Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Page 16

Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Page 16
í Moskvu gerast nú stórviðburðir á sviði bygginga. Myndin sýnir eina þeirra stórbygginga, sem reisa skyldi á þessu ári. hinna, eins og hann hefði sjálfur komið fram á leiksviðinu, eins og hann hefði sjálfur skrifað leikritið um þjáningar Destemonu, eins og hann sjálfur tæki þátt í harmleik lífsins ásamt hverjum og einum þessara skeggjuðu manna. Þegar þau gengu frá samkomukomu- húsinu, spurði Mitin: — Má ég fylgja yður? Hún kinkaði kolli. Þau gengu þegj- andi heim að samyrkjubúinu, Lydia Nikolajevna sagði: — Mig langar ekki að fara að sofa .. Þau gengu aftur til árinnar. Lydia Nikolajevna lifði sem í draumi. Henni fannst allt svo óvenjulegt: útskorin hliðin, hundgáin, sem öðru hverju rauf næturkyrrðina, mild rödd fylgdar- mannsins. Grisja talaði um starf sitt, um skóginn, um æskuna. Hún fann, hve mikils virði þessi hartnær ókunni maður var henni þessa stundina. Hana langaði að segja honum eitthvað. En hvað? Þjáningar hennar þekkti hann þegar. Hann hafði heyrt, hvernig Destemona talaði fyrir munn Lydiu Nikolajevnu. Hún varð að segja hon- urn eitthvað, sem gæti glatt hann, sér- staklega eitthvað, sem líktist þessari nótt. Þá datt henni Sjass í hug. Hún sagði Grisju frá grasafræðingnum: ■— Hann segir: „Það spretta bráðum rósir á freðmýrinni!“ Grisja staldraði við og hló með á- nægjuhreim í röddinni: — Já, það segi ég reyndar líka. Mað- ur hefur sitt verk að vinna, svo að maður hefur ekki tíma til að hugsa. En þegar maður fer að hugsa, verður maður svo glaður, að maður gæti 158 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.