Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 49
MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJtJDÁGÚR 15. OKTÓBER 1991
49
SÝNING
Donald með nýja
úti á lífinu
Donald Tramp þótti við hæfi
að hafa hina ungu dóttur
sína við hlið sér, auk Mörlu
Maples er hknn mætti á Elite-
keppnina sem haldin var á Plaza
hótelinu hans í New York í sept-
ember. Tríóið fylgdist grannt með
58 ungum fyrirsætum sem þátt
tóku í keppninni og Ivanka litla
skemmti sér vel. Eftir því var
tekið að hún þótti hafa fatsmekk
og fas móður sinnar auk ljósu
lokkana, en útlit föður síns. Það
var einnig eftir því tekið, að stúlk-
unni litlu kom prýðilega saman
við Mörlu sem olli skilnaði Don-
alds og Ivönu Trump.
Myndirnar voru sum sé teknar í
september, en mikið vatn hefu
runnið til sjávar síðan og nú er
allt í háalofti á milli Donalds og
Mörlu. Eina ferðina enn. Donald
hefur sagt semsvo, „Hvað er
þetta!, stundum tekst það og
stundum ekki.” Marla hefur látið
hafa eftir sér, að þau Donald séu
ekkert öðru vísi en önnur pör að
því leyti, að það era vandamál sem
þarf að kljást við. Sem standi
vinni þau ekki bug á þeim. Stór-
vinur Mörlu segir hana aldrei
hafa ljómað eins og ástfangna
konu í sambandinu við Donald,
hún hafi litið á sig sem bjargvætt
hans er mikið lá við. Hún elskaði
karlinn, en sú ást væri ekki endur-
goldin þar eð Donald væri eigin-
gjarn og kaldlyndur náungi nema
þegar börn hans væru annars
vegar.
Donald gengur í salinn með
Ivönku sér við hlið.
Uti í sal... Marla hvíslar einhveiju í eyra Ivönku.
GÍTARKEPPNI:
Æfði mikið heima í sumar
Arnaldur Amarsson, gítarleikari,
vann þriðju verðlaun í alþjóð-
legri gítarkeppni í Gargnano á ítal-
íu dagana 13.-15. september.
Pyrstu verðlaun voru ekki veitt í
keppninni en önnur verðlaun hlaut
Spánverjinn Marco Socías. Arnald-
ur hlaut þriðju verðlaunin ásamt
Þjóðveijanum Harald Stampa.
Sautján gítarleikarar tóku þátt i
keppninni.
Arnaidur sagði að keppt hefði
verið í þremur umferðum. „Fyrsta
umferðin fór þannig fram að allir
keppendurnir léku skylduverk eftir
Tarrega og Villa-Lobos en eftir
hana voru ijórir valdir til þess að
taka þátt í undanúrslitum kvöldið
eftir. Þá lékum við lútusvítu eftir
Bach og sjálfvalið efni í tíu mínút-
ur. i úrslitunum kvöldið eftir lékum
við svo sjálfvalin verk í hálftíma.
Mín voru eftir Sor, Takemitsu, Ger-
hard og Ponce,” segir Arnaldur.
Hann segir úrslitin ekki hafa
komið á óvart. „ Ég var búinn að
æfa mig mikið heima í sumar og
nýbúinn að taka þátt í gítarkeppni
á Spáni þar sem ég komst í 12
manna úrslit af 30 keppendum.
Annars hefði ég kannski komið
betur út ef ég hefði einbeitt mér
að annarri keppninni því verkin
voru ekki þau sömu og kröfðust
mikils undirbúnings.”
Arnaldur hóf tónlistarnám í Tón-
skóla Sigursveins D. Kristinsssonar
en hélt síðan til Bretlands þar sem
hann stundaði framhaldsnám. Eftir
Bretlandsdvölina kenndi hann einn
vetur hjá Sigursveini í Reykjavík
en fluttist þá til Spánar. Þar hefur
hann búið síðastliðin 8 ár og starf-
ar nú við Luthier tónlistarskólann
í Barclona. Hann mun halda ein-
leikstónleika á Listahátíð Reykja-
víkur í júní á næsta ári.
Arnaldur tekur þátt í gítarkeppni
Morgunblaðið/Sverrir
Arnaldur Arnarsson gítarleikari.
sem kennd er við Andres Segovia
á Mallorka 25.-29. október næst-
komandi.
AKORTALISTÍl
Dags. 15.10.1991. NR. 54
5414 8300 0362 1116
5414 8300 2013 1107
5414 8300 2675 9125
5414 8300 2717 4118
5421 72"
5422 4129 7979 7650
| Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.
Ármúla 28,
108 Reykjavík, sími 685499
BIODROGA
Silkimjúkar hendur
Bio Repair
handáburðurinn
BIODROGA lífrænar jurtasnyrtivörur
Útsölustaðir: Stella, Bankastræti; Ingólfsapótek, Kringlunni;
Brá, Laugavegi; Gresika, Rauðarárstíg; Lilja, Grenigrund 7, Akranesi; Kaupf.
Skagfirðinga; Kaupf. Eyfirðinga; Húsavíkurapótek; Vestmannaeyjaapótek.
Ólafur Ragnar
Grímsson
stjómar þættinum
í fyrramálið
kl. 7—9
ÚTVARP
REYKJAVÍK
ÚTVARP
REYKJAVÍK
FMMLM103.2
AÐALSTOÐIN
AÐALSTRÆTIló • 101 REYKJAVÍK • SÍMIÓ2 15 20
BOKA-
ÚTGEFENDUR
kilafrestur vegna auglýsinga
í íslenskum bókatíðindum 1991
rennur út 21. október næstkomandi.
Ritinu verður dreift á öll heimili
eins og áður.
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Suðurlandsbraut 4A, sími 38020
eftir 16. október.
kilafrestur vegna tilnefninga til
íslensku bókmenntaverðlaunanna 1991
rennur út 30. október.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
FELAGISLENSKRA BOKAUTGEFENDA