Skógræktarritið - 15.12.1993, Side 53
Falleg stafafura á Hallormsstað. Hún
er vinsælt jólatré, er barrheldin með
afbrigðum, ilmandi og fagurgræn.
Mynd: S.Bl. 13.07.92.
högg að sækja sem jólatré vegna
þess að hún er með grófari grein-
ar og lengri nálar heldur en hin
dæmigerðu grenijólatré, en hefur
bnnið jafnt og þétt á. Hún hefur
afarfallegan grænan lit, ilmarvel
°g er sérlega vel barrheldin.
Þannig virðist hún hafa náð að
trYggja sig f sessi sem jólatré í
stofum landsmanna.
Langmest hefur verið gróður-
sett af stafafuru frá Skagway í
Alaska. Hefurþað kvæmi reynst
agætlega sem jólatré og sama
rr'á segja um kvæmi frá Haines f
Alaska. Eru bæði þessi kvæmi af
svokölluðu strandafbrigði stafa-
furunnar (Piuus conlorta ssp.
contorta), en það virðist henta
noun betur sem jólatré en inn-
landsafbrigðið (Pinus contorta ssp.
wtifolia) vegna heppilegri krónu-
'ögunar.
Eitt af vandkvæðunum við
ræktun stafafuru, sem jólatrés,
tengist því að henni hættir við að
vaxa fullhratt. Því þarf að gæta
þess að gróðursetja hana ekki í
°f frjóa jörð. Einnig eru stofn-
hlykkir algengir. Það hefur orðið
til þess að frekar lágt hlutfall hef-
ur náðst af jólatrjám úr stafafuru-
gróðursetningum. Þetta hlutfall á
að vera hægt að hækka til muna
með því að klippa og brumbrjóta
furuna og gera hana þannig þétt-
ari og jafnari. Einnig er algengt
að þar sem furan stendur óvarin
gagnvart sól og vindnæðingi
verði nálar hennar gulbrúnar.
Þetta má helst varast með því að
gróðursetja hana ekki á algerum
berangri beint á móti sólu.
Markaðurinn fyrir stafafuru
virðist fara vaxandi og undanfar-
in jól höfum við ekki getað annað
eftirspurn. Það ertrúlega vegna
þess að hún er fallega græn, ilm-
ar vel og er afar barrheldin, svo
barrheldin að hún fellir ekki nálar
fyrr en eftir marga mánuði. Þvf
þurfum við að auka til muna
framleiðslu okkar á stafafuru til
að nota sem jólatré.
Blágreni
Blágreni hefur verið nýtt sem
jólatré f litlum mæli, en hefur þó
náð því að verða mest um 7% af
höggnum jólatrjám Skógræktar
ríkisins, en það var árið 1990.
Blágrenið er hægvaxta tegund
og hafa sum kvæmi sem hingað
hafa verið flutt æskilegt vaxtarlag
sem jólatré. Það getur haft þétta
og jafna krónu, er ágætlega barr-
heldið og hefur dökkgrænan lit.
Það hefur gefist vel í ræktun víða
um land og hefur verið gróður-
sett töluvert af því á undanförn-
um árum. Örðugleikar voru á því
að afla fræs af heppilegum
kvæmum og því var gróðursetn-
ing þess afar sveiflukennd milli
ára. Nú í seinni tfð hefur gróður-
setning blágrenis færst mjög f
vöxt, enda auðveldara að afla
fræs en áður, og eins hefur verið
hægt að fá fræ hér heima. Svo
virðist sem kvæmi frá Colorado
hafi hæst hlutfall nýtanlegra
jólatrjáa, en að sjálfsögðu má
auka nýtingarhlutfallið enn meira
Blágreni hentar vel sem jólatré og
má rækta víða um land. Myndin er
tekin í Daníelslundi í Borgarfirði.
Mynd: J.G.P. 18.10.92.
með klippingu. Blágreni blandast
hvítgreni og því þarf að gæta
þess að nota kvæmi sem eru ör-
ugglega ekki hvítgreniblönduð
vegna þess að hvítgreninu fylgir
óþægileg lykt.
Á blágreni herjar skordýr sem
fluttist hingað með innfluttum
jólatrjám og kallast sitkalús. Hef-
ur hún valdið skaða á trjám víða
um land og getur valdið það
miklum skemmdum á jólatrjám
að þau verða ósöluhæf. Gegn
lúsinni verðum við þvf að nota
efni sem drepa hana og gæti því
þurft að úða blágrenijólatré.
Þetta á sérstaklega við þau svæði
landsins þar sem óalgengt er að
vetrarfrost fari undir -*-10°C, en
það slær mjög á lúsina. Með
þessu móti er auðvelt að halda
lúsinni í skefjum. Þetta eykur.þó
kostnað við ræktunina. Önnur
óþrif, sem skemmt gætu blá-
grenijólatré, hafa ekki verið telj-
andi.
Markaður virðist vera góður
fyrir blágreni því það er fallega
grænt og barrheldið. Er það sú
tegund sem við gætum ræktað
skógræktarritið 1993
51