Skógræktarritið - 15.12.1993, Side 59

Skógræktarritið - 15.12.1993, Side 59
og lægsta flokki. Þannig er hægt að höggva tré sem hafa lakara út- Iit og selja í lægri flokki fyrir lægra verð. Þannig getur kaup- andinn valið sér tré eftir því sem fjárhagur hans leyfir. Þetta höf- um við ekki gert og fara öll tré í sama flokk. Ef við tækjum upp gæðaflokkun gætum við hugsan- lega hækkað verð bestu trjánna, en í staðinn lækkað verð þeirra lakari. Alla þessa þætti verðum við að taka til athugunar sem allra fyrst. Hvert árið sem líður án umbóta er tapað og ekki hægt að vinna upp aftur. Hvar á að rækta jólatré? Jólatrjáræktun gengur ekki hvar sem er á landinu frekar en önnur nytjaskógrækt. Eru það veður- farsskilyrðin sem ráða þar mestu um. Þó má sjálfsagt rækta harð- gerar tegundir á borð við stafa- furu og blágreni með góðum arangri víðar en margur hyggur. Fjallaþinur og rauðgreni gera hins vegar meiri kröfur til veður- fars og jarðvegsskilyrða og er ekki hægt að rækta með full- nægjandi árangri eins víða.7 Almennt má segja að jólatrjá- ræktun þurfi að fara fram á veð- ursælum og frjósömum stöðum. Gott er ef þeir eru birki vaxnir, en það fer þó eftir því hvaða tegund- ir á að rækta. Skjóli má einnig koma upp með skjólbeltum eða forræktun annarra trjátegunda, svo sem birkis eða lerkis. Þó ber að gæta þess að lerkið fellir barr- ið á haustin og geta nálarnar set- ið í jólatrjánum, mun frekar en lauf lauftrjáa. larðvegsskilyrði þurfa að vera góð, en þó má rækta furutegund- ir á nokkuð rýru landi. Hefur gef- ist vel að rækta furu á skjólgóð- um lyngmóum. Einnig má laga jarðvegsskilyrðin mikið með jarð- vinnslu og áburðargjöf. Gæta þarf þess vandlega að sneiða hjá stöðum þar sem hætta er á að kalt loft sitji, þ.e. kuldapollum. Getur því víða verið erfitt að rækta jólatré á algeru flatlendi. Betra hefur reynst að rækta þau í einhverjum halla. Kostur er að jólatrjáræktunin sé stunduð í nágrenni þéttbýlis þannig að sem minnstur kostn- aður fari í flutninga. Eins geta veður og færð verið válynd þegar líða tekur að jólum og þvf heppi- legt að sem styst sé að fara með trén. Þá er frekar hægt að höggva tré jafnóðum eftir því sem salan segir til um. Því ætti að vera hag- kvæmast að rækta sem mest af jólatrjám sem næst Stór-Reykja- víkursvæðinu, en þar er langstærsti markaðurinn. Þó ber að líta á það að flutt eru hingað tré í gámum með skipum frá Danmörku. Því er flutnings- kostnaður ekki svo afgerandi þáttur að ekki megi flytja tré hér milli landshluta. Hvaða tegundir á að rækta? Eins og.áður sagði höfum við nú áralanga reynslu af ræktun fjög- urra tegunda sem jólatrjáa, þ.e. blágrenis, fjallaþins, rauðgrenis og stafafuru, og eins af ræktun sitkagrenis/hvítsitkagrenis til að nota sem stórt torgtré. Þessar tegundir hafa allar reynst vel sem jólatré. Eru þetta þvf þær teg- undir sem beinast liggur við að nota sem uppistöðu í jólatrjá- ræktun framtíðarinnar. Aðalatriði er að auka ræktun tegunda sem geta keppt við innfluttu trén og eru sambærileg þeim hvað varð- ar barrheldni. Þar höfum við teg- undirnar fjallaþin og blágreni, en þær eru fyllilega sambærilegar við innflutta nordmannsþininn Skógarfura í Setbergsskógi við Stykkishólm. Hún er ræktuð sem jólatré víða um heim og kæmi vel til greina hér á landi sem jólatré. Mynd: J.G.P. 31.10.92. hvað varðar barrheldni. Þær taka honum meira að segja fram hvað varðar ýmsa þætti eins og ilm og þéttleika. Með ræktun þeirra er því hægt að uppfylla óskir mark- aðarins. Nokkrar aðrar tegundir, sem við höfum áralanga reynslu af, gæti einnig komið til greina að rækta sem jólatré hér á landi. Ætla ég að fjalla lítillega um nokkrar þeirra tegunda, sem ég tel hugsanlega koma til greina í jólatrjáræktun til viðbótar þeim sem áður hafa verið nefndar. Skógarfura (Pinus silvestris) Mikið var gróðursett af skógar- furu á árunum 1950 - 1960. Sú gróðursetning bar ekki tilætlaðan árangur vegna skordýrsins furulúsar (Pineus pini), sem herj- aði á trén. Trjánum fór hins vegar vel fram f uppvexti eftir gróður- setningu og náðu oft 1 - 2 m hæð áður en lúsin gekk af þeim dauð- um. Þessi vágestur er talinn hafa borist hingað með innfluttum plöntum. Nú í seinni tíð hafa menn farið að veita athygli nokkrum skógarfurutrjám sem eftir lifa vftt og breitt um landið. Þar er e.t.v. fundinn efniviður til að byggja á í framtíðinni. SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993 57
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Skógræktarritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.