Mímir - 01.06.2007, Blaðsíða 73
Nafnorðið hendur er fyrra orðið í þessari sam-
setningu. Ekki er ólíklegt að seinna orðið,fót-
ur, verði fyrir áhrifum af beygingu fyrra orðsins
og þess vegna er ekki útilokað að þessi tilhneig-
ing eigi rætur sínar að rekja til slíkra samsetn-
inga.
4.1.2 Eins hljóðvarp í kvk.no. nótt-nœtur
og í kk. no .fótur -fœtur
Það eru engin bein merkingartengsl milli þess-
ara tveggja nafnorða, heldur málfræðileg: Þau
eru rótarnafnorð, hið fyrra kvenkynsorð en hið
seinna karlkynsorð. Það sem er sameiginlegt
með þeim eru sérhljóðavíxlin í nf. og þf.ft. Ef
sérhljóðavíxlin eru til grundvallar hljóta þessi
tvö nafnorð að vera í sama kyni í fleirtölu. Fleiri
nafnorð í þessum flokki hafa eða hafa haft
sömu víxl, t.d. brók - brókr, bók - bókr, bót -
bótr, glóð — gléðr (Iversen 1972:68-69). Hægt
er að búa til hlutfallsjöfnu sem lítur þannig út:
(29) þf.et. nótt : þf.ft. nétr(nar)
þf.et. fót : þf.ft. X; X = fótr(nar)
Þannig ætti no.fótur einnig að vera til í kven-
kyni í nf. og þf.ft.m.gr. í líkingu við fleirtölu-
myndina af kvenkynsnafnorðinu nótt ef þessi
hlutfallsjafna gengur upp.
4.2 Óformleg könnun á notkun no. fótur í
ft. m.gr.
Höfundur þessarar greinar gerði óformlega
munnlega könnun á einum vinnustað í Reykja-
vík. Þátttakendur voru beðnir um að setja no.
fóturí þf.ft.m.gr. aftast í þessa setningu:
(31) Eg þvoði mér um ...
18 íslendingar, starfsfólk og börn þess á aldrin-
um 11-15 ára, tóku þátt í könnuninni.Heildar-
niðurstöður könnunarinnar eru sýndar í töflu 1
hér að ofan:
Tafla 1. Heildarniðurstöður svara á vinnustað
— kyn no .fótur.
kk. þf.ft.m.gr. kvk. þf.ft.m.gr. Alls fæturna fæturnar
Faglærðir 8 8
Ofaglærðir 1 4 5
Börn starfsfólks 5 5
Niðurstöðurnar eru sem hér segir: 9 þátttak-
endur sögðu fæturna og 9 fæturnar. Krakkar og
langflestir ófaglærðra notuðu myndina fæturn-
ar en faglærðir notuðu alltaf myndina fæturna.
Börn nota mun meira talmál en ritað mál og
það gæti verið ein ástæðanna fyrir aukinni
notkun óviðurkenndrar myndar orðsins í þf.ft.
(fæturnar). Talmál er miklu frjálsara en ritað
mál og því leyfir talmál að nýjar orðmyndir séu
búnar til t.d. vegna áhrifa frá nafnorðum sem
eru hljóðfræðilega lík, t.d. nótt~næturnar,
fótflæturnar. Af niðurstöðunum að dæma virð-
ist kvenkynsmyndin af no. fótur sigra í huga
ungs fólks.
Niðurstöðurnar úr töflu 1 gefa kannski líka
vísbendingu um að þolfallsmynd no .fótur sé til-
lærð og þess vegna noti menntað starfsfólk hana
á viðurkenndan hátt. Ef fólk hefur ekki lokið
grunnnámi og því ekki fengið ábendingar um
viðurkennda notkun nafnorðsins mætti ekki bú-
ast við öðrum niðurstöðum þótt alltaf séu und-
antekningar frá því eins og raun ber vitni.
Þessi svör fengust þegar skýringa var leitað:
(32) Tærnar á mér eru faUegar, þess vegna líka fæt-
urnar. (einn)
(33) Af því bara. / Ég hef aldrei hugsað um það.
(flestir)
Eins og sést af svörunum tengdi einungis einn
þátttakandi no.fótur við tærnar en viðkomandi
gaf ekki frekari skýringar á því. Flestir þátttak-
endur höfðu aldrei leitt hugann að því af hverju
þeir setja karlkynsnafnorðið fótur í kvenkyn í
þf.ft.m.gr.
71