Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Page 27
Málverkasýning Veturliða Gunn-
arssonar x haust leiddi að sér
mikla athygli höfuðstaðarbúa, og
aðsókn að þessari sýningu var
ein sú mesta, er menn eiga að
venjast við hliðstæð tækifæri.
Um þennan unga listamann var
deilt mjög í blöðum og sýndist
sitt hyerjum. Lögðu þó margir,
er liðtækir þykja og margs vísir
í þessari listgrein, orð í belg. Ekki
skal hér reynt að kveða upp dóm
í ágreiningsmáli listamanna að
því er snertir þennan unga mann.
En aðsóknin að sýningu hans og
vinsældir hans meðal alþýðu,
mitt í ágreiningi kunnáttumanna,
bendir til, að skýrskotun listar
hans sé ómyrk og sterk.
Vinnan og verkalýðurinn gat
því ekki látið hjá líða að minnast
Veturliða þó í litlu sé. — Birting
þessara mynda og þessi fáu orð
eiga fremur að tákna óskir um
gæfu og gengi honum til handa á
listamannasbrautinnni heldur en
kynningu á list hans.
VETURLISI