Skógræktarritið - 15.12.1993, Blaðsíða 77
Fágætar trjátegundir á íslandi
SIGURÐUR BLÖNDAL
Sveigfura
(Pinus flexuis James)
Ræktun á íslandi
Fáir þekkja þessa trjátegund á fs-
landi. Hér skulu sögð á henni
deili og sagt frá reynslu af ræktun
hennar hérlendis. Sú reynsla ætti
að hvetja til þess að rækta hana
vfðar en gert hefir verið.
Sveigfura var fyrst flutt til
landsins árið 1937. Þærplöntur
voru fengnar úr gróðrarstöðinni
á Álastarhaugi á Hálogalandi f
Noregi." Nokkrar fleiri trjáteg-
undir voru fluttar hingað þetta ár
úr þeirri gróðrarstöð og eru nú
meðal höfuðprýði Markarinnar
á Hallormsstað.
Af sveigfurunni voru gróður-
settar 1.000 plöntur þetta ár,
skammt sunnan við Mörkina,
ásamt nokkrum öðrum trjáteg-
undum. Nú er vaxinn þar upp all-
vænn skógarteigur af sveigfuru.
Þarna eru jarðvegsskilyrði góð,
en samt voru plönturnar lengi að
taka við sér, svo að eftir 15 ár
bjuggust menn vart við, að þær
kæmust nokkurn tfma á legg. En
úr því brá svo við, að þær tóku að
silast af stað og síðustu 30 árin
hafa þær dafnað afbragðsvel og
áfallalaust. Hæsta tréð er nú
10,80 m hátt, en meðalhæð er
7,5-8,0 m.
Sveigfuran á Hallormsstað fór
að blómgast að ráði um 1980 og
ber nú fræ árlega og í auknum
mæli.
Svarthvfta myndin, sem hér
fylgir með, er tekin í teignum á
Hallormsstað í apríl 1990, en
önnur litmyndin er af trjám í
garði á Hallormsstað, tekin
haustið 1991. Þau tré voru stung-
in upp með hnaus og flutt í garð-
inn líklega um eða upp úr 1965,
þá liðlega 1 m á hæð.
Lengi vel vissi ég ekki af sveig-
furu frá þessum tíma annars
staðar á landinu. En einhvern
tíma á síðastliðnum áratug rakst
ég á hana á tveimur öðrum stöð-
um: f Gunnlaugsskógi f Gunnars-
holti og við skólasel Gagnfræða-
skólans á ísafirði f Tungudal. Mér
þykir Ifklegt að þau tré séu úr
sömu sendingu og trén á Hall-
ormsstað.
Sveigfurutrén í Gunnarsholti
vaxa í ungum birkiskógi og eru
miklu síðri en trén á Hallorms-
stað. ísafjarðartrén eru sýnu lök-
ust og þarf engan að undra það,
þegar hann les hér á eftir um
heimkynnin. Meðfylgjandi mynd
af þeim tók ég 24. september
1988.
Eftir því sem lesa má f gróðrar-
stöðvarskýrslum var sveigfuru
fyrst sáð hérlendis á Tumastöð-
um árið 1959. Úrþeirri sáningu
voru 200 plöntur afhentar árið
1966.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
75