Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 31

Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Blaðsíða 31
Guðbrandur Guðmundsson sextugur 7. september s.l. var Guðbrandur Guð- mundsson Þórsgötu 15 a., sextugur. Guð- brandar hefur nýlega verið minnst i þessu riti í sambandi við 25 ára hjúskaparafmæli þeirra hjóna, Kristínar Einarsdóttur og hans. Vinnan og verkal. mun því að þessu sinni láta sér nægja að taka undir og árétta allar þær árnaðaróskir, sem Guðbrandi bárust ið þetta tækifæri með því að birta hér tvö kvæði er honum voru flutt á sextugsafmæl- inu. — X — Berðu hvítar hærur heim frá löngu starfi. Þú lagðir vit og vilja til varnar frelsisarfi. Þú spyrnir enn úr spori og sprettur upp til dáða vilji útlent auðmagn oss af dögum ráða. TJngur barstu og aldinn alþýðunnar merki, sást að örugg samtök sigur hlytu í verki, enda varstu, vinur, á vor það hvergi gleyminn, er örbyrgð allra þjóða yfirgæfi heiminn. Þú, Guðbrandur hinn góði gefur dæmið bjarta, eftir tign og auði óskar sízt þitt hjarta. En félaga þinn fallinn feginn viltu reisa og böðulshandar böndin burt af honum leysa. Steyta fengju færri fót á vegi hálum, ef líkt þér ynnu allir að alþýðunnar málum. Nú ættum við að veita þér verðugt heiðursmerki og beita sókn til sigurs. Já, sýna það í verki. M. E. — X — Séð hefk Björk á barði, skjólvana gróa gælulaust. Gnauða vindar, gnaga rætur illar vættir. Eyðist vor jörð. Svo hefur mátt margur sproti, hálfrar aldar hár, í hreti vaxa vöxt sinn allan, en borið þó gróður í grotnuð sár. Fækkar og fýkur fagur gróður, sölna blóm í beði. En íslenzk Björk aldreigi fölnar, unz upp er urin hin aldna rót. J. P. VINNAN og verkalýðurinn 173

x

Vinnan og verkalýðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.