Skógræktarritið - 15.12.1993, Síða 69
sunnar en syðsti hluti íslands,
þ.e. landræman sunnan Mýrdals-
jökuls. Eru þau um 50 km frá
ströndinni f kringum vötnin
Syðra og Nyrðra Dellen.
Aðaltrjátegundirnar eru, eins
og vænta mátti, skógarfura og
rauðgreni en síðari ár hefur tölu-
verðu verið plantað af stafafuru
til að auka viðarvöxt. Á þessum
slóðum á Iggesund-fyrirtækið
300.000 ha skóglendis, en þar af
eru 257 þús. ha nýtanlegur skóg-
ur. Árlega eru um 1/2 millj. m3
viðar felldir úr eigin skógum, sem
jafngildir helmingi þess viðar-
magns sem pappaverksmiðja og
sögunarmylla fyrirtækisins f Ig-
gesund þurfa til framleiðslu sinn-
ar.
Á ferðum okkar um skógana
var okkur kynnt flest það er lýtur
að ræktun þeirra, s.s. val á trjá-
tegundum og kvæmum, plöntu-
uppeldi, jarðvinnsluaðferðir og
umhirða skógar allt til loka upp-
skeru. Okkur var skýrt frá þvf
hvaða aðferðum er beitt við
hverja lotu (lfftíma) hverrartrjá-
tegundar við mismunandi vaxtar-
skilyrði, en hún ákvarðast af að fá
sem mesta arðsemi af ræktun-
inni á sem stystum tíma. Hver
lota getur spannað 90 til 130 ára
tímabil.
Það, sem vakti sérstaklega at-
hygli okkar var, í sem fæstum
orðum þetta: Markviss ræktunar-
tækni byggð á traustum fagleg-
um grunni, mikil verkaskipting og
þróuð vélvæðing. Þetta á ekki
síst við um þá þætti í rekstri fyrir-
tækisins, sem lúta að sjálfri skóg-
ræktinni, s.s. plöntuuppeldi.
Plöntuuppeldi
Fyrirtækið rekur eigin gróðrar-
stöð í Friggesund, sem framleiðir
10 millj. fjölpottaplantna á ári til
eigin nota. Aðeins 4 starfsmenn
vinna þar árið um kring, en á
mesta annatfma sumarsins vinna
f stöðinni að jafnaði 15 manns.
Sá mikli árangur, sem náðst
hefur f plöntuuppeldinu í Frigge-
sund byggist að miklu leyti á svo-
kallaðri „rauðri lfnu" (röda
linjen), en hún gengur út á, að
eftir að vélsáð hefur verið f fjöl-
pottabakka eru þeir settir á upp-
hækkaðar járngrindur til þess að
rætur vaxi ekki niður úr pottun-
um og til hægðarauka við flutn-
ing. Komast 60 bakkar af gerðinni
FP-67 á hverja grind, eða rösk-
lega 4.000 plöntur. Á þessum
grindum standa plönturnar allan
ræktunarferilinn, hvort heldur
sem þær eru inni í gróðurhúsi
eða utanhúss, allt til þess að þær
eru fluttar á útplöntunarstað
með bílum eða þyrlum. f plöntu-
uppeldinu er grannt fylgst með
flestum vaxtarþáttum, s.s. raka-
og hitastigi, næringarinnihaldi
plantna vegna áburðargjafar og
er þeim stýrt með tölvu. Þá er vel
fylgst með veðurútliti, en gróðr-
arstöðin fær daglega sendar spár
frá veðurstofunni í Sundsvall.
Spárnar gilda fyrir eitt dægur,
eða fyrir veðurhorfur 5 næstu
dægra, þar sem gefið er upp
hæsta og lægsta hitastig, hætta á
frosti undir-s-5°C, vindhraði og
vindátt og væntanlegt úrkomu-
magn.
í gróðrarstöðinni sáum við nýja
gerð fjölpotta, sem eru af finnskri
gerð. Þeir eru ólfkir eldri fjölpott-
um að því leyti, að veggur hvers
potts er ekki heill, heldur rofinn
með langstæðum raufum til að
beina rótarvexti út til hliðanna.
Með þessu er reynt að koma f veg
fyrir rótarsnúning hjá stafafuru,
en hann veldur því að hún mynd-
ar óeðlilegt rótarkerfi eftir út-
plöntun. Svo rammt getur kveðið
að þessu sumstaðar, að ung tré
velta um koll. Við sáum dæmi
um þetta, og virðist ágallinn vera
meir áberandi á plöntum, sem
gróðursettar eru í frjóan jarðveg,
en á ungviði í rýrari jarðvegi.
Hérlendis kemur þetta fyrir vfða
á skjóllitlum og snjóþungum
stöðum, og er því ástæða til að
prófa hina nýju gerð fjölpotta í
gróðrarstöðvum hér.
Jarðvinnsla
Svfar telja að hverskonar jarð-
vinnsla, hvort heldur er á mýr-
lendi eða þurrlendi, sé skilyrði
fyrir þvf að koma upp nýmörkum
á skjótan og árangursríkan hátt,
en útfærsla gróðursetningar, á-
samt réttu vali á trjátegundum,
ræðst m.a. af henni. Val á væn-
legri jarðvinnsluaðferð getur því
verið mjög breytilegt innan hvers
svæðis, þar sem víðlendur skóg-
ur hefur verið gjörfelldur, og er
þá höfð til hliðsjónar veðrátta og
gróskuskilyrði.
Skógarhögg
Lengi vel hafa Svíar verið ásakað-
ir fyrir stórkarlalegt skógarhögg,
enda stingur það mjög f augu,
þegar getur að lfta heilu skógar-
hlíðarnar rúnar öllum trjágróðri.
En hér sem áður ráða hag-
kvæmnissjónarmiðin ferðinni.
Stórar, afkastamiklar og dýrar
vinnuvélar eru notaðar við jarð-
vinnslu, grisjun skógar og sjálft
skógarhöggið. Stærstu skógar-
höggsvélarnar kosta um 1,5 millj.
sænskra króna, svo ekki er að
undra þótt rekstrareiningar séu
stórar og unnið sé á vöktum við
skógarhöggið.
Gróðursetning
Segja má að nær öll skógarvinna
sé nú unnin með vélum að frá-
taldri gróðursetningu, en víðast
hvar er við útplöntun notað verk-
færi, af finnskri gerð, svokölluð
holpípa. Er bakkaplöntum rennt
gegnum sfvalning, að sverleika
sem passar fyrir hverja plöntu-
gerð. Með þessari plöntunarað-
ferð sleppur sá sem gróðursetur
við að beygja sig niður til að
setja plöntuna í jörðina, en það
léttir mjög vinnuna. Forvitnilegt
væri að reyna þetta áhald hér,
þar sem jarðvegur er látinn
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
67