Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 98
Ritrýnd grein | Peer review
Það er eðlilegt að tala um offitu
en það er ekki sama hvernig það er gert
Reynsla einstaklinga með offitu af
heilbrigðiskerfinu
ÚTDRÁTTUR
Tilgangur
Algengi offitu hefur aukist mikið á undanförnum árum. Rúmlega 27%
Íslendinga voru með offitu árið 2022. Erlendar rannsóknir gefa til kynna að
einstaklingar með offitu fái oft ekki fullnægjandi heilbrigðisþjónustu. Lítið
er vitað um reynslu einstaklinga með offitu af notkun heilbrigðisþjónustu
á Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar var að bæta þekkingu og dýpka
skilning á reynslu einstaklinga með offitu af heilbrigðisþjónustu og hvernig
heilbrigðisþjónustu þeir kjósa að fá.
Aðferð
Eigindleg rannsóknaraðferð þar sem tekin voru fjögur rýnihópaviðtöl við
18 íslenska einstaklinga með offitu, 14 konur og 4 karla á aldrinum 26 til
69 ára. Viðtölin voru greind með eigindlegri aðleiðandi innihaldsgreiningu.
Niðurstöður
Yfirþemað Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama
hvernig það er gert er lýsandi fyrir reynslu einstaklinganna og hvernig
heilbrigðisþjónustu þeir kjósa að fá. Allir þátttakendur höfðu yfir langan
tíma upplifað bæði jákvæða og neikvæða heilbrigðisþjónustu. Þemun
voru þrjú með fjórum undirþemum. A): Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Þar voru undirþemun Hlustun og Framkoma gagnvart skjólstæðingum,
sem lýstu því hve mikilvæg þessi atriði voru fyrir upplifun þátttakenda af
heilbrigðisþjónustunni. B): Heilbrigðis¬þjónusta sem grípur alla þar sem
rætt var um aðgengi að heilbrigðisþjónustu og meðferð við offitu, þekkingu
heilbrigðisstarfsfólks og búnað og C): Að horfast í augu við eigin styrkleika
og takmarkanir með tveim undirþemum, Viðkvæmni og virðingarleysi og
Vinna með þyngdarstjórnun, sem lýstu áhrifunum á einstaklingana sjálfa
sem sýndu viðkvæmni í samskiptum við fagfólk en þurftu líka að vilja taka
þátt í eigin þyngdarstjórnun og meðferð.
Ályktanir
Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga og annað heilbrigðisstarfsfólk að
veita öllum sömu þjónustu, óháð þyngd. Lykilatriðið er að hlustað sé
á skjólstæðinga með offitu. Þannig er hægt að veita þeim viðeigandi
heilbrigðisþjónustu.
Lykilorð
Offita, eigindleg rannsókn, upplifun skjólstæðinga, heilbrigðisþjónusta,
viðhorf heilbrigðisstarfsfólks.
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
Hvers vegna ættir þú að lesa
þessa grein?
Nýjungar: Rannsóknin veitir nýjar upp-
lýsingar um reynslu einstaklinga með offitu
af notkun heilbrigðisþjónustu á Íslandi.
Hagnýting: Mikilvægt er að hjúkrunar-
fræðingar og annað heilbrigðisstarfsfólk
hlusti á og sinni einstaklingum með offitu
út frá þeirra þörfum.
Þekking: Niðurstöðurnar leiða í ljós mikilvægi
vandaðrar framkomu og fullnægjandi
búnaðar þegar einstaklingum með offitu
er sinnt í heilbrigðiskerfinu.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Hjúkrunarfræðingar og annað heilbrigðis-
starfsfólk þarf að muna að veita öllum sömu
þjónustu, óháð þyngd.
doi: 10.33112/th.100.1.6