Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTOBER 1991 Hæstiréttur: Fyrrum sparisjóðs- sljórí dæmdur í fang- elsi fyrir fjárdrátt FYRRUM sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Rauðasandshrepps í Barða- strandarsýslu hefur í Hæstarétti verið dæmdur til 7 mánaða óskil- orðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjárdrátt. I héraði hafði maður- inn verið dæmdur til fímm mánaða fangelsis en þar af höfðu fjór- ir mánuðir verið skilorðsbundnir. Hæstiréttur átelur galla á máls- meðferð fyrir héraðsdómi en telur eigi alveg nægar ástæður til ómerkingar málsins. Morgunblaðið/KGA Undirbúningur er hafinn á skautasvellinu í Laugardal og stendur til að opna það um helgina ef veður leyfír. Laugardalur: Skautasvellið opnað á ný EF VEÐUR leyfir verður skautasvellið í Laugardal opnað almenn- ingi næsta laugardag. Að sögn Ómars Einarssonar framkvæmda- stjóra Iþrótta- og tómstundaráðs er undirbúningur þegar hafinn en veðurspáin lofar ekki góðu og svo gæti farið að fresta verði opnuninni. „Það er undir veðrinu komið hvort okkur tekst að opna svellið á laugardag,” sagði Ómar. „Spáð er rigningu og roki í vikunni sem gæti tafið fyrir að unnt verði að frysta svellið en til að ná upp ís í byrjun verður að vera sæmilega kalt í veðri.” Sérstakir tímar eru ætlaðir fyr- ir börn á svellinu og eru þeir alla morgna frá mánudegi til föstu- dags milli ki. 10 og kl. 12. Al- mennir tímar eru frá kl. 13 til kl. 22 mánudaga, miðvikudaga og föstudága og milli kl. 13 og kl. 18 á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum. Sérstakir æfíngartímar eru milli kl. 10 og kl. 13 á laugardögum og sunnudögum og milli kl. 18 til kl. 20 sömu daga og að auki milli kl. 18 til kl. 22 á þriðjudögum og fimmtudögum. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er 200 kr. og fyrir börn 50 kr. Fimmtán miða kort fyrir fullorðna kostar 2.400 kr. og fimmtán miða kort fyrir börn 600. kr. Leiga fyrir skauta er 300 kr. að við- bættu 200 kr. í skilagjald. Skerp- ing á skautum kostar 400 kr. Siglfirðingar tilbúnir að taka við loðnu til bræðslu Niðurstöður mælinga koma eftir 1-2 vikur, segir Hjálmar Vilhjálmsson Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa dregið sér rúmar 2,7 millj- ónir króna á árunum 1982-1987. Hann hefur ekkert endurgreitt af því. í dómi Hæstaréttar segir að við ákvörðun refsingar beri að líta til þess að ákærði hafi tekist á hendur trúnaðarstarf þegar hann gerðist sparisjóðsstjóri. Hann hafi Landhelgisgæslan: Athugað með ferðir skútu á leið til Islands LANDHELGISGÆSLAN er fyr- ir nokkru farin að svipast um eftir skútunni Nakka sem á að vera á leið til íslands frá Flórída. Einn íslendingur, Bergþór Hávarðarson, er um borð en hann hefur nú verið rúmlega 40 daga í hafi. LHG hefur sent fyrirspurnir um skútuna til björgunarmiðstöðva bæði í Kanada og á Azoreyjum en án árangurs. Samkvæmt upplýsingum frá LHG eru margir óvissuþættir í sigl- ingu Nakka til landsins. Sjálfur áætlaði Bergþór að vera 40 daga á leiðinni en samkvæmt útreikn- ingum LHG er það fullmikil bjart- sýni að ætla sér svo skamman tíma að sigla þessa leið. Vitað er að Bergþór hefur vistir um borð til 2ja mánaða og hann er vanur skút- usiglingum um Atlantshafið. Veð- ur á leið þeirri sem hann ætlaði að fara hefur yfirleitt verið gott þennan tíma sem liðinn er. LHG hefur sent fyrirspumir um Nakka til björgunarmiðstöðvanna í Halifax í Kanada og í Lajes á Azoreyjum en á hvorugum staðn- um hafa menn orðið varir við skút- una. Einnig hefur LHG reynt að kalla Bergþór upp á reglubundnu flugi sínu suður af Reykjaneshrygg á síðustu dögum. framið brot sín með verkum sem telja verði misnotkun á stöðu hans. í dómi Hæstaréttar er rakið að í héraði hafi verið lögð fram ítar- leg skýrsla eftirlitsmanna banka- eftirlits Seðlabanka en þrátt fyrir að ákærði hafi alfarið neitað sakargiftum um fjárdrátt fyrir dómi hafí ekkert vitni verið kallað fyrir dóm og sé sú málsmeðferð andstæð ákvæðum laga um með- ferð opinberra mála, svo og það hvernig staðið var að samningu dómsins. Atalið er að héraðsdóm- ari hafi dregið í 14 mánuði frá áfrýjun að senda dómgerðir máls- ins til ríkissaksóknara. Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttardómari var ein um að vilja ómerkja dóm- inn og málsmeðferðina af þessum sökum en í sératkvæði hennar segir að þar eð meirihluti dómenda hafi komist að annarri niðurstöðu beri henni að taka afstöðu um efni málsins og því samþykki hún atkvæði meirihlutans, sem skipað- ur var hæstaréttardómurunum Bjarna K. Bjarnasyni, Gunnari M. Guðmundssyni, Haraldi Henryssyni og Jónatan Þórmunds- syni, prófessor. „ÉG hefði gjarnan viljað að veið- ar væru byrjaðar, enda erum við tilbúnir til að taka við Ioðnu. Mér fínnst að það hefði átt að vera búið að mæla loðnuna fyrr, en er bjartsýnn á að það verði búið að gefa út kvóta fyrir vikulok,” sagði Þórhallur Jónasson, rekstr- arstjóri Síldarverksmiðju ríkis- ins á Siglufirði. Arni Friðriksson, skip Hafrannsóknarstofnunar, leitar nú loðnu út af Vestfjörð- um. Þá fer Bjarni Sæmundsson til leitar út af Norðurlandi í kvöld, en þar hefur Súlan EA fundið töluverða loðnu undan- farna daga. Þórhallur sagði að hann tryði ekki öðru en að gefinn yrði út myndarlegur loðnukvóti í ár. „Það bárust fregnir af því þegar í sumar að mikil loðna væri út af Norður- landi, en þeim fréttum verður þó að taka með þeim fyrirvara, að þó það hafi verið loðna í trollum þá er ekki víst að hún sé veiðanleg í nót. Nú er Árni Friðriksson að mæla fyrir vestan, en fiskifræðing- arnir vilja auðvitað kynna sér ástandið hér fyrir norðan áður en ákvörðun verður tekin um kvóta. Mér finnst að það hefði verið hægt að gera fyrr, en er þó bjartsýnn á að kvótinn verði ákveðinn fyrir vikulok.” Þórhallur sagði að atvinnuástand á Siglufirði væri þokkalegt, en með haustinu harðnaði á dalnum. „Þeg- ar loðnuveiðar byija ráðum við um 20 manns til viðbótar í verksmiðj- una. Það hleður líka utan á sig, í aukinni verslun og viðskiptum við loðnuskipin. Það skiptir miklu máli fyrir staði eins og Siglufjörð að fá loðnuna.” Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur taldi það mikla bjartsýni að kvótinn yrði tilbúinn í vikulok. „Menn virðast ekki átta sig á að það er afar erfítt að koma við nokk- urri kvótasetningu fyrr en við erum búnir að mæla þetta — og til þess þurfum við tíma,” sagði Hjálmar. „Við verðum ekki tilbúnir með niðurstöður úr mælingunni fyrr en eftir eina til tvær vikur og þá reikna ég með góðu veðri á leitarsvæð- inu,” sagði Hjálmar. Hann sagði að búið væri að fara yfir svæðið vestur af Vestfjörðum og nú væri svæðið út af Norður- landi eftir. Það tæki í rauninni ekki langan tíma en á þessum tíma árs væri allra veðra von og því gæti þetta dregist eitthvað. --------------- Danmörk: * Islendingur var rændur á Helsingjaeyri Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta- ritara Morgunblaðsins. TYRKI á fertugsaldri hefur verið handtekinn í Danmörku, sakaður um að hafa ráðist með barsmíðurn á íslending og rænt hann. Ræn- ingjarnir, sem voru fjórir eða fimm, flúðu af vettvangi í bíl en vasi eins þeirra rifnaði í átökun- um svo að strætisvagnakort hans með nafni og mynd ásamt lykla- kippu varð eftir á staðnum. Atburðurinn varð með þeim hætti að maður sem að sögn íslendingsins var suðrænn í útliti, vék sér að hon- um á götu á Helsingjaeyri og bað um tíu krónur (100 ÍSK). Er íslend- ingurinn tók upp veskið var talan hækkuð í 100 krónur. íslendingur- inn neitaði að greiða og réðust mennirnir þá á hann með barsmíð og, spörkum auk þess sem þeir rændu frá honum 15.000 krónum (um 140.000 ÍSK). Er Tyrkinn sem missti eigur sínar í slagsmálunum sneri sér til lögreglunnar til að endurheimta þær var hann handtek- inn. Hann neitar að hafa tekið þátt í árásinni. Borgin hyggst fella niður skuld Bridssambandsins Gerbreytir starfsaðstöðu okkar, segir varaforseti sambandsins BRIDSSAMBAND Islands hefur fengið margar veglegar gjafir undanfarna daga. Þegar landsliðið í brids kom heim aðfaranótt mánudags tilkynnti Davíð Oddsson forsætisráðherra fyrir hönd Markúsar Arnar Antonssonar borgarstjóra að borgin hyggðist fella niður tíu milljóna króna skuld Bridssambands íslands við borgina. „Þetta eru allt höfðinglegar gjafir sem gerbreyta auðvitað allri okkar starfsaðstöðu. Afborganir af húsinu okkar hafa verið stór hluti af útgjöldum Bridssam- bandsins og nálgast alla þá upp- hæð sem komið hefur inn sem árgjöld félaganna. Nú verður hægt að nota þá peninga til að byggja enn frekar upp starfsem- ina. Við erum því auðvitað mjög þakklát Reykjavíkurborg og öllum öðrum sem hafa veitt okkur stuðning,” sagði Guðmundur Sv. Hermannsson varaforseti Brids- sambands íslands í gær. „Bridssambandið hefur ekki enn, frekar en aðrir, náð almenni- lega að átta sig a árangri lands- liðsins okkar í Yokohama, og hvað hann hefur í för með sér. En við vitum að það fylgir vandi hverri vegsemd og þeim mun meiri eftir því sem vegsemdin er meiri. Nú er eins og Bridssambandið hafi fengið 28 punkta á eina hendi og endað í 7 gröndum. Nú verðum við að spila úr þessum spilum, og ég vona að það takist á þann hátt að verði bridsíþróttinni og þjóðinni allri til framdráttar,” sagði Guðmundur. Elín Bjarnadóttir framkvæmd- astjóri Bridssambandsins sagði i gær að sambandið hefði fengið 500 þúsund króna ferðastyrk frá Flugleiðum og 100 þúsund krónur í ferðasjóð frá SAS. Auk þess hefði HHÍ gefið 1.000 Happó- miða og yrði dregið í kvöld. Á bankabók sambandsins hafa kom- ið um 500 þúsund og sagði Elín að talsvert ætti enn eftir að koma inn af áheitum sem sambandinu hefði borist á meðan á keppninni stóð. Sjá frásögn af komu heims- meistaranna á bls. 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.