Mímir - 01.06.2007, Page 67
Nedelina Ivanova
Eru fæturnir komnir
út úr skápnum?
Um kynóákveðni no.fótur í nf. og þf.ft.m.gr.
í aldanna rás
1. Inngangur
Að vera eða ekki vera ... hinsegin?1 Þetta er
spurningin sem nafnorðið fótur hefur staðið
frammi fyrir í aldaraðir. Það að geta ekki ákveð-
ið sig í hvaða kyni það ætti að vera í nf. og
þf.ft.m.gr. hefur verið daglegt amstur fyrir orð-
ið frá tíma forníslensku til nútímaíslensku.
I þessari grein verður gefið yfirlit yfir þró-
un no.fótur í nf. og þf.ft.m.gr. í aldanna rás en
sérstök áhersla verður lögð á notkunina í þol-
falli. I öðrum kafla er sagt frá því í stuttu máli
eftir hverju nafnorð flokkast í beygingarflokka
og gerð stutt grein fyrir beygingarflokki rótar-
nafnorða þar sem no. fótur á heima. I þriðja
kafla eru málfræðirit skoðuð og er gerð grein
fyrir því hvernig flokki rótarnafnorða hefur ver-
ið lýst, með sérstakri áherslu á no.fótur. Orða-
bækur verða skoðaðar í kaflanum og einnig
textabútar samhliða þeim.Tilgangurinn er að
sýna hvernig þessu nafnorði hefur verið lýst í
orðabókum í gegnum árin og síðan hvernig það
hefur verið notað á mismunandi málstigum. I
næstsíðasta kaflanum, þeim íjórða, eru tilgátur
settar fram sem gætu varpað ljósi á það hvers
vegna no. fótur sýnir tilhneigingu til þess að
1 Grein þessi er unnin úr námsritgerð í sögulegri orð-
myndunar- og beygingarfræði sem höfundur skrifaði
veturinn 2004 undir leiðsögn Guðrúnar Þórhallsdótt-
ur og nefnist Um þróun orðanna fótur ogfingur í nf.
og þf. fleirtölu í aldanna rás.
verða kvenkynsorð þegar það er notað í
þf.ft.m.gr. Greininni lýkur með samantekt í
fimmta kafla.
2. Almennt um beygingarflokka og
rótarnafnorð
Nafnorð voru flokkuð í beygingarfloklta (sbr.
Iversen 1994:44-45) eftir stofnviðskeytum í
nf.et. á tíma frumnorrænu. Flokkarnir heita
eftir þessum tilteknu stuttu stofnviðskeytum en
sum þeirra, t.d. -a-, -i- og hafa fallið brott
við Stóra brottfall. Þannig er t.d. físl. armr í a-
stofni af því að viðskeytið hefur verið -a- á
frumnorrænum tíma:
(1) RÓT VSK. ENDING
frnorr.nf.et. *arm a r Æ-stofn
frnorr.nf.et. *gast i r f-stofn
frnorr.nf.et. *sun u r «-stofn
frnorr.nf.ft. *geb and ír nd-stofn
frnorr.nf.et. *jot b r rótarnafnorð/aðrir
s amhlj óð as tofnar
Nafnorðið fótur hefur ekki haft viðskeyti í fornu
máli og er þess vegna rótarnafnorð. Nafnorðum
er skipt í tvo meginflokka, sérhljóðastofna og
samhljóðastofna, eftir því hvort sérhljóð eða sam-
hljóð er í stofninum. Til samhljóðastofna heyra
meðal annars nafnorð sem höfðu ekkert viðskeyti,
eins og no. fótur, þ.e. ekkert viðskeyti fór á milli
rótarinnar og endingarinnar og endingunni var
bætt beint við rót orðsins í karlkyni og kvenkyni:
65