Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTOBER 1991 55 Heimsbikarmót Flugleiða: Karpov missti af vinningi o g varð að deila sigrinum Morgunblaðið/Jón Svavarsson Karpov og Ivantsjúk sem urðu efstir og jafnir á mótinu. Skák MargeirPétursson ANATÓLÍ Karpov lék af sér vinningi eftir 97 leikja og tíu og hálfrar klukkustundar mai-aþon- viðureign við Englendinginn Murray Chandler. Skákinni lykt- aði með jafntefli og þar með deildu ívantsjúk og Karpov efsta sætinu. Þeir hlutu báðir tíu og hálfan vinning af fimmtán mögulegum. Jóhann Hjartarson varð í tólfta sæti með sex og hálfan vinning, en hann gerði jafntefli við Svíann Andersson með svörtu í síðustu umferð. Þessi árangur Jóhanns þýðir það að hann hækkar á Elo-skákstig- um. Fullt hús áhorfenda fylgdist með síðustu umferðinni á laugardags- kvöldið. Mesta athygli vöktu skákir efstu manna og það olli miklum vonbrigðum að Ivantsjúk skyldi sætta sig við jafntefli gegn Seiraw- an eftir rúma 20 leiki. Staðan var þá flókin, en sízt lakari hjá ív.antsj- úk, auk þess sem fyrirsjáanlegt var að Seirawan myndi lenda í miklu tímahraki. Ivantsjúk varð hins veg- ar fyrir þungum áföllum í lok einvígisins við Júsupov og vildi greinilega ekki eiga það á hættu að eyðileggjar-aftur góðan árangur með mistökum á lokasprettinum. Eftir þetta var baráttan um efsta sætið alfarið undir skák þeirra Chandlers og Karpovs komin. Eng- lendingurinn hafði tapað þremur skákum í röð áður en hann mætti Karpov og þurfti nauðsynlega á jafntefli að halda til að bjarga sér frá neðsta sæti. Eftir byrjunina tefldi hann ónákvæmt, veikti stöðu sína og Karpov fékk betra tafl. Þá brá Chandler á það snjalla.ráð að fóma peði og virtist tryggja sér jafntefli með því. En þá sýndi Karpov sína sterkustu hlið, hann fann leið til að hanga á umframpeð- inu og bætti stöðu sína í hveijum leik fram að tímamörkunum í 40. leik. Hann náði síðan að skipta upp í endatafl með hrók riddara og ijór- um peðum gegn hrók biskup og þremur peðum. Öll peðin voru að vísu á sama væng og í slíkum stöð- um er eitt peð yfirleitt ekki nægjan- legur liðsmunur til sigurs, en það þykir mjög hagstætt að hafa ridd- ara og hrók gegn biskup og hrók í slíkum stöðum. Er það ekki sízt vegna þess að baráttan fer nærri eingöngu fram á öðrum vængnum og það háir riddaranum því ekki hversu hann er skrefstuttur. Sams konar endatöfl hafa áður unnist í viðureignum öfiugra skák- manna og þegar skákin fór í bið urðu því flestir til að spá Karpov sigri. Biðskákin var síðan tefld áfram á sunnudaginn og virtist halla jafnt og þétt á Chandler. Eftir að Karpov hafði þæft skákina áfram í íjórar klukkustundir á sunnudaginn tókst Englendingnum samt að finna glæsilega og óvænta jafnteflisleið sem minnti hreinlega á skákdæmi. Þegar skákin var skoðuð eftir á kom hins vegar í ljós að Karpov hefði auðveldlega getað hindrað þessa leið og átti þá sigurinn vísan. Það er sárasjaldgæft að Karpov fatist tökin við úrvinnslu á unnum endatöflum og í úrslitaskákum sen\ þessum hefur hann iðulega verið sigursæll. Óvæntur og dramatískur endir á sviptingasömu og skemmti- lega tefldu heimsbiþarmóti. Þar með hefur Ivantsjúk tekið forystu í heimsbikarkejppninni, en Karpov er í öðru sæti. Astæða þess er sú að skákir Jóhanns Hjartar- sonar gilda ekki í henni og hann tapaði fyrir Karpov, en gerði jafn- tefli við ívantsjúk. Að sjálfsögðu deildu þeir Karpov og ívantsjúk þó fyrstu verðlaunum á mótinu. Góður árangur Jóhanns Þrátt fyrir að Jóhanni Hjartar- syni vegnaði ekki eins vel og á Heimsbikarmótinu 1988 náði hann ágætum árangri, tapaði aðeins þremur skákum en tókst að vinna eina. Áhorfendur stóðu oft á önd- inni yfir varnarsnilld hans í slæm- um stöðum. Það er þekkt að heima- völlur í skák hefur þveröfug áhrif miðað við aðrar keppnisgreinar svo sem knattspyrnu og handknattleik og það var mikið álag á Jóhanni sem eina íslenská þátttakandanum á mótinu. í síðustu umferðinni gerði Andersson úrslitatilraun sína til að vinna skák hér í Reykjavík og sótti hart að Jóhanni, en hann varðist öllum þreifingum Svíans, sem varð að tefla nákvæmt í lokin til að ná jafntefli. Önnur úrslit í síðustu umferð urðu þau að Khalifman vann Ehlvest í aðeins 21 leik með svörtu og náði þar með nokkuð- óvænt að deila þriðja sætinu með Júgóslöv- unum Nikolic og Ljubojevic. Þeir tefldu innbyrðis í síðustu umferð- inni og gerðu stutt jafntefli. Sama varð uppi á teningnum hjá þeim Portisch og Salov. Beljavskí reyndi lengi að yfirbuga Speelman, en varð á endanum að sætta sig við jafntefli. Viðureign Gúlko og Timman var mikilvæg fyrir botn- baráttuna, en þrátt fyrir tilþrif varð niðurstaðan jafntefli. Lokastaðan: 1—2. Karpov og ívantsjúk lO'Av. 3.-5. Ljubojevic, Nikolic og Khalifman 9 v. 6. Seirawan 8 v. 7. -8. Ehlvest og Speelman 7‘h v. 9.-11. Portisch, Salov og Beljavskí 7 v. 12. Jóhann 6‘h v. 13. -15. Chandler, Timman og Andersson 5 'h v.' 16. Gúlko 5 v. Verðlaun voru síðan afhent á sunnudagskvöldið í glæsilegu loka- hófí sem forsætisráðherrahjónin héldu skákmönnunum. Davíð Oddsson rifjaði upp skemmtilega lýsingu Jökuls Jakobssonar á manngangnum sem hann ritaði í sérútgáfu Tímaritsins Skákar sem kom út meðan á heimsmeistara- einvíginu 1972 stóð. Þar sem blað- ið kom þá út á ensku, íslensku og rússnesku gátu allir viðstaddir skil- ið lýsingu Jökuls. Lajos _ Portisch söng nokkur lög og Vasílí Ivantsjúk kom skemmtilega á óvart með því að flytja ljóð á rússnesku eftir minni, en þessi ungi skáksnillingur hefur löngum verið álitinn afar feiminn og fáskiptinn. Hvítt: Murray Chandler Svart: Anatólí Karpov — Fjögurra ridd- ara tafl. 1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Rc3 - Rf6 4. Bb5 - Bb4 5. 0-0 - 0-0 6. d3 - d6 7. Bg5 - Bxc3 8. bxc3 - Bd7 9. Hbl - a6 10. Ba4 - Hb8 11. Bb3 - h6 12. Bh4 - De7 13. Hel - Ra5 14. d4 - Hbd8 15. h3 - Kh7 16. Dcl - Rxb3 17. axb3 - Bc8 18. De3 - b6 19. c4 - Hde8 20. b4?! - Hg8 21. dxe5 — dxe5 22. Bg3 — Rd7 23. Hedl - f6 24. Rh4 - Df7 25. Hb3 - Rb8 26. c5 - b5 27. Hbd3 - Rc6 28. c3 - a5 29. bxa5 — Rxa5 30. c6! — Rxc6 31. Hd5 - b4 32. Hc5 - Rb8! 33. cxb4 - Ra6 34. Hc3 - Rxb4 35. Da7 - Ra6 36. Hal - He6 37. f3 - Dd7 38. Bf2 - Hc6 39. Hxc6 - Dxc6 40. Rf5 - He8 41. Re3 - Db7 42. Rd5 - Dxa7 43. Bxa7 - Bb7 44. Hcl - Bxd5 45. exd5 - Hd8 46. Hc6 - Rb4 47. Hxc7 - Hxd5 48. Hb7 - Rc6 49. Be3 - Rd8 50. Hb2 - Re6 51. Hd2 - Hb5 52. Kf2 - Kg6 53. Hd6 - Hb2+ 54. Hd2 - Hb4 55. Ha2 - h5 56. He2 h4 57. Hd2 - Kf5 58. Hc2 - Rf4 59. Bd2 - Ha4 60. Kfl - Rh5 61. Kf2 - Rg3 62. Bel - Ke6 63. Hb2 - Rf5 64. Hb6+ - Kd7 65. Hb2 - Kc6 66. Hc2+ - Kd5 67. Hd2+ - Rd4 68. Hb2 - Kc4 69. Kfl - Hal 70. Kf2 - f5 71. Bb4 - Re6 72. Bd2 - Kd3 73. Bel - Rd4 74. Hd2+ - Kc4 75. Hb2 - e4 76. fxe4 - fxe4 77. Bd2 - Kd3 78. Bf4 - Ha3 79. Hd2+ - Kc4 80. Hb2 - Rf5 81. Hc2+ - Kd4 82. Hd2+ - Kc3 83. He2 - Ha4 84. Hel - Ha2+ 85. Kfl - Kd3 86. Hdl+ - Kc4 87. Hcl+ - Kd5 88. Hdl+ - Ke6 89. Hel - Ha4 90. Kf2 - Kf6 91. He2 - g5 92. Bcl - Hc4 93. Hel - Hc2+ 94. Kgl.- Rg3 95. Be3 - Kg6 96. Bf2 - Kf5 97. Be3 - Re2+ 98. Kfl í þessari stöðu missir Karpov endanlega af vinningnum. í fram- haldinu væri staða hans nokkuð^ auðunnin ef hrókur hans stæði á a-línunni, því þá á hvítur ekki að- gang að henni fyrir sinn hrók og getur ekki hrakið svarta kónginn á slæman reit. Karpov hefði því átt að leika 98. — Rg3+ 99. Kgl - Ha2!, auk þess sem hann hefði áður getað verið búinn að setja hann á a2, t.d. í 96. leik. Það er reyndar mjög erfitt að sjá í hverju munurinn er fólginn og með ólík- indum að Chandler skuli geta hald- ið jafntefli eftir að hann missir annað peð. Óheppni í stöðunni fyr-*_ ir Karpov sem vegna þrautseigju sinnar og baráttuvilja hefði vel verðskuldað að vinna skákina og mótið. 98. - Rf4? 99.Hal! - Rxg2 100. Ha5+ - Ke6 101. Ha6+ - Kd5 102. Ha5+ - Kc4 103. Ha4+ - Kc3 104. Bxg5 - e3 105. Bf6+ - Kb3 106. He4 - Hf2+ 107. Kgl - Hxf6 108. Kxg2 - Hf2+ 109. Kgl - Hf3 110; Kg2 - Hg3+ 111. Kfl - Hxh3 112. Ke2 - Ka2 113. Hb4 - Ka3 114. He4 - Kb3 115. Hf4 - Hhl 116. Kxe3 - h3 117. Kf2 - Kc2 118. Kg3 — Kd3 119. Hh4 og nú loks- ins sætti Karpov sig við það að sigurinn væri genginn honum úr greipum og bauð jafntefli. *'■ " Gamaii að komast í brjálaða gírínn - segir íslandsmeistarmn Ásgeir Signrðsson FELAGARNIR Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson tryggðu sér Islandsmeistaratitilinn í rallakstri með því að vinna Philips-rallið á laugardaginn. Þeir óku sérsmíðuðum Metro-rallbíl og urðu tæpum þremur mínútum á undan Birgi Vagnssyni og Halldóri Gíslasyni á Vauxliall Chevette. Þriðju urðu Tómas Jóhannesson og Elías Jóhann- esson á Mazda 323 Turbo, sem unnu flokk óbreyttra bíla. Ellefu af saulján keppendum luku keppninni, en 118 km voru eknir á sérleið- um, sem lágu m.a. um Kaldadal og ísólfsskála. „Við höfum þurft að berjast fyrir arfé sem þýðir að rekstrarkostnaður titlinum, þó breiddin sé lítil á toppn- um, þá hefur hvert rallmót ársins verið úrslitarall um titilinn. Við misstum af titlinum á lokasprettin- um í fyrra, en náðum að hala hann inn núna,” sagði Ásgeir Sigurðsson, sigurvegari Philips-rallsins og meistari ökumanna í rallakstri. Hann og aðstoðarökumaður hans, Bragi Guðmundsson eru nábúar á Álftanesi og hafa rekið Metro-rall- bílinn á takmörkuðu auglýsingafé. Þeir voru um tíma gagnrýndir fyrir að keppa ekki gegn Finnum í al- þjóðarallinu og tóku um leið áhættu á íslandsmótinu, hefðu getað misst mörg stig til titilsins. „Við sluppum fyrir horn, því helstu keppinautum okkar gekk illa í keppninni. En við vorum búnir að reikna að þátttaka í þeirri keppni væri einfaldlega of dýr. Hver kílómetri í rallkeppni kostar okkur 1000 krónur í rekstr- yfir keppnistímabil er um ein milljón króna og þar af er alþjóðarallið tæpur helmingur. Okkur þótti það of mikið og slepptum frekar keppni en að hafa allt á hælunum peninga- lega. í staðinn gátum við beitt okk- ur af fullu afli í síðustu tveimur mótunum.” Þeir Ásgeir og Bragi eru vel að titlinum komnir, hafa unnið þijú mót og einu sinni lent í öðru sæti og tryggðu sér titilinn þó ein keppni sé enn eftir. „Við byijuðum of hægt í Philips-rallinu, en ókum síðan ísólfsskála stíft, en ekkert villt og galið. Við vorum að gera okkur klára í hörkueinvígi á lokaleiðunum þegar við sáum Rúnar og Jón með bilaðan bíl og fréttum að Steingrím- ur og Guðmundur væru úr leik. Þá dóluðum við síðustu leiðirnar, Sem nægði til sigurs því við vorum með Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Breski Metro-rallbíll Ásgeirs og Braga öslar hér íslenskan drullu- pytt á laugardaginn. Bíllinn hef- ur lokið öllum mótum ársins í verðlaunasæti. íslandsmeistaranir nýju, Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson um borð í bílnum sérsmíðaða. gott forskot á aðra keppendur,” sagði Ásgeir. „Við höfum sannar- lega ekki fengið titilinn gefins, það er búin að vera hörkukeppni í sum- ar og hjá okkur hafa þetta verið átök milli metnaðar og þess að hafa gaman af íþróttinni. Mér hefur stundum fundist léttleikann vanta hjá keppendum á toppnum, menn verða að kunna að tapa og taka hlutunum ekki of alvarlega, rall er jú einu sinni íþrótt. Það er vissulegá gaman að vinna titilinn. Ættingjar og vinir eru búnir að vera að pirra mann á því að hafa ekki unnið fyrr, eftir margra ára þátttöku á rallmót- um. Maður þurfti þvi að sanna sig fyrir þeim og sjálfum sér, „egóið” fékk útrás. í fyrra misstum við titil- inn úr höndunum á okkur fyrir óheppni, en hann slapp ekki núna. Titillinn gefur okkur ákveðin réttindi erlendis og mig langar að keppa í einni alvöru keppni á erlend- um vettvangi, leggja allt undir. Leigja öflugasta tæki sem til er í formi rallbíls og keyra eins og prik- laus raketta. Annaðhvort kemur þá stóri skellurinn, eða það skilar árangri. Ef ég kemst í bijálaða inn á góðum bíl gæti orðið verulega gaman ...” sagði Ásgeir. Philips-rallið:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.