Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Side 38

Vinnan og verkalýðurinn - 15.11.1952, Side 38
/ \ GUNNAR BENEDIKTSSON Hver er hns- bóndiim? \-------------------J Hví er verið að stofna verkalýðsfé- lög og viðhalda þeim. Hví eru þeir, sem á vinnunni þurfa að halda, ekki látnir verðleggja hana sjálfir. Spurðu þá, hvort þeir séu ekki færir um að meta, hvers virði hún er og hvað „at- vinnuvegirnir“ geta borið. Þótt þú flettir öllum atvinnurek- endamálgögnum, sem gefin hafa ver- ið út á íslenzkri tungu frá því fyrsta, þá skaltu aldrei rekast á yfirlýsingu um það, að verkamaður fái of lítið fyrir vinnu sína. í hvert sinn sem verkamaður lætur í ljós, að laun hans séu of lág, þá hefur svarið verið eitt og hið sama á öllum tímum: Því mið- ur ekki hægt úr að bæta, atvinnuveg- irnir í þröng. Það verða allir að sam- einast um að taka á bak sér byrði þessara erfiðu tíma. Meira að segja á hinu ógleymanlega ári 1944, þegar ís- lendingar áttu inni í erlendum bönk- um 600 milljónir króna, og það er meira en 1200 milljónir í dag, þá sagði Tíminn dag eftir dag, að nú riði lífið á að skerða lífskjör vinnandi manna, bæði verkalýðs og bænda. Verkamenn gerðu samtök með sér, af því að þeir fengu augun opin fyrir því, að þeir, sem kjör þeirra ákváðu, höfðu engan rétt til einræðis í þeim efnum. Og þessi samtök kenndu verkamönnum þann sannleika, að það er framlag þeirra í samfélaginu, sem er grundvöllur þess, án þess riðar allt til falls. Vegna þessara samtaka hefur fjöldi verkamanna komizt hjá að láta fjölskyldur sínar líða af skorti mat- ar, klæða eða húsnæðis. Einu sinni töldu hinir sjálfkjörnu herrar þessa lands það glæpsamlegt athæfi, að verkamenn mynduðu með sér samtök. Þátttakendur voru settir á bannlista gagnvart allri vinnu, þeim var bannað frumskilyrði þess að draga fram lífið. Og það er ekki nema aldar- fjórðungur síðan að þess þekktust aæmi hér á landi. Nú lætur enginn slíka fjarstæðu út úr sér, að verka- menn eigi ekki að hafa sín stéttar- samtök. Svona hefur mikið áunnizt á síðustu tveim áratugunum. En ekki vörur er koma frá Sovétríkjun- um eða lýðveldum alþýðunnar. Snemma á árinu 1950, þegar frönsku hafnarverkamennimir fóru fram á að hindruð væri útskipun hergagna er ísra áttu til Frakklands, hafnaði hann þvi með öllu, en í stað þess að verða við þeirri beiðni var hann fremstur 180 í flokki þeirra „verkalýðsforingja" vestan hafs, er tilraun gerðu til að stofna óaldarflokka til að framkvæma verkfallsbrot í höfnum Evrópu. Verka- menn austan hafsins munu naumast verða ginkeyptir fyrir þeirri tegund „frjálsra“ verkalýðssamtaka, sem Rvan er fulltrúi fyrir. VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.