Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 100

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2024, Page 100
98 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 1. tbl. 100. árg. 2024 (2020) í Brasilíu voru að það skorti þjónustu fyrir einstaklinga með mikla offitu. Fram kom að helst vantaði úrræði og tilvísun í úrræði, vilja til meðhöndlunar, þekkingu og styttri biðtíma. Skjólstæðingarnir óskuðu eftir samfelldri meðferð með fræðslu og góðri eftirfylgni, veittri af sérhæfðu heilbrigðisstarfsfólki sem sýndi þeim virðingu. Bornhoeft (2018) og Holt og Hughes (2021) bentu svo á að þekkingarskortur heilbrigðisstarfsfólks á sjúkdómnum og úrræðum, fordómar heilbrigðisstarfsfólks, vöntun á fræðslu skjólstæðinga og slæm reynsla af heilbrigðiskerfinu væru allt þættir sem hindruðu árangursríka meðhöndlun einstaklinga með offitu. Rannsóknir sýna að einstaklingar með offitu hafi upplifað að heil- brigðisstofnanir séu ekki tilbúnar að taka á móti þeim. Það vanti m.a. sterkbyggð húsgögn og búnað auk fatnaðar í öllum stærðum. Sérstaklega er talað um skort á blóðþrýstingsmansettum í réttum stærðum og vigtum fyrir einstaklinga með offitu (Conz o.fl., 2020; Woods o.fl., 2016). Skv. Woods o.fl. (2016) hafa framleiðendur búnaðar verið að taka á þessum vanda á síðustu árum. Einnig hafa rannsóknir sýnt að hluti heilbrigðisstarfsfólks sé hugsanlega með þyngdarfordóma, telji einstaklinga með offitu vanta viljastyrk til að lifa heilbrigðum lífsstíl og vilji síður sinna þeim (Goss o.fl., 2020; Robstad o.fl., 2019). Þrátt fyrir aukna þekkingu og vitundarvakningu meðal heil- brigðisstarfsfólks á sjúkdómnum offitu virðast þyngdarfordómar sem og ófullnægjandi þjónusta enn vera til staðar (Warr o.fl., 2021). Fyrstu klínísku leiðbeiningarnar á Íslandi um meðferð fullorðinna einstaklinga með offitu á vegum Embættis landlæknis komu út 2020 (Erla Gerður Sveinsdóttir o.fl., 2020). Samtök fólks með offitu á Íslandi voru stofnuð 2023 (SFO, e.d.). Markmið þessara samtaka er að bæta þjónustu og auka fræðslu til fagfólks og félagsmanna. Leit að íslenskum rannsóknum um efnið bar ekki árangur. Tilgangur rannsóknarinnar var að bæta þekkingu og fá dýpri skilning á því hver reynsla Íslendinga með offitu væri af heilbrigðiskerfinu. Rannsóknarspurningin var: Hver er reynsla einstaklinga með offitu af heilbrigðiskerfinu? AÐFERÐ Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð. Gögnum var safnað með því að taka rýnihópaviðtöl og gögnin greind með eigindlegri aðleiðandi innihaldsgreiningu (EAI) (Graneheim og Lundman, 2004), sjá töflu 2. Í rýnihópum mætist fólk með sameiginleg einkenni eða reynslu og er stýrt í markvissa umræðu. Kostir rýnihópaviðtala umfram einstaklingsviðtöl eru að ná má til fleiri einstaklinga með færri viðtölum og oft fæst meiri fjölbreytni í svörum (Sóley Sesselja Bender, 2021). Þátttakendur Notað var tilgangsúrtak. Leitast var eftir að finna þátttakendur með greinda offitu eða líkamsþyngdarstuðul >30 kg/m2. Auglýst var eftir þátttakendum á samfélagsmiðlum. Önnur þátttökuskilyrði voru reynsla af heilbrigðiskerfinu, að einstaklingarnir væru á aldursbilinu 18-75 ára, gætu talað og skilið íslensku og væru tilbúnir að tjá sig í rýnihópi. Þátttakendur voru 18. Meirihlutinn var konur og voru 3-6 þátt- takendur í hverjum hóp. Mælt er með að í rýnihópum séu 4-12 einstaklingar (Sóley Sesselja Bender, 2021). Helmingur þeirra hafði farið í efnaskiptaaðgerð. Til að fá sem fjölbreyttasta reynslu fólks með offitu af heilbrigðiskerfinu var ákveðið að allir greindir með offitu, hvort sem þeir höfðu farið í efnaskiptaaðgerð eða ekki, gætu tekið þátt í rannsókninni. Reynt var að hafa jafnt hlutfall þeirra sem höfðu farið í efnaskiptaaðgerð og ekki í hverjum hóp. Allir þátttakendurnir höfðu langa sögu um offitu og því flestir með langa reynslu af heilbrigðiskerfinu. Margir voru auk offitu með aðra sjúkdóma, bæði tengda og ótengda offitunni. Í töflu 1 má sjá lýsingu á bakgrunni einstaklinga. Af þeim 31 þátttakanda sem bauð sig fram mættu 18 í viðtölin eða 58%. Framkvæmd Viðtalsrammi var saminn út frá fræðilegum heimildum (Conz o.fl., 2020; Farrell o.fl., 2021; Phelan o.fl., 2015/2022), reynslu og þekkingu höfunda og hafður til hliðsjónar við viðtölin. Gögnum var safnað með fjórum rýnihópaviðtölum í febrúar og mars 2022. Þrjú viðtalanna voru tekin í sal Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins og eitt var fjarviðtal í gegnum tölvu. Hvert viðtal tók tæpar tvær klukkustundir. Báðir höfundar voru viðstaddir fyrri tvö viðtölin en fyrri höfundur viðstaddur seinni tvö. Viðtölin voru tekin upp, þau skráð og þeim svo eytt. Gagnagreining Viðtölin voru greind með EAI sem er kerfisbundin og hlutlæg rannsóknaraðferð. Aðferðin dregur fram ákveðna fleti á viðfangs- efninu og þykir bæta skilning á því (Elo og Kyngäs, 2008). Báðir höfundar sáu um gagnagreiningu í viðtölum og að viðtölum loknum með því að hlusta á gögnin og skoða afrit. Greiningin hefst með því að skrá athugasemdir í viðtölunum sjálfum og svo við hlið textans sem er skrifaður upp. Gögnin voru greind í merkingareiningar sem voru svo þéttaðar þar sem textinn er dreginn saman. Einingarnar voru svo kóðaðar og flokkaðar í þemu sem eru niðurstöður greiningarinnar. Þemun lýstu endurtekinni hegðun eða reynslu þátttakenda sem var gegnumgangandi. Þemum og undirþemum voru gefin lýsandi nöfn (Graneheim og Lundman, 2004). Dæmi um gagnagreiningu má sjá í töflu 2. Mettun náðist út frá gögnunum. Mettun er þegar ný viðtöl bæta ekki nýjum upplýsingum við gagnasöfnun. Almennt þarf 3-6 rýnihópa til að ná mettun (Sóley Sesselja Bender, 2021). Tafla 1. Bakgrunnsupplýsingar Breytur Fjöldi (N=18) Kyn Karlar Konur 4 (22,2%) 14 (77,8%) Aldur 26-69 ára,meðalaldur 52,6 ára Búseta Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin 11 (61,1%) 7 (38,9%) Efnaskiptaaðgerð Já Nei 9 (50%) 9 (50%) Allir verið lengi með offitu Alltaf Frá unglingsaldri >11 ár 23,3 (14) 23,3 (14) 53,3 (32) Líkamsþyngdarstuðull (LÞS). Ef einstaklingar höfðu farið í efnaskiptaaðgerð þá fyrir aðgerð LÞS 30-34,9 kg/m2 LÞS 35-39,9 kg/m2 LÞS 40-44,9 kg/m2 LÞS 45-49,9 kg/m2 LÞS >50 kg/m2 1 (5,6%) 6 (33,3%) 4 (22,2%) 4 (22,2%) 3 (16,7%) Það er eðlilegt að tala um offitu en það er ekki sama hvernig það er gert
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.