Skógræktarritið - 15.05.1999, Side 33
Salix lanata ssp. richardsonii - loðvíðir
Salix monticola - eirvíðir
Salix niphoclada - auðnuvíðir
Salix ovalifolia - (íslenskt nafn
vantar)
Salix planifolia ssp. pulchra - dem-
antsvíðir
Salix scouleriana - sviðjuvfðir
Salix sitchensis - sitkavíðir
Þessir 1146 víðiklónar heyra und-
ir 161 söfnunarnúmer, sem sum
innihéldu allt upp f 30-40 mis-
munandi klóna hvert, oft af sömu
víðitegund en ekki alltaf.
Af söfnunarnúmerunum voru
32 hrein, þ.e.a.s. innihéldu bara
eina vfðitegund og einn klón. 129
söfnunarnúmer voru blönduð og
innihalda því 1114 mismunandi
vfðiklóna.
Af 1146 upprunalegum vfði-
klónum eru 60 útdauðir á landinu
öllu.
Á Reykjum voru aldir upp 937
vfðiklónar frá Alaska og 209 víði-
klónar frá Yukon, samtals 1146
klónar. Af þeim skiluðu sér í
gróðursetningu 808 frá Alaska og
188 frá Yukon, samtals 996 klón-
ar, en hinir 150 dóu af ýmsum
ástæðum eða rótuðu sig ekki.
Um 3500 plöntur fóru alls af víði-
plöntum í tilraunareitinn.
Víðiklónarnir 209 frá Yukon
voru skoðaðir og mældir eins og
allt annað, en hrakaði það mikið
á fyrstu 8 árum tilraunarinnar og
hreinlega dóu í svo stórum stfl,
að ég ákvað að sleppa alveg að
gera upp þann hluta víðitilraun-
arinnar, og treysta á niðurstöður
frá Hafursárreitnum við Hall-
ormsstað.
Af 808 gróðursettum vfðiklón-
um frá Alaska dóu 65 út, og 743
klónar voru því skoðaðir út allt 9
ára tímabilið. Af þeim bera 166
víðiklónar af á Reykjum og víðar,
en framleiðendur garðplantna og
skjólplantna geta tæplega haldið
uppi framleiðslu á 166 nýjum
víðiklónum í viðbót við það sem
þegar er f framleiðslu í landinu.
Ofangreindar tölur eru allar frá
því árið 1995, þegarég skilaði af
mér Alaskaverkefninu öllu í formi
margháttaðra upplýsinga í einni
möppu til allra aðila í Gróður-
bótafélaginu.
Valforsendur
Allan tilraunatímann var kalið
mælt á hverjum runna, og útlit
hans metið með tilliti til hraust-
leika og hvernig lauf stendur af
sér hin ýmsu veður. Áberandi
fallegir runnar, eða sérkennilegir
voru merktir sérstaklega og þá
hvað það væri, sem gerði þá sér-
staka. Þeim runnum sem eru illa
aðlagaðir loftslaginu á hverjum
stað, hrakaði yfirleitt mjög fljótt
og voru sumir horfnir með öllu á
4. og 5. ári, á meðan aðrir tóra
ennþá. Er þetta mjög áberandi
sunnanlands nema f reitnum í
Haukadal. í Haukadal er miklu
meira staðviðri á veturna og þríf-
ast því runnar úr meginlands-
I
P
o
Œ
a
cn
<
- Kal 0
- Kal 1 Lítiðkai, 4-20%
— Kal 2
Ekkert eða sama og
ekkert kal, 0-3% af
lengd síðasta árs
sprota
Aberandi kal,
■ Kal 3
■ Kal 4
Mjög mikið kal,
46-90%
Allur ársvöxtur kalinn,
5
CC
CL
C/)
2
<
CNJ
Tveggja ára viður
kalinn
loftslagi oft vel, á meðan þeir
verða oftast að engu nær sjó, þar
sem umhleypinga gætir meira.
Allt þetta er að sjálfsögðu skráð
samviskusamlega á hverju ári.
Það sem vegur þyngst við mat
á runnunum, sem eftir standa, er
kaltilhneigingin. Hún gefur okkur
mynd af runnanum í gegnum
árin, hvernig hann bregst við hin-
um ýmsu tilbrigðum veðursins.
Út úr þeim lestri komu síðan of-
angreindir 166 klónar vel út, með
að jafnaði lítið eða ekkert kal,
með örfáum undantekningum þó
(sjá t.d. Stjörnu).
Kalmæling fór fram að vori eða
um leið og færi gafst. Kal er met-
ið út frá skalanum 0-4, þar sem 0
er ekkert kal og 4 þýðir að nær
allan sprota sfðasta árs hefur
kalið (sama sem ekkert eftir lif-
andi nema greinar eldri en
tveggja ára). Tölurnar á milli 0 og
4 deilast ekki jafnt niður á lengd
ársprotans eins og ætla mætti.
Mismunandi mikið kal hefur mis-
munandi áhri'f á útlit runnans og
þar með tilfinningu okkar fyrir
þvf. Kalmælingin skiptist þvf
þannig:
0 er ekkert kal (0-3% af sprot-
anum kalinn hjá víði).
1 er kal sem nær niður að 20%
af lengd ársprotans (4-20% af
sprotanum kalinn).
2 er kal sem nær niður að 45%
af lengd ársprotans (21-45% af
sprotanum kalinn).
3 er kal sem nær niður að 90%
af lengd ársprotans (46-90% af
sprotanum kalinn).
4 er kal sem nær niður allan
ársprotann (91-100 % af sprotan-
um kalinn).
Sjá skýringarmynd.
Á teikningunni er sýnt hvernig kalið er
metið t.d. á víðitegundum og öðrum
trjám og runnum, sem ekki mynda
eiginlegt endabrum. Aspir hafa hins
vegar ekta endabrum, eins og allir
geta séð, og hjá þeim þýðir 0 í mati á
kali, að endabrumið sé heilt, en sé
það ekki heilt, fær öspin kalmatið 1.
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1999
31