Skógræktarritið - 15.12.1993, Page 103
EVAG. ÞORVALDSDÓTTIR
Garðplöntur
fyrir fslenskar
aðstæður
Garðyrkiuskóli ríkisins stóð
fyrir námskeiði um
garðplöntur fyrir íslenskar
aðstæður í febrúar síðastliðnum.
Viðfangsefnið var tvískipt: annars
vegar var fjallað um söfnun, próf-
anir, kynbætur og úrval á garð-
og skógarplöntum og hins vegar
um plöntustaðla. Námskeiðið
höfðaði til ýmissa aðila sem
vinna við trjárækt og þeirra sem
nota og skipuleggja trjágróður,
en það sóttu m.a. garðplöntu- og
skógarplöntuframleiðendur, full-
trúar skógræktarfélaga, garð-
yrkju- og umhverfisstjórar bæjar-
félaga, skrúðgarðyrkjumenn,
landslagsarkitektar og rannsókn-
armenn innan trjáræktar. Gestur
námstefnunnar var Poul Erik
Brander, en hann starfar við til-
raunastöð Dana í plöntukynbót-
um í Árslev á Fjóni. Fjölmörg fs- .
lensk erindi voru flutt á nám-
skeiðinu, og gáfu þau gott yfirlit
yfir það helsta sem verið er að
vinna að á þessu sviði hér á
landi. Stefnt er að því að gefa út
heildarrit um öll erindi nám-
skeiðsins í Garðyrkjufréttum
Garðyrkjuskóla ríkisins. í þessari
grein verður annars vegar fjallað
um danskar úrvalsathuganir á
trjáplöntum og hins vegar um ís-
lenskan plöntustaðal fyrir tré og
runna.
Úrvalsathuganir
f Danmörku hefur frá þvf 1965
verið unnið kerfisbundið að úr-
valsathugunum á garðyrkjuplönt-
um.
Sama úrvalskerfi er fyrir allar
garðyrkjuafurðir svo sem potta-
plöntur, grænmeti, ávaxtatré og
garðplöntur, og hefur Poul Erik
Brander unnið brautryðjanda-
starf við það að byggja upp úr-
valskerfi fyrir tré og runna.
Það er alþekkt að trjákenndur
garðagróður er mjög mismun-
andi milli einstaklinga sömu teg-
undar og innan sama yrkis (sort),
og hafa ýmsar rannsóknir stað-
fest þennan breytileika (Brander
1971, 1980, 1981). Þetta stafaraf
því að garðplöntu- og uppeldis-
stöðvar hafa notað mismunandi
og óþekkta klóna af sömu tegund
og marga mismunandi klóna af
sama yrkinu. Breytileikinn getur
komið fram í ýmsum eiginleikum
trjáa og runna, t.d. frost-og vetr-
arþoli, vaxtarlagi, næmi fyrir
sjúkdómum, vaxtarhraða og
þlómgunargetu. Það er því mjög
æskilegt að gera yrkja- og klóna-
athuganir til þess að velja úr eft-
irsóknarverða einstaklinga, sem
hægt er í framtíðinni að byggja
framleiðsluna á. f þeim tilgangi
hafa Danir byggt upp úrvalskerfi
sitt (sjá mynd).
Yfirumsjón með úrvalsvinn-
unni hafa klóna- og frænefndir
(Brander 1982). Önnurnefndin
sér um úrvalsvinnu með plöntur
sem fjölgað er kynlaust og hin
með plöntur sem fjölgað er með
fræjum. Einstaklingar, stofnanir
og samtök garðyrkjumanna og
landslagsarkitekta geta komið
með uppástungur og ábendingar
til klóna- og frænefnda, en það er
í höndum nefndanna sjálfra að
taka ákvörðun um verkefni og
raða þeim í forgangsröð. Mestan
forgang fá plöntur sem eru lang-
lífar og þær sem gegna sérstæðu
hlutverki t.d. skjólbeltaplöntur,
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1993
101