Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Síða 64
64
Köld og mörg eru kirkjuboðin, Krists eru létt og í'á.
Lærðu, barn, hans lög að elska, letruð björtun á!
Dómur lífs og Drottins vilji dylst í sálu þér, —
dylst í þessum syndasolli, sem þú berst við hér,
— berst við hér!
Hér er ríkið, hér er Kristur! Hann er þetta barn,
off'urselt í synd og voða, sett á eyðihjarn!
Hér er ríkið, hér er Kristur. Hann er fallin þjóð,
sú er gegnum syndir feðra seldi líf og blóð,
— líf og blóð!
Frelsum hana, frelsum barnið, fyrst að það er liann
Sýnum Kristur sé á jörðu; sýnum Guð og mann! —
Komi Jesú kærleiksríki! Komi glaða-sól!
Náðin Guðs hin nýa vígi nýan Hólastól,
— Hólastól!
Kvenna-raddír.
Heilög og stór er hjartans þrá
að hefta vor meinin stríðu;
en varið yður að brjóta bág
við björkina Drottins fríðu!
Tíminn með brugðin brand og sög
bíður á aldamótum,
en Kirkjan setur í síðstu Iög
sverðið að fornum rótum.
Lengi’ er að vaxa vegleg björk,
sem vermir um aldir hólinn;
en kalt er að byggja bera mörk,
þá burt eru’ hin gömlu skjólin!