Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Side 47
47
þulbaldalegir í framburöi, ef rómurinn leyfir annað, cða ef þeir
vorða það, þá verða þeir það eigi síður, ef þeir þylja utan-
bókar. En fáum er ætlandi að prédika af munni fram án
undirbúnings. f>að yrði líklega hjá sumum æði oft sama efn-
ið, þegar til reyndanna kæmi.
En það er ið sama, á hvern bátt vér gerum [>að, ef oss
að eins tekst, að prédika Krist inn í lífið. Ef mannkynið
hefir Krist með sér í lífinu, þá er það bjart og fagurt sem
lilýr vordagur, og bið vetrarlega úr lijarta voru og lífi — það
hverfur eins og fannir fyrir þeymildi vorsins. En ef það yfir-
gefur Krist, er lífið eins og svartskýuð, ægileg haustnótt; það
rofar hvergi til neinnar stjörnu, í neina átt. Og of prestur-
inn hefir hann ekki, þá er svo langt frá, að hann geti séð
öðrum fyrir Ijósi lífsins, að hann sór ekki sírium eigin fótum
forráð. Margir höfum vér séð eina mynd oftirmyndaða í blöð-
um og bókum: Jólanóttina oftir Correggio. Eg vil segja:
pað er mynd als mannkynsins, sem liefir Krist og vantar
Krist. Alt er dimt, koldimt, nema miðjan; þar má sjá móð-
urina, unga og yndislega, með ungbarn í fanginu, og stafar
skær birta út frá því á alt það, sem næst er, þar á meðal á
andlit hirðanna knéfallandi, en þeir, sem fjær standa, eru í
myrkri. Alt, sem er nærri, er bjart; alt, sem er fjarri, er
svart. þessa birtu þarf að leiða inn í bugskot manna, og ef
það tækist, þá mundi biblían verða meira lesin, en cr, þá
mundi verða miuna af dauðu siðgæði í þjóðinni, cn er, og
það sem mest er um vert, Kristur ná sínu konungshásæti í
kristindómi þjóðarinnar.
Að ná þessu — færa þetta í áttina, or vort hlutverk; en
það kostar mikið, það er satt. En bvað gerir það til? |>að
kostar }>að, að biðja og vilja; það kostar það, að verða sjálf-
ur frjáls í Kristi; það kostar það, að finna, að það er Krist-
ur, en okki landstjórnin, sem hefir sett oss í stöðu vora; það
kostar það, að kenna sjálfum sér og öðrum að. skilja það og
finna það, að þeir liafi ekki þrældómsanda með þrælsótta til
Guðs, heldur útvalningaranda með barnarétti; og að sá barna-
-l