Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 39

Skógræktarritið - 15.05.1999, Page 39
ÞORRI - er góður f öllum til- raunareitum (Reykir, Prestsbakki, Hvanneyri, Haukadalur, Selpart- ur), einnig nálægt sjó sunnan- lands. Náð var í Þorra í Ninilchik á vesturströnd Kenaiskaga, ca. 60°N. Lýsing: Stór, miðlungsgrófur og karlkynsblómstrandi runni (um 2,4 m á hæð á Reykjum '95). Blöð eru þéttstæð, lensulaga og Ijós- græn. Vetrarsprotar eru loðnir og börkur gulgrænbrúnn. Sumar- sprotar eru grænir og kafloðnir og Ijúka þeir vexti fyrir miðjan september. Framleiðsla á Þorra gengur vel, og kelur hann iítið eða ekkert. Sprotar vaxa um 60-100 cm á ári. GÓA - er af sama kvæmi og Þorri og má því ætla, að hún sé góð á sömu stöðum og hann. Náð var í Góu í Ninilchik á vesturströnd Kenaiskaga, ca. 60°N. Góa er til á Reykjum og Prestsbakka. Lýsing: Grannvaxinn, þéttgrein- óttur, miðlungsgrófur og kven- kynsblómstrandi runni (um 2,8 m á hæð á Reykjum '95). Blöð eru frekar mjó og lítil. Vetrarsprotar eru grænbrúnir til brúnir. Sumar- sprotar ljúka vexti fyrir miðjan september. Framleiðsla á Góu gengur sæmilega til vel, og kelur hana lftið. Sprotar vaxa um 40-60 cm á ári. GARRI - er góður f öllum til- raunareitum (Reykir, Haukadalur, Selpartur), einnig nálægt sjó sunnanlands. Náð var í Garra við jökulfljótið Dangerous íYakutat í Suður-Alaska, ca. 59°30’N. Lýsing: Stór, grófur og karl- kynsblómstrandi runni (um 3 m á hæð á Reykjum '95). Blöð eru mjög breið. Vetrarsprotar eru loðnir og börkur grænn. Sumar- sprotar eru grænir og Ijúka vexti í byrjun september. Framleiðsla á Garra gengur sæmilega til vel og kal er lítið. Sprotar vaxa um 60-100 cm á ári. HVINUR - er af kvæmi með mörg- um mismunandi klónsnúmerum (arfgerðum), sem víðast hvar eru góð. Náð var í Hvin nálægt skrið- jöklinum Sheridan í Suður-Alaska, ca. 60°30'N. Hvinur er til á Reykjum og Hvanneyri. Lýsing: Grannvaxinn, miðl- ungsgrófur til fíngerður og karl- kynsblómstrandi runni (um 4 m á hæð á Reykjum). Vetrarsprotar eru með grænbrúnum berki. Sumarsprotar Ijúka vexti í byrjun september. Framleiðsla á Hvin gengur vel, og kelur hann ekkert. Sprotar vaxa um 60-100 cm á ári. MÁNI - er góður í öllum tilrauna- reitum (Reykir, Haukadalur, Sel- partur, Hvanneyri) og klónaraf sama kvæmi fyrir norðan og vest- an standa sig einnig vel. Náð var í Mána við jökulána Sheridan í Suður-Alaska, ca. 60°30'N. Lýsing: Grannvaxinn, miðl- ungsgrófur til fíngerður og karl- kynsblómstrandi runni (um 4 m á hæð á Reykjum og í Haukadal ‘95). Vetrarsprotar eru þunn- hærðir í þyrjun vetrar, og börkur grænbrúnn og dálítið rauðleitur. Blöð eru fínleg. Sumarsprotar ljúka vexti í byrjun september. Framleiðsla á Mána gengur vel, og kelur hann ekkert. Sprotar vaxa um 40-50 cm á ári. GÁTA - er af kvæmi með mörg- um mismunandi klónsnúmerum (arfgerðum), sem víðast hvar eru góð, einnig nálægt sjó sunnan- lands (Reykir, Selpartur). Náð var í Gátu í Borrow Pit við jökulfljótið Copper í Suður-Alaska, ca. 60°30'N. Lýsing: Samanrekinn, mjög hrjúfur og kvenkynsblómstrandi runni (um 1,8 m á hæð á Reykj- um '95). Vetrarsprotar missa fljótt loðnuna, og börkur er svart- blár. Sumarsprotar eru grænir til bláleitir, loðnirog þéttblöðóttir. Þeir Ijúka vexti í byrjun septem- ber. Blöð eru áberandi falleg. Framleiðsla á Gátu gengur vel til sæmilega, og kelur hana ekkert. Sprotar vaxa um 40-50 cm á ári. Alaskavíðir hárlaus: DIMMA - er góð alls staðar nema á umhleypingasömustu stöðum sunnanlands (Reykir, Lækur, Kópasker, Akureyri, Haukadalur, Selpartur). Náð var í Dimmu við lækinn Sampson á Sewardskaga vestast í Alaska, nálægt 65°N. Lýsing: Greinamikill, bústinn, miðlungsgrófur til ffngerðurog kvenkynsblómstrandi runni (um 2.5 m á hæð á Reykjum '95). Vetr- arsprotar eru hárlausir og börkur svartbrúnn til svartblár, en grein- ar dökkbrúnar og gljáandi. Sumarsprotar Ijúka vexti um miðjan ágúst. Blöð eru stór, lensulaga og mjó. Framleiðsla á Dimmu gengur sæmilega, og kelur hana lítið, enn minna fyrir vestan og norð- an. Sprotar vaxa um 40-50 cm á ári. SORTA - er góð alls staðar nema á umhleypingasömustu stöðum sunnanlands (Reykir, Lækur, Kópasker, Hvanneyri, Haukadal- ur, Selpartur). Náð var í Sortu við lækinn Sampson á Sewardskaga vestast í Alaska, ca. 65°N. Lýsing: Þéttgreinóttur, bústinn, breiðvaxinn, miðlungsgrófur og kvenkynsblómstrandi runni (um 1.6 m á hæð á Reykjum ‘95). Vetr- arsprotar eru háriausir og börkur nær svartur, en greinar græn- brúnar og gljáandi. Sumarsprotar ljúka vexti um miðjan ágúst. Blöð eru breið. Framleiðsla á Sortu gengur sæmilega, og kal er lítið eða ekk- ert. Sprotar vaxa um 40-50 cm á ári. HEKLA - er góð í öllum tilrauna- reitum (Reykir, Hvanneyri, SKÓGRÆKTARRITIÐ 1999 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Skógræktarritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skógræktarritið
https://timarit.is/publication/1996

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.