Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Page 30

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Page 30
geng eg þó að því vísu, að þeir elski sannleikann og vilji styðja hann. En ekkert er eðlilegra en það, að ágreiningur geti iðulega verið um, hvað sannleikur sé. Frá þessu sjónar- miði skoðuð er «kritik» nauðsynleg hugvekja í hverju sem er. Og hún er heilsusamleg, ef lienni er sameinuð varfærni, sann- leiksþrá og kærleiki í víðtækri merkingu. Með henni á að vera grafið eftir hinu dýrmæta gulli sannleikans. Einungis það, sem ekki þolir birtuna, þarf að óttast hana. En á það nokkurn rétt á sér? Vér eigum hvorki að prédika í blindni né trúa í blindni, heldur með Ijósri dómgreind. Sá, scm elskar aðra og man vel, live skammsýnn hann er, mun ætíð dæma vægt og milt um bróður sinn, þann sem fer aðra leið en hann til Guðs, enda hygg eg að leiðirnar að Guðs lijarta séu alveg óteljandi, en eg lield þó, að sumar séu greiðari en sumar, og að ein leiðin sé allra inndælust, (sbr. orð Krists: »Eg er vegurinn«). En annars held eg, að góður og réttvís Guð líti als ekkert á það, hvort hans barn kemur til lians að austan eða vestan, sunnan eða norðan, að eins að það komi til lians einlæglega sannleiksþyrst með djúpri auðmýkt og hreinu hjarta. Nú kann einhverjum yðar að koma í hug, að eg muni vilja láta oss fallast á hverja nýung, og undir eins telja full- an sannleika hverja breytta skoðun, er ýmsir koma með á ýmsum trúaratriðum, en það er afar langt frá, að svo sé. Slíkt væri vissulega vítavort. . Eg tók fyr fram, live afar er- vitt það væri, að finna sannleikann, og af því leiðir, að það væri ófyrirgefanleg fijótfærni, að fallast þegar á nýar skoðanir í trúarefnum. Eg minnist hér þess, sem Drottinn vor sagði við þjónana, þegar þeir spurðu hann, livort þeir ættu ekkj að uppræta illgresið af akrinum, svo að það spilti ekki hveit- inu. »Nei«, sagði liann, »svo að þér ekki, nær jær upprætið illgresið, rífið hveitið upp með.« (Hveofthefir kirkjan gleymt þessari reglu?). petta skil eg svo, að Guðs börn eigi að fara ákaflega varlega og gætilega, ef þau vilja uppræta það, sem þau álíta illgresi, en varðveita hveiti á Guðs akri; þau eiga

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.