Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Side 66

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1899, Side 66
engu rninni ósigri, cn hinn. |>á tekur við Siðabótin og hennar lofsöngur. Sá tími hefst með miklum amlóðaskap þessa stiftis, sem mist hafði höfuðið með Jóni Arasyni, og dæmdi svo þá feðga landráðamenn og sjálft sig á kongsins miskunn! En svo miðast kvæðið við Guðbrand biskup, hinn langmesta mann þeirra tíma þrátt fyrir ráðríki hans og galla (Hann var vor annar ,Renaissancel maður; hinn Jón Arason). Eftir Guðbrand hnignar Hóladýrðinni jafnt allar götur, enda voru Hólabiskupar eftir hann miklu atkvæðaminni en biskup- ar hins gamla stýls — þrátt fyrir þeirra galla. Skálholts- biskupar voru drjúgum duglegri alla tíð. Hér nyrðra krepti og yfirgangur eldri biskupanna töluvert meira að fé manna og frelsi 6n Skálholtsbiskupar höfðu gjört hinu stærra stifti; hér var minna umdæmið, en völdin og ágirndin söm. Hið síðara prentverk á Hólum (á 18. öld) nefni eg ekki; það varð að litlum notum. En vel mátti geta hins eina afreks Norð- lendinga á 17. öldinni, þess, að landsins sögu- og fornfræði, svo og dálítil lýðmentun, lifnaði fyrst og festi rætur hér nyrðra: Guðbr. biskup, Einar í Heydölum, séra Jón í Lauf- ási, Skarðsár-Björn og, einkum Arngrímur lærði. En stóll og stifti rýrnaði æ meir og meir, unz hvort- tveggja flosnaði upp. Litlu skár gekk og til að lokum í suður-stiftinu, og alt fór það líka á hreppinn. Síðasti kaflinn á að spá í eyður nútíma og framtíðar, og skal um hann ekki fjölyrða, og því síður um skáldskap- inn eða hið ,dogmatiska‘ í ljóðunum. Hverjum manni á að vera sjálfrátt að fylgja í listum og vísindum þeim lífsskoð- unum, sem hann vill'. Kemur þá þroski hans og einurð bezt í ljós; hann er þá hægt að dæma. En yfirdrepskaparmaður- inn dómfellir sig sjálfan fyr eða síðar. M. J.

x

Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis
https://timarit.is/publication/39

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.