Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Side 28

Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Side 28
Árás á verkalyðssamtökin Snorri Jónsson, form Járniðnaðar- mannafélagsins. * 8. sept. s.l. að loknum vinnudegi barst þremur jámsmiðum í Vél- smiðjunni Héðni í Reykjavík bréf frá forstjóra fyrirtækisins, þar sem þeim var sagt upp atvinnu. Þetta kom eins og þruma úr heið- skíru lofti því þessir menn vissu enga sök á sig á vinnustað og allir, sem kunnugir voru, vissu að menn þessir höfðu unnið hjá fyrirtækinu ýmist alla eða mest alla starfsævi sína af hinni mestu trúmennsku eða nánar sagt 14—19 ár samfleytt. Á þessu dæmalausa tiltæki forsjórans hefur ekki fengizt nein skýring nema sú, að honum hafi lengi leikið hugur á að losna við þessa menn, ef marka má hans eigin ummæli í blöðum. Annars þurfti enginn sæmilega stéttþroskaður verkamaður að fara í grafgötur til að finna hið sanna um eðli þessa verknaðar forstjórans, því raennirnir ,sem hann var að stjaka á þennan hátt út af vinnustaðnum voru formaður Járniðnaðarmannafé- lagsins, varaformaður þess og trún- aðarmaður á vinnustað. Hér var um hreinræktaða atvinnuofsókn að ræða. Þegar menn höfðu áttað sig á því hvað skeð hafði og forstjórinn reynzt ófáanlegur til að afturkalla uppsagn- irnar lagði um helmingur jámsmiða í Héðni niður vinnu í mótmælaskyni. Fjöldi verkalýðsfélaga auk Járniðn- aðarmannafélagsins mótmælti at- hæfi forstjórans og skorað var á stjórn Alþýðusambands íslandp að skerast í leikinn til aðstoðar járn- smiðunum. — En þegar ekkert fékkst út úr stjórn A.S.Í. annað en orðaleikur um „alla löglega aðstoð“, á meðan lögbrjóturinn í Héðni fór sínu fram sáu járnsmiðirnir ekki til- gang í að halda mótmælaverkfalli sínu lengur áfram og tóku aftur upp vinnu á fjórða degi. En af hálfu Járniðnaðarmannafélagsins var mál- ið afgreitt í bráð með því að stefna Vélsmiðjunni Héðni fyrir Félagsdóm, samkvæmt ráðleggingu A.S.Í.- stjórnar. Þar með hefur atvinnukúgarinn, með freklegu lögbroti komið fram fólskuverki sínu. Hins vegar má í bezta lagi reikna með því, að Fé- lagsdómurinn láti hann seint og síð- ar meir sæta einhverjum mála- mynda viðurlögum fyrir lögbrotin 170 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.