Afmælismót Skáksambands Íslands - 01.02.1985, Blaðsíða 24
honum í röð okkar bestu skák-
manna.
Karl hóf að tefla kappskák um
1977 og frami hans varð óvenju
skjótur. Karl hefir orðið skólaskák-
meistari íslands í eldri flokki og er
núverandi Norðurlandameistari í
þeim flokki norrænnar skólaskákar.
Það sem vakti þó fyrst verulega
athygli á Karli var sigur hans sumar-
ið 1979 á Barnamótsári Sameinuðu
þjóðanna í Puerto Rico.
Karl var í hinni sigursælu sveit,
sem náði 2. sæti á heimsmeistara-
móti ungmenna í Chicago á seinasta
ári. Árið sem er nýliðið var mjög
viðburðaríkt hjá Karli. — Hann
tók þátt í Reykjavíkurskákmótinu í
febrúar og stóð sig frábærlega þar
sem hann hlaut 6 Vi vinning í 11
skákum. Vinningatalan ein segir
ekki alla söguna, þar sem Karl fékk
stigahæstu andstæðinga allra á mót-
inu. Hann tefldi t.d. við 8 stórmeist-
ara af 13 og hlaut 4 Zi vinning úr
þeim skákum og 2 vinninga af 3 fékk
hann gegn alþjóðlegum meistumm.
í ágúst sl. hélt Karl svo til Finn-
lands til þátttöku í Heimsmeistara-
móti unglinga og stóð sig með af-
brigðum vel og náði 3. sæti.
Innanlands hefir Karl sigrað í
fjölda móta, t.d. varð hann sigur-
vegari í Haustmóti T.R. 1982. I
landsliðsflokki íslandsþingsins
hefur hann teflt tvisvar en ekki náð
að sigra enn, enda við ramman reip
að draga á þeim vígstöðvum og
margir um hituna!
Karl var í fyrsta sinn valinn í
Ólympíuskáksveit íslands sl. haust
og tefldi því á 26. Ólypíuskák-
mótinu í Saloniki í Grikklandi sem
annar varamaður. Þar hlaut Karl
sína eldskirn á þeim vettvangi og
dýrmæta reynslu, þótt hlutskipti
hans væri ekki öfundsvert — hann
kom þrisvar inn í sveitina nánast á
seinustu stundu, og ætíð með svart.
Nýkominn heim frá Grikklandi
var Karl valinn til að tefla fyrir ís-
lands hönd á Evrópumeistaramóti
unglinga í Gröningen í Hollandi í lok
árins 1984.
Þar stóð Karl sig mjög vel og var í
baráttu um verðlaunasætin, er hann
undir lok mótsins varð að hætta
þátttöku af persónulegum ástæðum.
ÍSEGG
\\JL\G A ísivivni!
stærðarflokkuð og gæðaskoðuð
egg frá ÍSEGG.
íOlítil ® ÍSI GG
P^ngdirfli pikkaði
íOmeðal ®ISEGG
Ityngdarfli pikUAi
ÍSEGG
lOstór ® ÍSEGG
1
B c / I \
pyngdarfli pakkaði bcst fyrin vcrði
SAMBAND EGGJAFRAMLEIÐEIVDA Vesturvör27. 200. Kópavogur. Síml: 45222.
24