Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 9

Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 9
miða ekki eingöngu að því einu að tryggja henni völd með rangfengn- um atkv., heldur og að því að kveikja úlfúð og sundrungu í röðum verkalýðssamtakanna einmitt nú, þegar allt veltur á því fyrir verka- lýðinn, að standa saman um hagsmunamálin. Þetta er þeim mun alvarlegra sem vitað er að ofsóknaræði sam- bandsstjórnarklíkunnar er m. a. beint gegn tveim stærstu og fremstu verkalýðsfélögunum í þeirri fylkingu, sem nú býr sig til átaka fyrir bættum kjörum alls fjöldans, Verkamannafél. Dagsbrún og Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík, en hið fyrrnefnda á að ræna 6—8 réttkjörnum fulltrúum af 33. Hið síðarnefnda með 9 fulltrúa hefur verið svift ranglega réttindum í sambandinu, til að treysta valda- stöðu hinnar atvinnurekendasinnuðu sambandsstjórnar á þessu þingi. Á 23. þingi alþýðunnar hvílir mikil ábyrgð. Því ber skylda til að verða nú vinnandi fólki sú aflstöð, sem tryggir baráttu þess góðan sigur. Og fyrsta skylda þess er sú, að bægja frá garði sérhverju sundrungarefni. Því ber að hnekkja árásinni á Dagsbrún og Iðju og önnur þau félög, sem orðið hafa að skotspæni ófyrirleitinna valda- bröltara og atvinnurekendaþjóna á háum stöðum í verkalýðssamtök- unum, og tryggja fullkomið jafnfrétti allra félaga og einstaklinga innan heildarsamtakanna. — Þetta er f jöregg einingarinnar, en hún er afl þess sem gera skal. Um þetta ber öllum beztu mönnum 23. þings- ins að sameinast, hvar sem þeir standa í flokki. -----------------------------------------------------------------N Laugardaginn 15. nóv. sl. afhenti samninganefnd þeirra 56 verka- lýðsfélaga er sagt höfðu upp samningum frá 1. des. n. k., atvinnurek- endum kröfur sínar. En meginkröfur voru þessar: 1. Allt grunnkaup í samningum hækki um 15%. 2. Á allt grunnkaup verði greidd verðlagsuppbót mánaðarlega sam- kvæmt framfærsluvísitölu næsta mánaðar á undan þeim mánuði, sem greitt er fyrir 3. Atvinnurekendur greiði 4% á greidd vinnulaun í atvinnuieysis- tryggingasjóð viðkomandi stéttarfélags er stofnað verði til. 3. Lágmark oriofs lengist úr 12 virkum dögum í 18. Greiðsla orlofs- fjár hækki úr 4% í 6% á greidd laun, eftir sömu reglum og gert er ráð fyrir í orlofslögunum. 4. Athugaðir verði möguleikar á framkvæmd 40 stunda vinnuviku. 5. Samið verði um kaup iðnnema og verði það ákveðið sem hundraðs- hluti af kaupi sveina í sö‘mu iðngrein: Á 1. námsári 40%, á 2. námsári 50%, á 3. námsári 60, á 4. námsári 70%. V________________________________________________________________—J VINNAN og verkalýðurinn 151

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.