Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Qupperneq 14

Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Qupperneq 14
ILJA EHRENBURG: Leikkonan Framhald. Grisja Mitin er staðinn upp, hann er harðleitur með samanbitnar varir. Lófaklappið vakti Lydíu Nikola- jevnu. Hún hugsaði: Eru þeir í raun. og veru að klappa fyrir mér? En hún hélt áfram að leika. En nú lék hún öðruvísi. Hún var ekki bara Deste- mona, hún var raunveruleg kona, Lydía Nikolajevna — hún elskaði lífið fram úr hófi, vildi gjarnan komast þar á rétta hillu, en enginn bar traust til hennar. Hún talaði með augunum, með mjúkum handhreyfingum, með titrandi röddu. Hún talaði um tryggð, um ást og einveru. Þetta kvöld lék hún sem mikil listakona. Þegar sýn- ingunni var lokið, byrjaði lófaklappið ekki strax. Ahorfendur sátu hreyfing- arlausir. Þeir höfðu komizt við, vegna þess hve örlög mannsins geta stund- um verið raunaleg. Full mínúta leið, áður en lófaklappið hófst — kraft- mikið og ákveðið — það var eins og fólkið ryddist áfram, það var fullt meðaumkunar. Lydía Nikolajevna svaraði með daufu brosi. Hún gekk inn í skrifstofu samyrkju- bússtjórnarinnar, sem»var notað sem fatageymsla handa leikurunum. Fada- jeva sagði: — Þú fórst vel með hlut- verkið í kvöld. En Lydía Nikolajevna heyrði ekkert. Hún var dauðþreytt. Hún litaðist um í herberginu: almanak, blaðahylki, auglýsingaspjald: „Fram til orustu gegn illgresinu!" Henni var ekki enn- þá fyllilega ljóst, hvar hún var niður komin og hvað hafði komið fyrir hana. Það var kveljandi að snúa aftur til fyrra lífs. Hún var kölluð aftur fram á leiksviðið, en hún afsakaði sig með þreytu og fór ekki. Nú er hún ein í litla herberginu, þar sem angar af viðarkvoðu. Hún hugsar kvíðafull: Er það satt? Getur hún í raun og veru leikið? Var allur efi hennar barnalegur kvíði? En þá .... Frá leiksviðinu heyrðist há rödd. Hún fer að hlusta án þess að vilja það: — Fyrir hönd allra félaga samyrkju- búsins látum við í ljós þakklæti vort og lofum á þessu hátíðlega augnabliki að auka mjólkurframleiðsluna og liggja ekki á liði okkar við að taka arfann, svo að þið getið sagt.....— Hún hættir að hlusta. Hún verður giipin mikilli örvæntingu. Hvernig hafði hún getað trúað lófaklappinu? Þetta fólk hefur blátt áfram aldrei fyrr komið í leikhús, .þess vegna var það svona ákaft. Hvað varðar það um örlög Destemonu? Það hefur öðrum hnöppum að hneppa. Sýningunni lauk fyrir augnabliki, og nú er það strax farið að tala um mjólkurframleiðsluna. Þannig er líf þess og ástríður. Til hvers var að leika fyrir það? Eftir að sál hennar hafði lyft sér til hæða á vængjum vonarinnar, kom mikill dapurleiki. Fadajeva sagði: — 156 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.