Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 29
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Ffaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Friðarverðlaun í nafni frelsis og mannlegrar reisnar Austur í Búrma situr 46 ára gömul kona, Aung Sang Suu Kyi, í stofufangelsi. Formleg ákæra hefur aldrei verið gefin út á hendur henni en hún er sögð ógnun við öryggi ríkisins og sósíal- ismann, sem íbúum Búrma er skylt að sýna hollustu samkvæmt stjórnarskrá landsins. í rúm tvö ár hefur þessi kona, sem er leið- togi stjórnarandstöðunnar í land- inu, mátt þola algjöra einangrun og það er með öllu óvíst að þær fréttir hafi borist henni að hún hafi hlotið friðarverðlaun Nóbels í ár. Aung Sang Suu Kyi er dóttir Aungs Sans, leiðtoga þjóðernis- sinna í Búrma, sem stjórnaði sjálf- stæðisbaráttu landsmanna fyrst gegn Bretum og síðar gegn Japön- um á fimmta áratugnum. Aung San var myrtur í júlímánuði 1947 en myrkrið skall á af fullum þunga í þessu nýfijálsa landi í marsmán- uði 1962 er herinn rændi völdum og komið var á alræði Sósíalista- flokksins. Tveimur árum síðar var starfsemi allra annarra stjóm- málaflokka bönnuð. Á sérstöku þingi Sósíalista- flokksins í septembermánuði 1988, sem boðað var til í skynd- ingu eftir mikil mótmæli í landinu, var ákveðið að efna til frjálsra kosninga innan þriggja mánaða. Þetta gátu yfirmenn heraflans ekki samþykkt og tóku öll völd í sínar hendur. Sú opinbera skýring var gefin, að þetta hefði verið nauðsynlegt til að koma í veg fyr- ir að upplausnarástand ríkti fram að kosningum. Fullvíst er talið að illræmdur herforingi Ne Win að nafni hafi skipulagt aðgerðir þess- ar og hann stjórni í raun á bak við tjöldin. Þessi maður bar einnig ábyrgð á valdaráninu 1962. Aung Sang Suu Kyi sneri aftur til Búrma í aprílmánuði eftir að hafa dvalið lengi erlendis. Þá ríkti gífurleg spenna í landinu sökum dapurlegs efnahagsástands en herstjórarnir börðu andóf almenn- ings niður af fullkomnu miskunn- arleysi. Á undraskömmum tíma varð hún óumdeildur leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma. Herstjórnin virtist hafa látið undan þrýstingnum er boðað var til fijálsra kosninga í maímánuði í fyrra. Flokkur Aung Sang Suu Kyi, Lýðræðisfylkingin, hlaut 80% atkvæða í kosningunum þrátt fyr- ir að henni væri meinað að taka þátt í kosningabaráttunni. Var sú ákvörðun réttlætt með tilvísun til þess að hún væri gift útlendingi en eiginmaður hennar, sem er Breti, er nú háskólakennari í Bandaríkjunum. Herstjórnin sem fer með völdin í landinu og heldur landsmönnum í heljargreipum hryllings og ógn- ana neitar enn að viðurkenna nið- urstöður kosninganna. Valdhafar kveðast vera tilbúnir til að veita Aung Sang Suu Kyi frelsi, heiti hún því að hverfa úr landi og hafa engin frekari afskipti af stjórnmál- um í Búrma. Hún mun vera tilbú- in til að gera þetta verði öllum pólítískum föngum í landinu sleppt úr haldi og völdin fengin þeim sem til þess hafa hlotið umboð alþýðu manna. Þessa kröfu sem og þá almennu fordæmingu sem þeir hafa kallað yfir sig á alþjóðavett- vangi hafa vaidhafar í Búrma lát- ið sem vind um eyru þjóta. Allt frá því Aung Sang Suu Kyi varð leiðtogi lýðræðisaflanna í Búíma hefur hún hvatt fylgismenn sína til að beita ekki ofbeldi í bar- áttunni gegn myrkraöflunum sem þar ráða ríkjum. Er sérstaklega vísað til þessa í umsögn Nóbels- nefndarinnar og segir þar að hún hafi með friðsamlegu andófi orðið mikilvægt sameiningartákn fyrir alla þá sem beijast í nafni Iýðræð- is og mannréttinda gegn hvers kyns kúgun og ofríki. Sú ákvörðun Nóbelsnefndarinn- ar að veita Aung San Sun Kyi verðlaunin í ár er einnig mikilvæg yfirlýsing um stuðning við þessa baráttu hvar sem hún fer fram. I henni felst afdráttarlaus viðvörun til valdasjúklinganna umboðs- lausu, sem ráða ríkjum í Búrma og hún er einnig til þess fallin að Ieiða þeim í ljós að heimsbyggðin hefur ekki gleymt Aung Sang Suu Kyi og hetjulegri baráttu hennar. Yfirlýsing nefndarinnar felur í sér þá kröfu að frelsi mannsins, sem er eitt og óskiptanlegt, verði virt og í henni felst sú afstaða að mannleg reisn verði aldrei brotin niður með kúgunum, hótunum og beitingu valds. Hún er hvatning til íbúa Búrma og allra þeirra sem ofríki eru beittir að fyllast ekki skelfingu er þeir standa andspæn- is boðberum myrkurs og mannhat- urs og áminning um að grípa ekki til sömu úrræða og þeir. Og með því að heiðra Aung San Su Kyi með þessum hætti hefur Nóbels- nefndin enn á ný ítrekað þá af- stöðu siðmenntaðra manna að hót- anir og valdbeiting eru til marks um óttann sem gagntekur alla þá sem ríkja í skjóli hervalds er þeir gera sér ljóst, að þráin eftir frelsi og mannréttindum er afl sem þeir fá ekki sigrað. Friðsamlegt andóf alþýðu manna nægði til þess að bijóta á bak aftur kúgunaröflin, sem ríktu í alþýðulýðveldunum sósíalísku í Austur-Evrópu. í valdaránstil- rauninni austur í Moskvu kom enn og aftur í ljós. að hervald eða hótanir um beitingu þess duga skammt og að óttinn býr í bijósti þess sem skipar skriðdrekunum í viðbragðsstöðu. Hið sama á eftir að sannast í Búrma. Morgunblaðið/Björn Blöndal Annar skipbrotsmannanna studdur um borð í þyrluna í Höfnum. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Menn úr sjósveit Þorbjarnar komnir í land eftir frækilega björgun. Talið f.v.: Heiðar Sverrisson, Guðmundur Birkir Agnarsson, Gunnar Jóhannesson skipsijóri, Sigurður Oli Hilmarsson, Jakob Einarsson og Sigmar Eðvarðsson, formaður björgunarsveitarinnar. Bátur sökk við Reykjanes eftir að hafa siglt á rekald: Tveimur skipbrotsmönn- um bj argtið úr gúmmíbát Grindavík B J ÖRGUN ARSVEITIN Þor- björn í Grindavík bjargaði tveim- ur skipbrotsmönnum, Sveini Sigurjónssyni skipsijóra og Ivari Þórhallssyni, úr gúmmíbát sl. laugardagskvöld eftir að bátur Mývatnssveit: Hjól sprakk í höfuð manni BÓNDI á Vagnbrekku í Mývatns- sveit slasaðist er hjólbarði sem hann var að dæla lofti í sprakk og þeyttist í andlit hans. Maður- inn var fluttur á sjúkrahús á Akureyri og þaðan til Reykjavík- ur þar sem hann gekkst undir aðgerð vegna mikilla áverka í andliti. Maðurinn var ásamt nágranna sínum að skipta um dekk undir mykjudreifara. Mennirnir munu hafa verið að beijast við að koma dekkinu á felgu og síðan var dælt í dekkið frá loftúttaki á dráttarvél. Skyndilega sprakk dekkið með felg- unni upp í loft, skall í höfuð manns- ins og strauk höfuð hins, svo hann vankaðist. Síðan þeyttist dekkið langar leiðir, en hafnaði loks á fólksbíl og skemmdi hann. Að sögn lögreglu er ekki talið ljóst af hveiju óhappið varð. Talið er hugsanlegt að vírar í hjólbarð- anum hafi verið orðnir slitnir. Eins að of mklu lofti hafi verið dælt í barðann. Þá er ekki Ijóst hvort hjól- barðinn og felgan voru sömu stærð- ar. þeirra, Jóhannes Gunnar GK 74, hafði siglt á rekald rétt norðan við Reykjanestá. Beiðni um aðstoð barst skömmu eftir kl. átta á laugardagskvöld til lögreglunnar í Grindavík sem gerði Þorbirni viðvart og voru skipbrots- mennirnir þá komnir í gúmmí- björgunarbát. Skömmu eftir að fyrsta beiðnin kom rofnaði sam- band við skipveija og þá var sent út neyðarkall til nærliggjandi skipa og björgunarsveitir í Sandgerði og Keflavík ræstar út. Þegar björgun- arsveitarmenn frá Grindavík komu að skipbrotsmönnunum á björgun- arbát, sveitarinnar, Oddi V. Gísla- syni, voru þeir búnir að yfirgefa bát sinn og komnir í gúmmíbát og lágu við síðuna á Jóhannesi Gunn- ari sem var að miklu leyti kominn í kaf og rak í átt að landi. Talið er að ekki hafi verið meira en 50-100 metrar í land en við ströndina var mikið brim, straumþungt og stór- grýtt fjara þó að sjór hafi verið stilltur á slysstað. „Við áttum erfitt með að finna bátinn í fyrstu en sáum síðan ljós- týru skammt frá landi og þar var báturinn og hann var það nálægt landi að við sáum brotið í öldunni. Ég tel að við hefðum ekki mátt vera seinna á ferðinni,” sagði Gunn- ar Jóhannesson, skipstjóri á Oddi V. Gíslasyni. „Við byijuðum á því að taka mennina um borð í Odd. Þeir voru þá orðnir nokkuð þrekað- ir og kaldir og skipstjórinn hafði orðið fyrir meiðslum þegar árekst- urinn varð og var nokkuð þjáður. Þá var liðinn tæpur klukkutími frá því að beiðni barst um aðstoð.” Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- Sif, kom á vettvang skömmu seinna en að sögn Gunnars var erfitt að athafna sig svo nálægt landi þann- ig að siglt var til hafnar í Höfnum þar sem þyrlan tók mennina og flutti þá á Borgarspítalann. Svo heppilega vildi til að fyrir nokkru var gengið frá malbikuðu bílaplandi við höfnina og gat þyrlan lent þar. Reynt var að bjarga Jóhannesi Gunnari þar sem hann maraði í hálfu kafi. Gat var á stefni hans og sjór fossaði inn. Skotta HF-172 dró hann í átt frá landi og reyndi að dæla sjó úr Jóhannesi en það bar ekki árangur og sökk hann um tveimur tímum eftir að beiðni um aðstoð barst. Jóhannes Gunnar var 6-7 tonna plastbátur en var að koma úr lengingu og vélaskiptum frá Akureyri og var á leið til hafnar í Grindavík þegar slysið átti sér stað. Sigmar Eðvarðsson, formaður björgunarsveitarinnar Þorbjarnar, var að vonum ánægður með afrek sveitarinnar og fór sjálfur í Hafnir til að taka á móti sveitarmönnum. Hann sagði að þetta undirstrikaði mikilvægi góðrar þjálfunar og að sveitin væri samstilltur hópur manna. Að sögn hans fara þrír menn á vegum sveitarinnar til Eng- Björgunarsveit frá Grindavík bjargaði mönnunum og fór með þá til Hafna í veg fyrir þyrlu lan helgisgæsælunnar. Jóhannes Gunnar GK 74 °1 keyrði á rekald, leki kom að bátnum. Skipsmenn fóru í gúmbjörgunarbát 5 sem rak upp í brimgarðinn. km lands á næstunni til þjálfunar í meðferð minni björgunarbáta og verður námskeiðið haldið á eyjunni Isle of Wight og fara þangað um 20 menn frá Slysavarnafélagi ís- lands. Sigmar sagði að minningar- sjóður Hjalta Pálmasonar styrkti sveitarmenn frá Grindavík til farar- innar. FO Bátur sökk eftir að hafa siglt á rekald Bátsverji tekin um borð í nærstaddan bát ÞRÍTUGUR sjómaður bjargaðist úr sjávarháska eftir að 5 tonna plastbátur hans, Lukka RE, sökk um 18 sjómílur suður af Horna- Athuganir á ofkælingn: Menn tapa varma í álpokum MÖGULEGT getur verið að endurlífga manneskju og koma af stað eðlilegri heilastarfsemi þó hjartað dæli engu blóði, að því er fram kemur í grein eftir dr. Jóhann Axelsson, forstöðumann Rannsókna- stofu Háskóla íslands í lífeðlisfræði, sem birtist í fréttablaði Slysavarn- arfélags íslands. Þannig þurfi fórnarlömb ofkælingar ekki að vera endanlega skilin við þó ekkert lífsmark sé með þeim. í fréttatilkynningu frá Slysavarn- arfélaginu segir að í grein Jóhanns komi fram að menn tapi varma í álpokum, enda leiði ál varma mjög vel og látið sé að því liggja í grein- inni, þó það sé ekki sagt berum orð- um að álpokar og álteppi geti veitt falskt öryggi. Jóhann hefur um nokkurt árabil unnið að rannsóknum á ofkælingu. hann hefur verið áhugamaður um kuldarannsóknir og kuldavarnir og um lífeðlisfræðile_g áhrif kulda á mannslíkamann. í fréttatilkynning- unni segir ennfremur að niðurstöður greinarinnar geri kröfu til þess að ýmsar fyrri fullyrðingar um ofkæl- ingu verði teknar til endurskoðunar. Síðan segir: „Þess má t.d. geta að á undanförnum árum hefur mjög verið hvatt til notkunar á álpokum á ferðalögum um vetrartímann og þeir taldir veita mikið öryggi. Sam- kvæmt niðurstöðum dr. Jóhanns á þetta ekki við rök að styðjast.” firði. Talið er að báturinn hafi siglt á rekald. Sjómaðurinn, Haraldur Ragnars- son, varð ekki var við leka sem kom að bátnum 'fyrr en aðvörunarhljóð heyrðust frá vélarrýminu, að sögn Ragnars Haraldssonar, föður Har- aldar.og eiganda bátsins. Gerði hann þá nærstöddum bát, Láru HF, við- vart og var honum bjargað um borð í hann skömmu síðar. Tóku þeir síð- an Lukku í tog og drógu hann um þijár sjómílur áður en hann sökk, að sögn Ragnars. Ragnar sagði að nýlega hefðu verið gerðar endurbætur á bátnum. Hann var með nýja vél og GPS- siglingatæki. Báturinn var smíðaður í Hafnarfirði 1982 og var hann á handfæraveiðum á krókaleyfi. Ragnar kvaðst hafa heyrt að mik- ið væri um reköld í sjónum um þess- ar mundir, einkum rekavið. Sjóréttur verður haldinn í Reykja- vík. Handhafi friðarverðlauna Nóbels: Dóttir frelsishetju og tákn- gervingur andófsins í Búrma Stúdentar og búddamunkar í Rangoon bera fána og hrópa slagorð gegn einræðisherrunum árið 1988. ÞRÁTT fyrir mikinn þrýsting hefur herforingjastjórnin í Búrma hundsað kosningaúrslitin í maí 1990 er flokkur Aung San Suu Kyi vann glæstan sigur. All- ir helstu sljórnarandstæðingar hafa verið fangelsaðir og þús- undir manna drepnar. Suu sem fékk í gær friðarverðlaun Nó- bels er tákngervingur andófsins í landinu og situr enn í stofufang- elsi. Allt frá barnæsku var Suu í sí- fellu minnt á að hún væri dóttir þjóðhetju Búrma, U Aung San. Hann er dáður sem foringi þjóðar- innar í sjálfstæðisbaráttu hennar, en var myrtur 1947, aðeins 32 ára — rétt í þann mund sem sjálfstæð- ið sem hann hafði barist fyrir og samið um varð að veruleika. Suu var þá tveggja ára. Hún átti þess kost að menntast í Nýju-Delhí og Oxford og nam stjórnmálafræði, hagfræði og heim- speki. 1972 giftist hún Bretanum Michael Aris sem er einn helsti sérfræðingur heims í tíbeskum fræðum og er nú gistiprófessoi' við Harvard-háskóla. Þau seytján ár sem Suu bjó í Oxford áður en hún fór að hafa afskipti af frelsisbarátt- unpi í heimalandi sínu, vann hún að fræðistörfum og var um skeið prófessor í Japan og Indlandi. Með- al verka hennar er stutt ævisaga föður hennar og ritgerðir um félagslega og pólitíska þróun í Búrma næstu áratugina áður en sjálfstæðibaráttan hófst í landinu fyrir heimsstyijöldina síðar. Eftirfarandi ummæli í grein sem eiginmaður hennar skrifaði í sumar í tilefni þess að hún fékk Sakharov- verðlaunin sem Evrópuþingið í Strassborg veitir, sýna glöggt lífs- skoðun nóbelsverðlaunahafans: „Áður en við giftum okkur fyrir sem næst tuttugu árum bað Suu mig að lofa því að standa aldrei í vegi fyrir henni og landi hennar eða hindra á annan hátt að henni tækist að fullnægja því sem hún kallar grundvallarskyldu sína gagnvart þjóð sinni. Ég lofaði því — enda þótt ég vissi fullvel að einn daginn myndi hún halda heim á leið þegar sú stund rynni upp að hún yrði að endurgjalda þá ástúð og það álit sem fjölskylda hennar naut.” Haustið 1987 ákvað stjórnin í Búrma að fella úr gildi gjaldmiðil landsins til að stemma stigu við óðaverðbólgu. Afleiðingin var sú að sparnaður almennings þurrkað- ist út á einni nóttu. Þessi ákvöt'ðun vakti mikla reiði og í mars 1988 hófust mótmæli gegn einræðis- stjórninni sem kennir sig við sósíal- isma. í apríl 1988 sneri Suu heim til Búrma til að hjúkra aldraðri móður sínni. Þann 15. ágúst birti hún opið bi'éf til stjórnarinnar í Rangoon og ellefu dögum síðar kom hún fram opinberlega á fundi með milljón manna. Frá þeirri stundu var hún sameiningartákn þjóðar sinnar gegn hinum illa þokkuðu valdhöfum. í maí.1990 vann flokk- ur hennar, Lýðræðishreyfingin, glæstan sigur í kosningum sem stjórnvöld létu til leiðast að efna til, fékk yfir 80% þingsæta. Sjálf hafði hún þá setið í stofufangelsi í tíu mánuði, eftir að hafa farið um landið þvert og endilangt með mannréttindaboðskap sinn og ákall um borgaralega ólöghlýðni. En síð- an er liðið rúmt ár og ekkert bólar á því lýðræði sem lofað var. Þing- menn Lýðræðishreyfingarinnar eru flestir í fangelsi eða flúnir og Suu situr enn í stofufangelsi að því er best er vitað. Öllum vestrænum blaðamönnum hefur verið vísað úr landi og þar ríkir mikil ógnarstjórn. Efnahagur landsins er í rúst. Áður var það þriðji mesti hrísgijónaút- flytjandi heims en er nú í hópi 10-15 fátækustu ríkja heims. Talið er að 40% þjóðartekna renni beint til hers og lögreglu. Að sögn eiginmanns hennar er látlaust þrýst á Suu um að yfirgefa landið af sjálfsdáðum. Eiginmanni hennar og sonum er gert ókleíft að hafa samband við hana. í grein sem Suu ritaði áður en hún var hneppt í fangelsi segir m.a.: „í kerfi sem afneitar tilvist grundvall- ar mannréttinda ríkir óttinn. Otti við að vera hnepptur í varðhald, ótti við pyntingar, ótti við dauðann, ótti við að sjá á bak vinum, vanda- mönnum, eignum eða atvinnu, ótti vð fátækt, ótti við einangrun, ótti við mistök. Slægastur er sá ótti sem klæðist gervi heilbrigðrar skyn- semi, og jafnvel speki, og fordæm- ir sem heimskulega, glæfralega eða fánýta ýmsa daglega breytni sem hjálpartil að viðhalda sjálfsvirðingu og mannlegri reisn. Það er hægara sagt en gert fyrir fólk sem búið hefur árum saman undir járnhæl óttans í ríki þar sem mátturinn er valdið að fría sig undan lamandi eituráhrifum óttans. Engu að Síður rís hugrekki upp hvað eftir annað, jafnvel í löndum þar sem tortíming- arafl ríkisvaldsins er hvað ægileg- ast, því óttinn er ekki eðliseinkenni hins siðmenntaða manns.” Nokkur persónuleg fagnaðarorð eftir Jakob F. Asgeirsson Þegar að þetta er ritað er með öllu óvíst hvort Aung Sang Suu Kyi hefur fengið vitneskju um að henni hafi verið veitt friðarverðlaun Nó- bels þar sem hún dvelur í einangrun í húsi látinnar móður sinnar í Rang- ún. En í húsi hennar sjálfrar í Ox- ford ríkir mikill fögnuður meðal námsmanna sem hafa hús hennar á leigu og fylgst hafa náið með framvindu hennar mála og ljöl- skyldunnar. Það var sumarið 1990 sem ég kynntist mannréttindabaráttu Aung Sang Suu Kyi í Burma. Við vorum fimm saman nemendur frá Pembro- oke-garði í Oxford að leita okkur að húsnæði. Blaðaauglýsing vísaði okkur á fallegt hús frá Viktoríutím- anum á gróðursælum stað í Norður- Oxford. Eigandi hússins var Dr. Micheal Aris sem sagður er einn virtasti sérfræðingur heims í tíbesk- um fræðum. Hann var á leið til Bandaríkjanna þar sem honum hafði boðist staða gistiprófessors til tveg'£)a ára við Harvard-háskóla. Hann sagði okkur að eiginkona sín væri fangi herforingjastjórnarinnar í Burma, en hefði samt nýverið unnið glæsilegan sigur í frjálsum kosningum í landinu. Synir þeirra tvéir væru á heimavistarskóla. Við fluttum inn í lok ágúst 1990. Það var augsýnilegt að Dr. Aris tók það nærri sér að yfirgefa húsið, það var leigt út með öllu innbúi. Það má segja að allt hafi væri eins og þegar Aung Sang Suu Kyi skildi við það vorið 1988, austræn teppi og myndir á veggjum. Fyrir innan dyrastafinn stóðu stígvél þeirra hjóna, hennar gul, hans blá — og Dr. Aris bað okkur að leyfa þeim að vera þar sem táknrænni von um að einhverntíma rynni upp sá dagur að heimilislífið færðist í eðlilegt horf á ný. Leiguskilmálarnir voru þeir að Dr. Aris og drengirnir hefðu til af- nota tvö þakherbergi hússins þegar á þyrfti að halda, t.d. í skólafríum og að við ieigjendurnir gættum heimilishundsins sem var 19 ára bútanskur terrier sem þau hjón höfðu eignast í upphafi búskapar síns. Suu hélt mikið upp á þennan hund og var Dr. Aris umhugað um að hundurinn væri á lífi þegar kona hans slyppi úr prísundinni en þá von ól hann í bijósti að henni yrði sleppt. Því miður hrakaði heilsu hundsins svo að upp úr páskum var ekki stætt á öðru en að svæfa hann. Á leiði hans í garðinum var gróðursett tré og útlend planta sem ég kann ekki að nefna sem þau hjón höfðu fyrir margt löngu komið sér saman um að jgera. Eg held að ástæðan fyrir því að Dr. Aris hélt vestur um haf hafi fyrst fremst verið eirðarleysi, engin föst staða í tíbeskum fræðum er við háskólann í Oxford og fyrst dren- girnir undu sér í heimavistarskólum ákvað hann að slá.til. Honum leið Aung Sang Suu Kyi illa orðið að dvelja einsamall í þessu stóra húsi, búandi við óvissuna um afdrif konu sinnar og hann hélt að það mundi gera sér gott að komast í nýtt umhverfi og takast á við ný verkefni. Og hann gat ekki síður barist fyrir málstað konu sinnar í Bandaríkjunum en í Englandi. Hann hefur síðan komið reglulega heim í skólafríum og ýmist dvalist þar með sonum sínum eða farið í ferðalög með þeim. Drengirnir eru orðnir 'stálpaðir, Alexander 19 ára og Kim 13 ára. Eins og faðir þeirra hafa þeir sýnt mikla stillingu við þessa upplausn fjölskyldunnar. Það eru nú meira en tvö ár síðan þeir feðgar sáu Suu síðast. Ná- grannarnir segja að þessi aðskilnað- ur hljóti að hafa gengið ákaflega nærri Suu hún hafi verið einstök móðir og haft mikla ást á drengjun- um. Einstaka ókunnugur maður hefur hinsvegar látið í ljós furðu yfir að hún skuli hafa yfirgefið syni sína og eiginmann til að beijast fyrir Ijarlæga þjóð við að því er virðist vonlausar aðstæður. Það á margur nú á tímum erfitt með að setja sig í spor þeirra sem nauðugir viljugir verða gera upp á milli einka- lífs síns og hugsjóna sinna. Í raun og veru átti þessa kona engra kosta völ; uppruni hennar og mannkostir gerðu það að verkum að þegar til kastana kom var hennar eigið líf samofið lífi þjóðar hennar. Það er samdóma álit stjórnarerin- dreka í Rangún að valdhafarnir í Burma séu klíka ómenntaðra rudda sem engu tauti verði við komið. Andspænis þeim stendur þessi kona — og talar um mannréttindi og lýð- ræði. En Aung Sang Suu Kyi stendur ekki ein gegn ógnarstjórninni eins og Morgunblaðið minntist á í rit- stjórnargrein í sumar: Samviska heimsins er í fylgd með henni, friðarverðlaun Nóbels eru til vitnis um það. Það ríkir mikil gleði á heimili þeirra hjóna í 15 Park Town Oxford. Höfundur stundar nám í Oxford.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.