Skógræktarritið - 15.05.1999, Side 52
A. Stafafura, Pinus contorta, er hér
fyrst nefnd til leiks. Öll kvæmin af
henni á Reykjum eru ættuð frá
Yukon. Plönturnar voru settará
skjólgóðan stað og uxu vel til að
byrja með. En í skjóli leggst meiri
snjór, og eftir 2 vetur höfðu flest-
ar plönturnar svignað niður í
gras, sem kæfði þær alveg. Fram
að gróðursetningu höfðu plönt-
urnar vaxið áfallalaust í pottum,
og virtust ekki taka umhleyping-
ana á Reykjum nærri sér. En stað-
setning þeirra á full-grasgefnum
stað virðist frekar hafa orðið þeim
að aldurtila en veðurlagið. Örfáar
plöntur standa keikar eftir. Verður
fróðlegt að sjá hvernig sömu inn-
landskvæmi koma út í tilraunum
Mógilsármanna.
B. Marþöll, Tsuga heterophylla (9
kvæmi) og fjallaþöll, Tsuga mer-
tensiana (6 kvæmi), voru fjögur ár í
uppeldi og styrktar mjög, áður en
lagt var f að gróðursetja þær. Þær
þurfa skjól og skugga í uppvextin-
um, og fundust slfkir blettir inn-
an um elsta sitkagreniskóginn á
Reykjum, eftir grisjun þó. Um
helmingur plantnanna var settur
þar, en hinn helmingurinn innan
um lítil sitkagrenitré sunnan til í
fjallinu, þar sem fullrar sólar nýt-
ur. Á sfðastnefnda staðnum hefur
plöntunum fækkað nokkuð, en
eftir standa státnir einstaklingar,
sem lofa góðu, Ifklega svo lengi
sem skjóls nýtur. En á betri
staðnum eru þrifin hins vegar
jafnari og mikið af ákaflega
fallegum plöntum að vaxa upp í
skjólinu og skugganum. f grófum
dráttum má lesa eftirfarandi upp-
lýsingar út úr þrifum þallanna á
Reykjum:
Fjallaþöll frá Kenaiskaga þrífst
vel, og marþöll frá sama svæði og
einnig frá Skagway þrífst vel.
C. Alaskasýprus, Chamaecyparis
nootkatensis, af einu kvæmi frá
Cedarvík inn af Prince William
flóa, er einnig þar f einu rjóðrinu
og þrífst og stækkar. Mun þetta
vera norðlægasta kvæmið af
þessari tegund í Norður-Amerfku
allri, svo að harðgerðari stofn
finnst varla.
D. Fjallaþinur, Abies lasiocarpa, af
einu kvæmi frá Windy Arm í 700
my.s. íYukon þrífst einnig vel í
skógarskjólinu, en afföll eru mikil
á meiri berangri annars staðar á
Reykjum.
Þrjár grenitegundir og einn greni-
blendingur úr Alaskasafninu eru
á Reykjum. Hverju kvæmi var
skipt á tvo staði, annars vegar
meira áveðurs í hlíð sem snýr á
móti suðvestri, og hins vegar á
skjólbetri stað sunnan við
Reykjafjall.
E. Af svartgreni, Picea mariana,
voru 6 kvæmi gróðursett. Sum
kvæmin eru alveg útdauð, og
mjög erfitt er að sjá mun á því
sem eftir er. Þrif svartgrenisins á
Reykjum virðast almennt vera
slæm.
F. Af hvítgreni, Picea glauca, voru
12 kvæmi gróðursett. Sum kvæm-
in eru alveg útdauð, og mjög
erfitt er að sjá mun á því sem eft-
ir er. Grasvöxtur hefur sums stað-
ar hamlað mjög vexti, og þau
kvæmi sem helst komu tii greina,
hafa því ekki getað sýnt sínar
bestu hliðar. Helst veðja ég á eitt
kvæmið frá Soldotna, sem er ná-
lægt sjó á Kenaiskaga.
G. Af sitkagreni, Picea sitchensis,
voru 6 kvæmi gróðursett. Þrjú af
kvæmunum skera sig úr og þríf-
ast mjög vel, en þau eru sótt:
Austan við Ressurrectionvfk, í
60-100 m y.s. nálægt Seward á
Kenaiskaga, í Dyea við Skagway
og í Cordovabæ. Hin þrjú kvæm-
in eru ójafnari.
H. Af sitkabastarði, Picea x lutzii,
voru 4 kvæmi gróðursett. Öll
kvæmin eru frá miðjum Kenai-
skaga og eru þrifleg, þar sem gras
hefur ekki hamlað vexti þeirra.
Elri
Þrjár tegundir af elri voru gróður-
settar á Reykjum. Uppeldi í fjöl-
pottum tók tvö ár. Gróðursett var
á beð og látið vaxa í þrjú ár. Tíu
plöntur voru valdar af handahófi
af hverju kvæmi og endurgróður-
settar með góðu millibili í nýjan
tilraunareit, þar sem þær fá að
standa óáreittar í mörg ár. Hinar
plönturnar voru endurgróður-
settar „holt og bolt" í urð og
grjót og móa ofarlega í suðurhlíð
Reykjafjalls, þar sem þær nú
nokkrum árum seinna eru farnar
að vekja eftirtekt fyrir mikla
grósku. Samanburður á elri-
kvæmunum annars staðar á
landinu er í höndum starfsfólks
Mógilsár og Landgræðslunnar,
en hér verður dregið fram það
helsta, sem lesa má úrtilrauna-
reitnum á Reykjum.
A. Grænelri, Alnus crispa, 8 kvæmi
voru gróðursett. Grænelri er lág-
vaxinn og þéttgreinóttur runni,
og norðlægustu kvæmin vaxa
bara örfáa sentimetra á Reykjum,
og mynda því algjöra dvergrunna.
Ekki virðist vera mikill munur á
milli kvæma- í kali, og því sýnist
mér kröftugasta kvæmið, sem
hefur myndað 1,5 m háa og
breiða brúska, vera álitlegast.
Það er kvæmi frá Bethel í Suð-
vestur-Alaska.
B. Sitkaelri, Alnus sinuata, 22
kvæmi voru gróðursett. Sitkaelri
getur myndað gríðarstóra runna
eða margstofna lágvaxin tré.
Mörg kvæmanna koma mjög vel
út og eru nú hátt á þriðja metra á
hæð. Má segja að nýta megi
flestöll kvæmin frá vesturhluta
Kenaiskaga, suður um Cordova-
svæðið og Yakutatsvæðið. lafnvel
kvæmi frá Haines í Suðaustur-
Alaska er þokkalegt. Fræmyndun
50
SKÓGRÆKTARRITIÐ 1999