfræðingi í heilsugæslu. Reynsla höfunda af rannsóknum og vinnu með fólki með sykursýki og eldra fólki er styrkleiki rannsóknarinnar. Einnig er það styrkleiki rannsóknarinnar að rödd þátttakenda heyrist. Þess var gætt að leyfa öllum þátttakendum að tala og séð til þess að enginn einn talaði það mikið að aðrir kæmust ekki að. Fyrsti höfundur hefur ekki áður notað rýnihópa sem rannsóknaraðferð og er þar af leiðandi ekki með neina reynslu í því að stjórna umræðum í slíkum hópum. En samkvæmt Muijeen o.fl. (2020) getur reynsla rannsakanda haft áhrif á flæði í viðtölum innan rýnihópa. Takmarkaður fjöldi þátttakenda og heilsugæslustöðva sem komu að rannsókninni er veikleiki rannsóknar. LOKAORÐ Sykursýkismóttaka á vegum heilsugæslunnar er mikilvæg fyrir einstaklinga ≥65 ára með sykursýki tegund 2. Utanumhald og regluleg innköllun í sykursýkiseftirlit eykur öryggis- og vellíðunar- tilfinningu þeirra. Hjúkrunarfræðingar geta eflt móttökur fyrir fólk með sykursýki með því að gæta að því að kalla fólk inn til eftirlits reglulega. Bæta þarf heilbrigðisfræðslu sérstaklega með áherslu á aukaverkanir lyfja og fylgikvilla sykursýki svo sem um hættu á blóðsykursfalli. Einnig er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar auki áherslu á andlega heilsu og líðan þessa skjólstæðingahóps. Hjúkrunarfræðingar eru vel til þess fallnir að sinna starfi teymisstjóra sem hefur yfirsýn og eftirlit með skjólstæðingum heilsugæslunnar með sykursýki tegund 2, vegna sinnar heildrænu nálgunar og faglegrar þekkingar. Mikilvægt er að efla og styrkja heilsueflandi móttökur svo sem sykursýkismóttökur á vegum heilsugæslunnar, sérstaklega ef tekið er tillit til framtíðarspár þar sem spáð er auknum fjölda eldri einstaklinga og aukinni tíðni sykursýki tegund 2 því hún er alvarlegur sjúkdómur sem þarf að hugsa um daglega. ÞAKKIR Kærar þakkir fá þátttakendur í rannsókninni fyrir að gefa sér tíma til að taka þátt í rýnihópaviðtölunum. Fagstjórar hjúkrunar hjá heilsugæslustöðvum sem aðstoðuðu mig við að finna þátttakendur í rannsóknina fá mínar bestu þakkir. Ritrýnd grein | Peer review
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.