Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Blaðsíða 21
á sinn fcíma og á lífsstefnur og lífsskoðanir sinna samtímis-
manna, einkum [tegar eigi er unt að hafa náin persónuleg
kynni nema af örfáum, en önnur kynning er af bókum og
blöðum. En fyrir þann, sem hefir tekist þann vanda á hend-
ur, að efla Guðs ríki á meðal manna, og að beina lífsstefnum
manna réttan veg, og að gjöra rangar lífsskoðanir réttar, er
þekking samtímismanna eins nauðsynleg, og sjálfsþekkingin er
fyrir einstaklinginn. Til að lækna meinin þarf að þekkja þau.
Hvers krefst tíminn af mér sem presti? Eða skyldu
kröfurnar til prestanna vera á öllum tímum hinar sömu?
Breytast ekki tímarnir, mennirnir og kröfurnar? Enginn mun
neita því. Er ekki mesti munur — já, blessunarríkur mun-
ur á því, að vera nú á tímum prcstur og prédikari Krists og
Guðs ríkis í kristnum löndum, eða að vera kristinn prédikari
á fyrstu öldunum eftir Ivrist? J>ér þekkið muninn á þessu,
svo eg þarf ekki að útskýra hann. Prestar, er taka við
prestsembætti í kristnum söfnuðum, eru nú ckki sendir út
eins og lömb meðal úlfa, eins og á tímum hinna fyrstu ahla
eftir Krist. Og prédikarar þessa lands eru ekki undirorpnir
sömu freistingum og liættum og þrautum, eins og prédikarar
Krists meðal heiðingjanna. Pin mun eigi enn eiga við að á-
minna oss með þessum orðum frelsarans: »Verið kænir sem
höggormar, og einfaldir sem dúfur.« ? Skyldi kristinn prest-
ur ekki enn í dag þurfa að sameina hyggindi og hrekkleysi,
alvöru og mildi, vísdóm og sakleysi til þess, að geta eflt ríki
meistarans? Skyldi kristinn prestur, liver sein liann er og
livar sem hann er, nokkurn tíina geta sagt eöa mega segja:
»Mig varðar ekkert um tákn tímans; mér koma ekkert við
lífsskoðanir og hegðan mannanna. [>cir liafa sjállir ábyrgð á
sér.« Nei, trúr verkamaður í víngarðinum þarf sem allra
bezt að þekkja sinn víngarð, og hvernig liann á að bera sig
til, svo að sem bezt geti vaxið í honum alsstaðar. Garður-
inn er ekki alsstaðar jafn vel lagaður fyrir rækt, og sumstað-
ar eru í honum óræktarblettir, þar sem sérstaklega vill vaxa
arfi og illgresi. Og sinn reiturinn þarf hverja meðferðina í