Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
27
Reuter
Stormar og stórsjóir á Italíu
Stormar geisuðu á nokkrum svæðum á Ítalíu um helgina. Mikil flóð urðu meðal annars í
Feneyjum eins og sjá má á þessari mynd, sem var tekin á Markúsartorginu í gær.
Evrópska efnahagssvæðið:
Sanikomulag næst um
flutninga um Alpana
Amsterdam. Reuter.
Evrópubandalagið (EB) hefur náð samkomulagi við Austurríkis-
menn og Svisslendinga um ferðir flutningabílá um Alpana. Þann-
ig hefur einni af helstu hindrunum fyrir samningi EB og Fríversl-
unarbandalags Evrópu (EFTA) um Evrópska efnahagssvæðið ver-
ið rutt úr vegi.
Flutningamálaráðherrar Sviss
og Austurríkis ræddu á laugardag
í fjórar klukkustundir við Hanja
Maij-Weggen, flutningamálaráð-
herra Hollands og formann Flutn-
ingamálaráðs EB, og Karel van
Miert, sem fer með með þennan
málaflokk innan framkvæmda-
stjórnar EB. Ekki var skýrt frá
samkomulaginu í smáatriðum en
Maij-Weggen sagði að i því fælust
gagnkvæmar tilslakanir.
Samkomulagið er háð samþykki
stjórna EB-ríkjanna auk Austur-
ríkis og Sviss og greint verður frá
því á fundi flutningamálaráðherra
EB í Lúxemborg 21. október.
Talsmaður hollenska flutninga-
málaráðuneytisins vísaði á bug
sem „vangaveltum” fréttum í
fjölmiðlum um að 40 tonna flutn-
ingabílum yrði heimilað að fara
um Sviss ef ekki yrði hægt að
fiytja þá með léstum. Hámarks-
þunginn er nú 28 tonn.
Eitt af helstu umræðu'efnunum
á fundi ráðherranna voru áform
Svisslendinga um að bæta lesta-
kerfi sitt til að hægt yrði að flytja
fleiri flutningabíla með lestum.
Svissneskt dagblað hafði á sunnu-
dag eftir Adolf Ogi, flutningamál-
aráðherra Sviss, að stefnt .væri að
því að hægt yrði að flytja alla 40
tonna flutningabíla með lestum
innan tveggja ára.
24 myrtir um helg-
ina í Suður-Afríku
Jóhannesarborg. Reuter.
Borís Jeltsín
á hvequm stað í nóvember og verði
þeir síðan æðstu valdamenn í hveiju
héraði. Þessu vildi‘Jeltsín ekki una
þar sem hann vildi áfram hafa áhrif
á hverjir þeir verða. Fram til þessa
hefur hann einfaldlega skipað þá
sjálfur. Þó að Jeltsín virðist hafa
tapað þessari rimmu við þingið er
talið líklegt að hann eigi eftir að
gera það sem í hans valdi stendur
til að draga eins úr völdum ráða-
manna héraðanna og mögulegt er.
(Grein þessi birtist nýlega í
breska vikuritinu The Econom-
ist)
FLOKKUR manna skaut 10
blökkumenn til bana í Soweto,
útborg Jóhannesarborgar í
Suður-Afríku, á sunnudag.
Ekki er vitað hverjir voru
þarna að verki.
Að sögn lögreglu skutu menn-
irnir úr sjálfvirkum rifflum,
skammbyssum og öðrum skot-
vopnum þar sem þeir óku _um
Mapetla-hverfið í Soweto. Átta
karlmenn féllu og tvær konur.
Fjögur fórnarlambanna sátu á
veitingahúsi en sex voru á göngu
á götum bæjarfélagsins. Tals-
maður lögreglu segist hafa heim-
ildir fyrir því að byssumennirnir
hafi ekið frá Morafe-gistiheimil-
inu þar sem búa fjölmargir
farandverkamenn, margir frá hei-
malandi Zúlúmanna þar sem Ink-
atha-frelsisflokkurinn nýtur mik-
ils fylgis.
Samtals féllu 24 í Suður-Afríku
um helgina. Tíu voru skotnir á
laugardag, flestir í Vosloorus,
suður af Jóhannesarborg. Fjórir
féllu á öðrum stöðum í landinu á
sunnudag.
Talið er að um hundrað manns
hafi verið myrtir í S-Afríku í kjölf-
ar friðarsamkomulags stjórnvalda
og hreyfinga-blö'kkumanna sem
undirritað var 14. september síð-
astliðinn.
—---------------
Rúmenar vilja
taka upp sam-
starf við NATO
Búkarest. Reuter.
ION Iliescu Rúmeníuforseti hef-
ur ritað Manfred Wörner, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsband-
alagsins (NATO), bréf þar sem
þess er farið á leit við bandalag-
ið að það tryggi öryggi lands-
ins, að sögn ríkisfréttastofunnar
Rompres.
í orðsendingu sem send var til
höfuðstöðva NATO í Brussel ósk-
aði Iliescu eftir samvinnu á sviði
öryggismála, að tengsl Rúmena við
bandalagið yrðu aukin og þeir
fengju aðild að samstarfsverkefn-
um bandalagsins. Jafnframt bauð
Iliescu NATO að opna upplýs-
ingamiðstöð í höfuðborginni
Búkarest.
Leiðtogar Ungveijalands, Pól-
lands og Tékkóslóvakíu sendu frá
sér sameiginlega yfirlýsingu í síð-
ustu viku þar sem þeir óskuðu eft-
ir aukinni samvinnu við NATO.
Sjö helstu iðnríki heims:
Ströng skilyrði fyrir
aðstoð við Sovétmenn
Bangkok. The Daily Telegraph.
SOVÉTMÖNNUM var sagt á sunnudag að þeir yrðu að koma
málum sínum í lag áður en þeir gætu ætlast til þess að stjórnvöld
á Vesturlönduin veittu þeim stórfellda fjárliagsaðstoð af almanna-
fé.
Fjármálaráðherrar og seðla-
bankastjórar frá sjö helstu iðnríkj-
um heims ræddu í nokkrar klukku-
stundir við Grígoríj Javlínskíj, sem
Iagt hefur fram áætlun um efna-
hagsumbætur í Sovétríkjunum, og
fleiri sovéska embættismenn í
Bangkok á sunnudag. Sovétmönn-
unum var sagt að ef þeir greiddu
á réttum tíma af lánum, sem þeir
hafa þegar tekið, yrði auðveldara
fyrir þá að fá lán í framtíðinni.
Það væri skilyrði fyrir stórfelldri
efnahagsaðstoð Vesturlanda að
þeir stæðu í skilum.
Erlendar skuldir Sovétmanna
nema nú 67 milljörðum dala (4.020
milljörðum ÍSK) og það hefur vald-
ið nokkrum áhyggjum á Vestur-
löndum að óljóst er hvernig þeim
verður skipt á milli sovésku lýð-
veldanna. I sameiginlegri yfirlýs-
ingu fjármálaráðherranna og
seðlabankastjóranna sagði að
leysa þyrfti þetta mál áður en
hægt yrði að halda áfram viðræð-
um um greiðsluerfiðleika Sovét-
manna. Stjórnvöld í Moskvu og
lýðveldunum voru hvött til að
leggja fram „skýrar skuldbinding-
ar” um að staðið yrði í skilum.
í yfirlýsingunni eru sett ströng
skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð. Iðn-
ríkin sjö vilja meðal annars „al-
gjöran aðgang” að mikilvægum
upplýsingum um efnahag Sovét-
ríkjanna, til að mynda um við-
skipti þeirra við útlönd, greiðslu-
erfiðleika og varasjóði. Javlínskíj
var falið að vinna að viðamikilli
áætlun um efnahagsumbætur með
aðstoð embættismanna frá iðnríkj-
unum sjö.
Vestrænir embættismenn hafa
vaxandi áhyggjur af því hversu
óljósar upplýsingar um efnahags-
mál berast frá Sovétríkjunum og
þá grunar að einstök lýðveldi leyni
stjórnvöld í Kreml upplýsingum.
Nokkrir þeirra telja að fjárhags-
erfiðleikar Sovétríkjanna séu ekki
eins miklir og stjórnvöld í Kreml
láti í veðri vaka. „Það hefur verið
venja í þessu landi í sjötíu ár að
fela sannleikann og við verðum
að ganga úr skugga um að hún
sé liðin tíð áður en við byijum að
dæla peningum skattborgaranna
þangað,” sagði háttsettur embætt-
ismaður eins af iðnríkjunum sjö.
Þau eru Bandaríkin, Japan, Þýska-
land, Frakkland, Bretland, Ítalía
og Kanada.
Ársfundur Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins hófst einnig í Bangkok
um helgina og voru Sovétmenn
boðnir velkomnir sem aukaaðilar
að sjóðnum. Þeir fengu einnig vil-
yrði fyrir því að sjóðurinn myndi
gera allt sem á hans valdi stæði
til að aðstoða þá.
DOW CORNING
SILIKON
IMest selt í heimi
IVlest selt á íslandi
30 ára reynsla hérlendis
Viðurkennt af Monteríngsteknik Comitee
og Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins
Fæst í öllum litum, um allt land.
Einkaumboð á Islandi:
Lækjargötu 6b, sími 15960,
121 Reykjavík - fax 28250.
KÍSILL