Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991 Undanþágunefnd Ferðamálaráð: Beðið eftir endurskoð- un laga um ferðamál MAGNÚS Oddson, fulltrúi í undanþágunefnd Ferðamálaráðs, segir að öllum umsóknum um ráðningu erlendra leiðsögumenna hérlendis næsta sumar hafi verið svarað á þann veg að ekki væri hægt að taka afstöðu til umsóknanna að sinni þar sem ekki væri viLið hvaða reglugerðir eða lög giltu um erlenda leiðsögumenn hér á landi næsta sumar. Undanþágunefnd Ferðamálaráðs fjallar um umsóknir erlendra lögaðila um starfsleyfi fyrir útlendinga. Innlendir aðilar sem hyggjast ráða útlendinga til starfa sækja um starfsleyfi til F élagsmálaráðuneytisins. Magnús sagði að undanþágu- nefndin teldi ekki tímabært að af- greiða umsóknirnar þar sem verið væri að vinna að endurskoðun laga um ferðamál í samgöngumálaráðu- Magnús Guðmundur Tilfærslur í lögreglunni GERÐAR hafa verið nokkrar breytingar á yfirstjórn lög- reglunnar í Reykjavík í kjölfar þess að Arnþór - Ing- JET ólfsson tekur við stöu yfir- Arnl>or lögregluþjóns af Páli Eiríkssyni, sem var yfir- lögregluþjónn almennrar lög- gæslu. Arnþór verður yfirmaður rann- sóknadeilda en Guðmundur Guð- jónsson yfirlögregluþjónn verður yfirmaður almennrar löggæslu. Staðgengill Guðmundar verður Magnús Einarsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn sem verður yfirmaður umferðardeildar. neytinu. Beðið væri eftir þessari afgreiðslu en ef henni yrði ekki lokið í vor yrði hver umsókn af- greidd fyrir sig eins og gert hefði verið áður. Venja væri að afgreiða umsóknir af þessu tagi í mars- mánuði. Hins vegar sagði Magnús að málið væri nokkuð fiókið. „Við stöndum frammi fyrir því að hafa ekki nægilega marga leiðsögu- menn til að sinna ferðamönnum á aðalferðamannatímanum í júlí og ágúst,” sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Þá höfum við um þrennt að velja. Við getum veitt erlendum leiðsögumönnum undan- þágu að fenginni umsögn um hvern einasta einstakling, bannað hópum að koma til landsins eða tekið þá áhættu að þeir ferðist án nokkurr- ar leiðsagnar um landið. Allir eru sammála um að best sé að hafa nægilega marga íslenska leiðsögu- menn til þess að geta leiðsagt á því tungumáli sem þarf en ef ekki er hægt að koma því við koma þessar þijár leiðir til greina. Menn eru svo ekki sammála um hveija þeirra eigi að velja.” í tengslum við umsókn Ferða- skrifstofunnar Úrval-Útsýn um starfsleyfi fyrir 63 erlenda leið- sögumenn kom fram að til þess að undanþágunefnd fjallaði um þá umsókn þyrfti Úrval-Útsýn að stofna ferðaskrifstofu erlendis og láta hana sækja um leyfi fyrir er- lenda leiðsögumenn til undanþágu- nefndar þar sem henni væri ein- göngu ætlað að fjalla um og af- greiða umsóknir erlendra lögaðila. Innlendar ferðaskrifstofur sem ætla að ráða útlendinga til starfa sækja um atvinnuleyfi hjá Félags- málaráðuneytinu. Frystihúsin á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði: Allar líkur á að takist að sameina fyrirtækin JÓNAS Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Stöðvarfjarðar, segir að eftir samþykkt stjórnar Byggða- stofnunar um að lána 50 millj. kr. verði af sameiningu frysti- húsanna á Stöðvarfirði og Breið- dalsvík, séu allar líkur á að hún takist og sé þá gert ráð fyrir að nýtt fyrirtæki geti tekið til starfa I. janúar. Stjórnarfundur var boðaður hjá Hraðfrystihúsi Stöðvarfjarðar s.l. laugardag, og í gær í Hraðfrystihúsi Breið- dælinga þar sem ákveðið var að boða til hluthafafundar seinna í mánuðinum og hefja sam- einingarviðræður á ný. Hluthafafundur í Hraðfrystihúsi Stöðvarfjarðar felldi í ágúst tillögu um sameiningu fyrirtækjanna og hafa engar viðræður átt sér stað síðan þá. Svavar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Breiðdælinga, sagði í Morgunblað- inu á fimmtudag, að með sam- þykkt stjórnar Byggðastofnunar hefði boltanum aftur verið varpað til stjórnenda fyrirtækjanna um að heija viðræður um sameiningu. „Það var sótt um þetta lán á sínum tíma til að sameina og það er nú skilyrt því að sameining eigi sér stað. Það segir sig því sjálft að menn verða að fara í það,” sagði Jónas. „Ég held að það sé engin spurning að sameiningin muni tak- ast. Við höfum núna fengið ákveð- ið svar frá Byggðastofnun sem ekki hefur legið endanlega fyrir áður. Það er þó eftir mikil vinna við mat á fyrirtækjunum,” sagði Jónas. Hann sagðist búast við að hluthafafundur verði haldinn upp úr 20. október. Morgunblaðið/KGA Davíð Oddsson forsætisráðherra ávarpar heimsmeistar- ana við komuna til landsins. Peyjarnir horfa aðdáunaraugum á Guðlaug R. Jóhannsson þar sem hann hampar glæsilegustu verðlaunum í bridsheiminum, Bermúdaskálinni. Hvatning að heiman jók okkur áræðni og kraft - sögðu heimsmeistararnir i brids við heimkomuna ÞAÐ voru þreyttir, en glaðir og ánægðir menn, sem gengu inn Iandganginn á Leifsstöð aðfaranótt mánudagsins. Eftir langa og stranga ferð voru þeir loksins komnir heim heimsmeistararn- ir okkar í brids. Fremstur í flokki gekk Guðlaugur R. Jóhanns- son með frægustu og eftirsóttustu verðlaunin í bridsheiminum, Bermúdaskálina. í Leifsstöð voru saman komin milli tvö og þijú hundruð manns, aðstandendur spilaranna, for- svarsmenn þjóðarinnar og fjöldi bridsspilara af Reykjavíkursvæð- inu og víðar. Flugleiðir stóðu fyr- ir móttökuathöfninni og var Leifsstöð opin almenningi en það mun ekki hafa gerst síðan flug- stöðin var tekin í notkun. Þegar nánustu aðstandendur spilaranna höfðu heilsað þeim hófst opinber athöfn þar sem Bjöm Theodórsson, einn af for- svarsmönnum Flugleiða, bauð hópinn velkominn til landsins. Þá gekk Davíð Oddsson í pontu. Hann lýsti því hvernig þjóðin hefði fylgst með sínum mönnum bæði í svefni og vöku. Taldi hann að það hefði ekki verið síður erf- itt að sitja hér heima og fylgjast með slagnum sem gerðist æ óvægnari þar til yfir lauk. Davíð minntist á hina nýju brostækni og hélt hann því fram að nú væri alls staðar brosað, jafnvel þeir sem aldrei sæjust á viprur í þinginu væru farnir að brosa. Forsætisráðherra taldi sigur liðsins ekki háð neinum tilviljun- um. Þeir sem fylgdust með brids sæju ákveðið samhengi ef litið væri 4-5 ár aftur í tímann. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði á nið- urskurðartímum ákveðið að veðja á þessa bridssveit og hefði hún fyllilega staðið undir væntingum og miklu meira en það. Það kom og fram í máli Davíðs að Reykja- víkurborg hygðist fella niður 10 milljóna kr. skuld sem Bridssam- bandið skuldar henni vegna hús- næðiskaupa. „Þjóðin öll fagnar ykkur, þið vitið það. Kæru heimsmeistarar. Hjartanlega velkomnir heim. Við segjum ekki skál, við segjum Bermúdaskál,” sagði Davíð Odds- son forsætisráðherra að lokum. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra var næstur á mælendaskrá og sagðist kominn til að færa spilurum heillaóskir frá þeim sem ekki kunna brids. Hann benti á að aðeins sex þjóð- ir hefðu unnið þessi glæsilegu verðlaun frá upphafi. Jón taldi að það hefði birt til í þjóðfélaginu að undanförnu. Nú væru allir brosandi. Loks lýsti hann því hvað margt væri líkt með brids og pólitík, bæði í sókn og vörn. Björn Theodórsson færði Bridssambandinu ferðastyrk frá Flugleiðum og afhenti hverri fjöl- skyldu _glæsilega blómvendi. Magnús Olafsson, stjórnarmaður í Bridssambandinu, lýsti nýju vandamáli sem upp væri komið hjá bridsspilurum en það var ágangur fjölmiðla. Hann sendi bridsspilurum um land allt þakk- læti fyrir veittan fjárstuðning í gegnum árin og þakkaði Guð- mundi Kr. Sigurðssyni sérstak- lega en Guðmundur Kr. gaf Bridssambandinu íbúð og var aðalhvatamaður þess að Brids- sambandið keypti sér eigið hús- næði. Örn Arnþórsson flutti í lokin þakkarávarp frá heimsmeisturun- um. Hann þakkaði landanum það traust sem þeim var sýnt, þá hvatningu sem þeir fengu með telex- og símskeytum. „Það jók kraft okkar og áræðni í síðustu umferðunum,” voru lokaorð Arn- ar Arnþórssonar heimsmeistara. Bílstjórar frá Bifreiðastöð Reykjavíkur sáu svo um að koma heimsmeisturunum til síns heima. Texti: Arnór Ragnarsson Nauölending Lufthansa-vélar: Allt hjálparlið boðað innan hálftíma segir framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins „ÞAÐ var búið að ná til allra, sem boða þurfti, hálfum tíma eftir að fregnir bárust um að þotan myndi nauðlenda á Keflavíkurflugvelli. Astæða þess, að boðun björgunarsveitarmanna í Keflavík tafðist er sú, að boðunarkerfi þeirra var bilað og því þurfti að hringja í hvern og einn,” sagði Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkis- ins. I gær var haldinn fundur á vegum Almannavarna, til að fara yfir viðbrögð við nauðlendingu Lufthansa-vélar á Keflavíkurflugvelli á laug- ardag. Talið var að eldur væri í farangursrými hennar, en svo reynd- ist ekki vera. Fundinum verður fram haldið í dag. Guðjón sagði að þegar tilkynning björgunarsveitirnar þá var búið að hefði borist um nauðlendinguna hefði þurft að boða út um 1300 manns, að meðtöldum starfsmönn- um sjúkrahúsa. „Þó gengið hafi seinna en vænta mátti að kalla út virkja allt þetta kerfi innan hálftíma frá tilkynningunni. Lögreglan í Keflavík sér um að boða björgunar- sveitarmenn og hefur til þess boðun- arkerfi, friðþjófa. Friðþjófakerfið reyndist hins vegar bilað, svo það varð að hringja í hvern og einn og það tafði mikið. Þá hringdi lögreglan í almannavarnanefnd, áður en björgunarsveitir voru kallaðar út, sem er ekki samkvæmt áætlun, sem gerir ráð fyrir boðun björunarsveita á undan. Stjórnstöð Almannavarna var virkjuð kl. 4.50, en þá var vakt- maður búinn að boða alla út. Miðað við bókanir vaktmanns voru björgunarsveitir á Suðurnesjum komnar upp á flugvöll kl. 5.19, eða tveimur mínútum eftir lendingu vél- arinnar. Það telst góður árangur að ná tugum björgunarsveita af stað á innan við hálfri stundu.” Guðjón sagði að björgunarsveitir á Suðurnesjum hefðu haldið upp á flugvöll, en sveitir á höfuðborgar- svæðinu hefðu beðið átekta við ál- verið í Straumsvík. „Sveitunum er stefnt þangað, ef vélar ná ekki að Keflavíkurflugvelli, en brotlenda utan hans,” sagði Guðjón. Guðjón sagði að þegar hættu- ástand væri liðið hjá væri vaninn að boða til fundar, þar sem farið væri yfir aðstæður og viðbrögð manna, til að sjá hvort eitthvað hefði mátt betur fara. Fundinum verður fram haldið í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.