Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Blaðsíða 94
92 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024
Algengstu breytingar á aðgerðartíma voru af læknisfræði-
legum ástæðum eins og blóðþynningu eða ástandi sjúklings.
Álag á skurðstofu skýrir um 22% breytinga sem rekja má til
undirmönnunar, mikils sjúklingafjölda sem bíður eftir aðgerð,
bráðleika aðgerða, forgangsröðunar og endurforgangsröðunar.
Einnig ófyrirséða lengingu á aðgerðum sem settar eru upp á
undan og af tæknilegum orsökum sem samræmist niðurstöðum
Yeniays og félaga (2019). Þeir benda á að með betri skipulagningu
sé hægt að forgangsraða áhættusjúklingum og þannig stytta
tíma föstu, flýta bata og stytta legutíma. Helmingur allra
skurðaðgerða eru gerðar á eldri einstaklingum sem eru oft með
mörg og flókin undirliggjandi heilsufarsvandamál, samkvæmt
samantektarrannsókn (Chen o.fl., 2022).
Rannsóknin sýndi að algengasti aðgerðartíminn var klukkan 17
og sjö einstaklingar fóru í aðgerð á þeim tíma, flestir sjúklinganna
föstuðu í 12-18 klukkustundir. Álykta má að þörf sé á því að gera
ráð fyrir í aðgerðaráætlun skurðstofa að einn mjaðmabrotinn
einstaklingur bíði aðgerðar. Þannig komist eldri einstaklingar,
hrumir áhættusjúklingar fremur í aðgerð að morgni sem í flestum
tilfellum styttir föstutíma (Yeniay o.fl., 2019). Kaptain o.fl. (2019)
benda á að sníða þurfi alla meðferð að hverjum einstaklingi en
ekki láta það sama gilda fyrir alla. Þarft væri að gera rannsókn á
þekkingu hjúkrunarfræðinga á föstureglum fyrir skurðaðgerð.
Í niðurstöðum kemur fram að meðalaldur og kynjaskipting
staðfesta fyrri rannsóknir. Konur eru almennt eldri og með lægri
LÞS en karlar og ASA-flokkun er hærri eftir aldri sem sýnir aukna
sjúkdómsbyrði með aldrinum (Pasternak o.fl., 2020). Skráning
á meðferðartakmörkunum var algengari í eldri aldurshópnum
sem er mikilvægt samkvæmt ráðleggingum að skrá vilja sjúklinga
(Ishizawa, 2022).
Helmingur sjúklinganna fór í aðgerð seinni hluta dags og í 38%
tilvika var sjúklingur útskrifaður af vöknunardeild að nóttu til. Má
því velta fyrir sér dægurvillu í kjölfarið en engar rannsóknir fundust
um nákvæmlega það. Þrátt fyrir langa föstu og útskrift seint af
vöknun var lítið skráð um hvenær sjúklingar fengu að drekka
eða borða eftir aðgerð eða í 24,1% tilvika. Álykta má að einhver
skráning fari forgörðum en hjúkrunarskráning þarf að vera nákvæm
og skipulögð. Skýr áætlun um meðferð og góð rafræn skráning
er talin forsenda fyrirbyggingar atvika í heilbrigðisþjónustu
(Munroe o.fl., 2021). Þrátt fyrir skyldur hjúkrunarfræðinga um
nákvæma skráningu hafa rannsóknir sýnt (Fitzgerald o.fl., 2020)
að tímaskortur, undirmönnun, ónóg þjálfun, léleg samskipti og
skortur á þekkingu hafi helst áhrif á að verklagsreglum sé ekki
fylgt. Því er áskorun til hjúkrunarfræðinga að huga betur að
næringu og tileinka sér betri skráningu sjúklingum til heilla.
Styrkleikar rannsóknarinnar felast í stóru úrtaki sem ætti að lýsa
vel hvernig undirbúningi aðgerðar og föstu er háttað á Landspítala.
Takmarkandi þáttur rannsóknarinnar felst í hinu óskráða, á
Landspítala er notast við gátlista á pappír við undirbúning fyrir
aðgerð sem er oft og tíðum illa útfylltur. Einnig er notuð rafræn
skráning sem er oft ekki skráð í rauntíma og því gætu ýmis atriði
hafa gleymst. Tölfræðilegur styrkur rannsóknarinnar var ekki
reiknaður og er það veikleiki.
LOKAORÐ
Niðurstöðurnar sýndu að sjúklingar sem bíða eftir mjaðmaaðgerð
fasta óþarflega lengi bæði á fasta fæðu og tæra drykki; einnig að
sjúklingar þurfa að bíða lengur en áður á bráðamóttöku eftir plássi
á legudeild og biðtími eftir aðgerð er að lengjast. Undirbúningur
fyrir aðgerð þarf að vera markviss, innihalda mat á næringarástandi
og leggja þarf áherslu á virka meðferð til að fyrirbyggja fylgikvilla.
Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk
fylgi verklagsreglum sem settar hafa verið um undirbúning fyrir
aðgerð og reglum um föstu fyrir aðgerð sem eru í gildi.
ÞAKKIR
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga er þökkuð styrkveiting til
rannsóknarinnar.
Tímalengd föstu og undirbúningur aðgerðar hjá 67 ára og eldri á Landspítala vegna mjaðmabrots